Tíu ný innanlandssmit í gær

Ein­stak­lingar með virk COVID-19 smit eru nú 120 tals­ins. Ein­stak­lingum í sótt­kví fjölg­aði um hátt í 100 á milli daga og eru nú 535.

Tíu ný kór­ónu­veirusmit greindust inn­an­lands í gær og var helm­ingur þeirra sem greind­ist í sótt­kví. Fjöldi ein­stak­linga í ein­angrun er nú 120. Í gær hafði ein­stak­lingum í ein­angrun fækkað um fimm milli daga, voru 117 í gær en í 122 í fyrra­dag. Öll nýju smitin voru greind á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala en þar var sýni úr 578 tekið til grein­ingar í gær. Hlutfall jákvæðra sýna hjá sýkla- og veiru­fræði­deild var því um 1,7 pró­sent. 14 daga nýgengi fyrir inn­an­lands­smit er nú 15,3 á hverja 100.000 íbúa.

Fjöldi ein­stak­linga í sótt­kví er nú 535. Þeim fjölgar um hátt í 100 á milli daga en í gær voru 439 í sótt­kví. Einn ein­stak­lingur liggur á sjúkra­húsi vegna COVID-19 líkt og í gær, þó ekki á gjör­gæslu.

Á landa­mær­unum voru tekin sýni úr rétt tæp­lega 2.700 ein­stak­lingum. Einn ein­stak­lingur var með mótefni við veirunni en fjögur bíða mótefna­mæl­ingar. Á landa­mær­unum er nýgengi smita 12,3 á hverja 100.000 íbúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár