Tímamót í fjárlagavinnu

Fjár­laga­frum­varpið verður afgreitt í sátt út úr þing­inu, sem eru tíma­mót. Enginn fékk allt sitt fram en allir eitt­hvað. Sex minni­hluta­á­lit voru sett fram úr nefnd­inni þar sem eng­inn meiri­hluti er þar.

Haraldur Benediktsson er formaður fjárlaganefndar.
Haraldur Bene­dikts­son er for­maður fjár­laga­nefndar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjár­laga­nefnd Alþingis sam­mælt­ist öll um að setja tólf millj­arða króna til við­bótar inn í fjár­laga­frum­varpið á milli fyrstu og ann­arrar umræðu í þing­inu. Stærsti hlut­inn fer í sam­göngu­mál og heil­brigð­is­mál, en ríf­lega 4,5 millj­arðar króna verða settir í sam­göngu­mál og tæp­lega 4,5 millj­arðar í heil­brigð­is­mál.

Einn millj­arður króna til við­bótar fer inn í háskól­ana, og 400 millj­ónir til fram­halds­skóla. 400 millj­ónir fara í lög­gæslu­mál og 100 millj­ónir í land­helg­is­mál.

Öll fjár­laga­nefnd sam­mælt­ist um til­lög­urnar, en fyr­ir­komu­lagið er með þeim hætti að þing­menn starf­andi rík­is­stjórn­ar­flokka, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins, greiða atkvæði með frum­varp­inu, en þing­menn ann­arra flokka munu sitja hjá og þannig greiða leið frum­varps­ins í gegnum þingið.

Sammála um fjögur meginatriði

Í ljósi þess hversu seint afgreiðsla fjár­laga­frum­varps­ins er á ferð­inni var ákveðið að fjár­laga­nefnd myndi ekki eiga eins marga fundi og áður, hún ákvað til dæmis að funda ekki með full­trúum ein­stakra sveit­ar­fé­laga og tak­mark­aði mjög fundi með stofn­unum. Aðeins full­trúar frá Land­spít­al­anum og Vega­gerð­inni komu á fund nefnd­ar­innar ásamt full­trúum frá ráðu­neytum.

„Þrátt fyrir stuttan tíma hefur tek­ist ágætur sam­hljómur um meg­in­á­herslur í umfjöllun, grein­ingu og til­lögu­gerð. Samkomu­lag var milli nefnd­ar­manna um að fjalla einkum um fjögur mál­efna­svið í vinn­unni,“ segir í áliti full­trúa Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks. Mála­miðl­unin fólst í því að fara einkum í sam­göngur, heil­brigðis- og mennta­mál og lög­gæslu.

Í heil­brigð­is­málum fara tveir millj­arðar króna til við­bótar til Land­spít­al­ans, en helm­ingur þess er ætl­aður til að styrkja rekstr­ar­grunn spít­al­ans og til að mæta útskrift­ar­vanda. Hinn helm­ing­ur­inn fer í að mæta við­bót­ar­þörfum vegna end­ur­bóta og við­halds á hús­næði. 100 millj­ónir fara í göngu­deild­ar­þjón­ustu og rekstur á Sjúkra­hús­inu á Akureyri.

1,2 millj­arður fer í heil­brigð­is­þjón­ustu utan sjúkra­húsa og 700 millj­ónir fara í hjúkr­unar- og dval­ar­rými. Í sam­göngu­mál­unum er lögð áhersla á að ekki þurfi að seinka smíði á nýjum Herjólfi eða gerð Dýra­fjarð­ar­ganga. Þá mun Vega­gerðin fá aukið fjár­magn til við­halds­verk­efna. Háskól­arnir fá sam­tals rúman millj­arð í tíma­bundið fram­lag. Mark­miðið er að gera háskól­unum kleift að end­ur­nýja ýmsan búnað og tæki fyrir 408 millj­ónir króna, sem hefur setið á hak­anum und­an­farin ár. 400 millj­ónum er ætlað að styrkja rekstr­ar­grunn skól­anna til að vega á móti rekstr­ar­halla, og er í því sér­stak­lega horft til Lista­há­skóla Íslands. Þá á Háskóli Íslands að fá 100 millj­óna fram­lag í Ald­ar­af­mæl­is­sjóð, og Land­bún­að­ar­há­skól­inn fær 70 millj­ónir til við­halds á hús­næði sínu á Reykjum.

Allir samstíga en sex minnihlutaálit

Haraldur Bene­dikts­son, for­maður fjár­laga­nefndar, var mjög ánægður með vinn­una í nefnd­inni þegar hann mælti fyrir breyt­ing­ar­til­lög­unni á þingi í dag. Hann sagði vinn­una hafa verið til mik­illar fyr­ir­myndar. Í þing­nefnd­inni hafi skap­ast mikið traust manna á milli, sem sé ákaf­lega dýr­mætt. „Við þessar aðstæður þá held ég að þingið hafi sýnt sína bestu hlið og sýnt að það er líka hægt að vinna með þessum hætti.“

Þar sem eng­inn meiri­hluti er í nefnd­inni frekar en í þing­inu eru öll álit minni­hluta­á­lit. Haraldur og aðrir full­trúar Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks standa saman að fyrsta minni­hluta, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir frá Sjálf­stæð­is­flokki og Silja Dögg Gunn­ars­dóttir frá Framsókn. Full­trúar ann­arra flokka standa allir einir að sínum minni­hluta­á­litum. Theodóra S. Þor­steins­dóttir frá Bjartri fram­tíð, Þor­steinn Víglunds­son frá Viðreisn, Oddný G. Harð­ar­dóttir frá Sam­fylk­ingu, Björn Leví Gunn­ars­son frá Pírötum og Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir frá VG skip­uðu annan til sjötta minni­hluta í nefnd­inni. Það mun vera eins­dæmi að svona mörg minni­hluta­á­lit séu lögð fram í fjár­laga­vinnu.

Umræður um fjár­laga­frum­varpið og breyt­ing­ar­til­lög­urnar standa nú yfir í þing­inu og munu vænt­an­lega gera næstu klukku­stund­irnar. Þegar því er lokið fer frum­varpið aftur í nefnd fyrir þriðju umræðu.

Ekkert samstarf um bandorminn

Sams konar sam­komu­lag og gert var í fjár­laga­nefnd var ekki gert í efna­hags- og við­skipta­nefnd þings­ins, sem hefur fjallað um ýmsar for­sendur fjár­laga­frum­varps­ins, svo­kall­aðan band­orm. Þannig lögðu Vinstri græn fram ýmsar breyt­ing­ar­til­lögur við það frum­varp, líkt og Katrín Jak­obs­dóttir for­maður flokks­ins greindi frá í gær­kvöldi. „Þar munu þing­menn geta greitt atkvæði um auð­legð­ar­skatt þar sem íbúð­ar­hús­næði til eigin nota er þó und­an­skilið, hærri fjár­magnstekju­skatt á fjár­magnstekjur (ekki launa­tekjur) yfir tveimur millj­ónum á ári, að gos­drykkir með sykri og sætu­efnum fær­ist í efra þrep virð­is­auka­skatt­kerf­is­ins, hærra skatt­þrep á tekjur yfir tveimur millj­ónum á mán­uði (sem er tals­vert langt yfir með­al­tekjum), kolefn­is­gjald hækki um 10% í stað 5% og að tekin verði upp komu­gjöld á flug­far­seðla. Enn­fremur að tekju- og eigna­mið­við barna- og vaxta­bóta verði hækkuð um 35% í stað 12,5%.“ Þessar til­lögur náðu ekki fram að ganga við atkvæða­greiðslur fyrr í dag. Frum­varpið kemur til þriðju og síð­ustu umræðu þegar annarri umræðu um fjár­lögin lýkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár