Skiptir kosningaþátttaka ungs fólks máli?

Kosn­inga­þátt­taka er dræm í yngsta ald­urs­flokknum og ástæður þess virð­ast vera marg­þættar og flóknar. Kjarninn leit­aði svara hjá tveimur álits­gjöfum til að fá inn­sýn í þessar ástæður.

Rannsóknir sýna að traust skipti ekki máli í kosningaþátttöku hjá eldra fólki. Því er öfugt farið hjá því yngra.
Rann­sóknir sýna að traust skipti ekki máli í kosn­inga­þátt­töku hjá eldra fólki. Því er öfugt farið hjá því yngra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kosn­inga­þátt­taka hjá ungu fólki er alla­jafna dræm­ari en hjá þeim eldri. En eru ein­hverjar útskýr­ingar á þess­ari dræmu þátt­töku? Hvað þýðir það að vera þátt­tak­andi í lýð­ræði og skiptir það máli fyrir lýð­ræðið að sem flestir taki þátt? Umræða um minnk­andi kosn­inga­þátt­töku hjá ungu fólki er engin nýlunda enda er mantran „heimur versn­andi fer“ end­ur­tekin kyn­slóð fram af kyn­slóð. Spurn­ingar vakna eins og hvort almennt áhuga­leysi sé á hefð­bundnum stjórn­málum og hvort nei­kvæð við­horf til stjórn­valda hafi áhrif. Þá má velta því fyrir sér hvort traust til stjórn­valda hafi áhrif á þátt­töku.

Sé með­al­tal kjör­sóknar í kosn­ing­unum 2003, 2007, 2009 og 2013 skoðað sést að ald­urs­hóp­ur­inn 18-24 ára skilar sér síst á kjör­stað. Að með­al­tali svör­uðu 82 pró­sent þess fólks á aldr­inum 18 til 24 ára sem tók þátt í kosn­inga­rann­sókn­inni þessi ár að þau hefðu kosið í Alþing­is­kosn­ing­um. Miðað við fólk á ald­urs­bil­inu 35 til 64 ára þar sem með­al­hlut­fall þeirra sem sögð­ust hafa kosið var 91,8 pró­sent.

Kjarninn setti af stað sam­fé­lags­miðla­her­ferð á dög­unum, ásamt Nútím­anum, sem miðar að því að hvetja ungt fólk til að fara á kjör­stað.

Í síð­ustu for­seta­kosn­ingum hefur kjör­sókn verið mun lak­ari en kjör­sókn í Alþing­is­kosn­ing­um. Í for­seta­kosn­ing­unum 2012 kusu aðeins 69,3 pró­sent þeirra sem voru á kjör­skrá, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unn­ar. Árið 2004 kusu enn færri eða 62,9 pró­sent. Til sam­an­burðar kusu 81,5 pró­sent í Alþing­is­kosn­ingum 2013 og enn fleiri árið 2009 eða 85,1 pró­sent kosn­inga­bærra ein­stak­linga.

Kjarninn leit­aði svara hjá Evu Heiðu Önnu­dóttur, nýdoktor á Félags­vís­inda­sviði við Háskóla Íslands og Ólafi Páli Jónssyni, pró­fessor í heim­speki á Mennta­vís­inda­sviði háskól­ans.

„Eðlilegt“ að kosningaþátttaka sé í sumum tilfellum dræmari

Eva segir að kosn­inga­þátt­taka ungs fólks sé lakri í sveita­stjórn­ar­kosn­ingum en í til dæmis Alþing­is­kosn­ingum. Stundum sé talað um ann­ars stigs kosn­ingar, eins og sveita- og for­seta­kosn­ingar, en þær þyki ekki eins merki­legar og fyrsta stigs kosn­ingar. Eva bætir við að það sé á ein­hvern hátt eðli­legt.

Er að verða kynslóðabreyting?

Hún segir að ef litið sé á rann­sóknir sem gerðar hafa verið um kosn­inga­þátt­töku þá megi sjá að ungt fólk taki síður þátt. Það komi inn eftir 25 ára ald­ur­inn. Hún bendir á að þetta megi sjá úti um allan heim.

Stundum verður kyn­slóða­breyt­ing í kosn­inga­þát­töku, að sögn Evu. Þá komi fólk ekki aftur inn eftir 25 ára ald­ur­inn heldur hald­ist dræm þátt­taka hjá sömu kyn­slóð. Þátt­takan hald­ist þannig við kyn­slóð­ina en ekki við ævi­skeiðið sjálft. Hún segir að núna séu vís­bend­ingar um að á Íslandi séu slíkar breyt­ingar að eiga sér stað. Það sé þó mjög erfitt að spá fyrir um það og að tím­inn og fleiri kosn­ingar verði að leiða það í ljós.

Ungt fólk hefur áhuga á stjórnmálum

Eva segir afdrátta­laust að unga fólkið hafi jafn mik­inn áhuga á stjórn­málum og eldra fólk. Og kann­anir sýni að ungt fólk í dag hefur jafn mik­inn áhuga og ungt fólk fyrir 30 árum. Þannig að ekki sé hægt að kenna áhuga­leysi um dræma kosn­inga­þátt­töku. Ástæð­urnar séu marg­þættar og liggi í öðrum þáttum.

Verður að koma ungu fólki á kjörstað sem fyrst

Engin ein lausn virð­ist vera til að fá ungt fólk á kjör­stað. Eva bendir á að oft hefur átak verið sett af stað út um allan heim. Hún telur að lang­best sé að koma ungu fólki á kjör­stað sem fyrst, þannig að það kom­ist í vana.

En hvað á að segja við unga fólkið í aðdrag­anda kosn­inga? „Það verður að haga mál­flutn­ingi með þeim hætti að það sé aug­ljóst að hann höfði til þeirra,“ segir Eva. Hún segir einnig að kosn­inga­próf virð­ist virka vel, sér­stak­lega fyrir ungt fólk, að senda út kosn­inga­leiki og að minna fólk á að kjósa.

Traust skiptir máli hjá yngra fólki

Samkvæmt rann­sóknum hefur traust á stjórn­málum mikil áhrif á kosn­inga­þátt­töku hjá ungu fólki. Eva segir að þetta traust skipti ekki máli fyrir 75 ára og eldri enda sé það lík­leg­ast vant því að kjósa. Þetta eigi ekki við um unga fólkið. Hún segir um unga fólkið að það kjósi síður ef það beri ekki traust til stjórn­mála­manna. Einnig telur hún að allt sem ger­ist í sam­fé­lag­inu hafi meiri áhrif á ungt fólk, hvort sem það er hvetj­andi eða letj­andi.

Kannski ekkert sjálfsagt að kjósa

Ólafur Páll segir að margir hafi spurt sig þeirrar spurn­ingar síð­ustu ár og jafn­vel ára­tugi af hverju kosn­inga­þátt­taka hjá ungu fólki sé dræm. En þegar svona sé spurt sé eins og fólk gefi sér að það sé sjálf­sagt að kjósa. Kannski sé ekk­ert sjálf­sagt að kjósa og þá ættum við ef til vill að snúa þessu við og spyrja hvers vegna kosn­inga­þátt­taka sé í raun jafn mikil og hún er. „Í öllu falli þá virð­ist mér ekki að ungt fólk sé áhuga­laust um stjórn­mál eða sam­fé­lags­mál yfir­leitt. Þetta sjáum við á mjög grósku­mik­illi lýð­ræð­is­legri þátt­töku ungs fólks allt niður í grunn­skóla og leik­skóla,“ segir hann og tekur í sama streng og Eva varð­andi áhuga ungs fólks á stjórn­málum.

Ólafur Páll telur að þessi áhugi birt­ist með marg­vís­legum hætti. „Þegar ég var ung­lingur í grunn­skóla þá held ég að við höfum ekki verið sér­lega póli­tísk. Og mér heyr­ist á jafn­öldrum mínum að það sama eigi yfir­leitt við um þá,“ segir hann. En núna séu krakk­arnir póli­tískir. Það birt­ist í því að stofnuð eru femínista­fé­lög í skól­unum, krakkar ger­ast græn­metisætur og koma jafn­vel for­eldrum sínum upp á slíkt fæði. Hann segir að ungt fólk sé virkt í mann­rétt­inda­bar­áttu, til dæmis hjá Amnesty International og UNICEF, það taki þátt í bar­áttu fyrir bættu umhverfi og verndun nátt­úr­unnar og þannig mætti lengi telja. Almennar kosn­ingar til Alþingis full­nægi ekki þessum krafti og telur hann að hugs­an­lega sé ungt fólk bara komið á undan kerf­inu.

Hvers vegna að kjósa?

Ólafur Páll telur að að margt ungt fólk sem tekur virkan þátt í lýð­ræð­is­legu starfi sjái hin hefð­bundnu stjórn­mál ekki sem aðlað­andi vett­vang – jafn­vel ekki sem vett­vang sem skiptir máli. „Og ég skil þetta vel. Ég get vel ímyndað mér að margt ungt fólk – og ekki bara ungt – hugsi eitt­hvað á þessa leið: „Hvers vegna skyldi ég fara á kjör­stað á fjög­urra ára fresti til að setja kross við ein­hver lista­bók­staf, þegar þing­menn og rík­is­stjórn hlusta ekki á raddir almenn­ings. Og hvers vegna skyldi ég kjósa til Alþingis þegar hið raun­veru­lega vald virð­ist vera ann­ars staðar, til dæmis hjá stór­fyr­ir­tækjum, útgerðum og kannski innsta kjarna stjórn­mála­flokka“.“

Sann­leik­ur­inn sé sá að það eru margar ástæður til að hafa lít­inn áhuga á hefð­bundnum stjórn­málum. Það séu vit­an­lega líka margar ástæður til að hafa mik­inn áhuga á hefð­bundnum stjórn­málum en þær vegi ekki endi­lega þyngra í hugum fólks. „Og þetta kjör­tíma­bil sem nú er að renna sitt skeið hefur ekki bætt ástandið,“ bætir hann við.

Ungt fólk tekur kannski raunverulega afstöðu

Sú stað­reynd að fólk er til­búið að kjósa aðra flokka en það kaus í sein­ustu kosn­ingum er lýð­ræð­is­legt þroska­merki, að mati Ólafs Páls. Það bendi til þess að fólk kjósi eftir að hafa raun­veru­lega tekið afstöðu til flokk­anna. Þetta þýði ekki endi­lega minni tengsl á milli almenn­ings og stjórn­mála­flokka, í raun gæti þetta þýtt nán­ari tengsl. Tengslin væru þá þannig til komin að flokk­arnir yrðu að tala til almenn­ings en gætu ekki gengið að ein­hvers konar „erfða­fylgi“ sem gefnu.

En hann veltir því svo fyrir sér hvernig sam­tal flokka og almenn­ings sé. Ef það sé und­ir­lagt af henti­stefnu og popúl­isma þá sé það mjög baga­legt. Hann telur líka að fjöl­miðl­arnir gegni mik­il­vægu hlut­verki í að leyfa stjórn­mála­mönnum ekki að kom­ast upp með slíkt hátta­lag. Það sé kannski mik­il­væg­asta hlut­verk fjöl­miðla.

Af hverju að treysta?

„Ég held að traust hafi mikil áhrif,“ segir Ólafur Páll. Hann telur að traustið þurfi að vera með tvennum hætti. Í fyrra lagi þurfi að vera hægt að treysta stjórn­mála­mönnum til að vinna af heil­indum. Þær upp­lýs­ingar sem birt­ust í Panama-skjöl­unum sýni svart á hvítu að mörgum stjórn­mála­mönnum sé alls ekki treystandi. Enn fremur segir hann að því miður virð­ist þeir sem halda um valdataumana ekki skilja þetta. Í öllu falli sé ekk­ert gert til að efla traustið.

Í öðru lagi telur hann að það sé ekki síður mik­il­vægt að treysta ungu fólki. Og ekki bara ungu fólki, heldur fólki almennt. Stundum sé sagt að fólk sé ekki til­búið til að taka ábyrgð. En hans reynsla sé sú að fólk sé einmitt til­búið til að taka ábyrgð þegar því er treyst fyrir hlutum sem því finnst mik­il­vægir og það hefur vit á. Eitt af því sem hafi verið Þrándur í götu stjórn­mál­anna og stjórn­kerf­is­ins er að þar sé of mikið af gömlum körlum sem sitja fastir í sínum sess í full­vissu þess að öðrum sé ekki treystandi. „Við getum til dæmis tekið nýlegt dæmi um þjóð­hags­ráð. Þar sitja fimm karlar – og frá sjón­ar­hóli ungs fólks eru þeir allir mið­aldra,“ segir hann. Ef þetta sé birt­ing­ar­mynd hefð­bund­inna stjórn­mála þá þurfi ekki að útskýra það neitt sér­stak­lega hvers vegna ungt fólk hafi ekki áhuga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár