Tæplega hundrað fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í júní

Fyr­ir­tæki sem urðu gjald­þrota á fyrri helm­ingi árs­ins voru með 1991 manns í vinnu að jafn­aði árið 2019. Flest gjald­þrot urðu hjá fyr­ir­tækjum í bygg­ing­ar­starf­semi.

Um 50 fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa orðið gjaldþrota á fyrri helmingi ársins.
Um 50 fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu hafa orðið gjald­þrota á fyrri helm­ingi árs­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Samtals voru 97 fyr­ir­tæki sem skráð voru í fyr­ir­tækja­skrá Skatts­ins tekin til gjald­þrota­skipta í júní síð­ast­liðnum. Af þeim voru 48 með virkni árið 2019, það er ann­að­hvort með laun­þega sam­kvæmt stað­greiðslu­skrá eða veltu sam­kvæmt virð­is­auka­skatt­skýrslum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Hag­stof­unnar í morgun.

Af 546 fyr­ir­tækjum sem urðu gjald­þrota á fyrri helm­ingi árs­ins 2020 voru 222 virk á fyrra ári, sem er 23 pró­sent fleiri en þau voru á fyrri helm­ingi árs­ins 2019. Þar af voru 65 í bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð, 41 í heild- og smá­sölu­verslun og við­gerðum á vél­knúnum öku­tækjum, 49 í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu og 67 í öðrum atvinnu­greinum.

Fyr­ir­tæki sem urðu gjald­þrota á fyrri helm­ingi árs­ins voru með 1991 laun­þega að jafn­aði árið 2019 og um 18,9 millj­arða króna veltu. „Þetta eru mun lægri tölur en fyrir gjald­þrot á fyrri helm­ingi árs­ins 2019, sem skýrist af gjald­þroti WOW Air í mars 2019,“ segir í í til­kynn­ing­unni.

Samkvæmt gögnum á vef Hag­stof­unnar voru nýskrán­ingar einka­hluta­fé­laga í júní 225 og fjölg­aði um 34 pró­sent frá júní 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár