Hver Íslendingur fengi tæplega 30 þúsund króna hlut í Íslandsbanka

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mælti fyrir því á lands­fundi flokks­ins í dag að fimm pró­sentum af hlutafé í Íslands­banka yrði deilt meðal lands­manna. Þannig fengju tæp­lega 330 þús­und lands­menn hluta­bréf í bank­anum. Sé mið tekið af eigið fé bank­ans, sem er um 187 millj­arðar króna, þá nemur verð­mæti fimm pró­sent hlutar um 9,3 millj­örðum króna. Verðmæti hvers hlutar nemur því ríf­lega 28 þús­und krónum.

„Ég er að tala um það að ríkið ein­fald­lega taki til­tek­inn hlut, fimm pró­sent, og ein­fald­lega afhendi hann lands­mönnum,“ sagði Bjarni í ræðu sinni.

Bjarni fjall­aði um fyr­ir­hug­aða sölu á hlutafé í Lands­bank­anum og um einka­væð­ingu Íslands­banka í sinni. Nú er unnið að sölu um 30 pró­senta hlutar rík­is­ins í Lands­bank­anum en Bjarni stefnir á að bank­inn fari á markað, og kemur fram í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir næsta ár, að ríkið reikni með að fá um 71 millj­arð fyrir hlut­inn.

Bjarni sagði banka­rekstur ekki vera áhættu­lausan, og að það ætti einnig við um sam­fé­lags­banka, en umræða um slíka teg­und banka hefur verið tölu­vert mikil að und­an­förnu, meðal ann­ars innan Fram­sókn­ar­flokks­ins.Hann sagð­ist leggja áherslu á gagn­sæi þegar kæmi að sölu á eign­ar­hlutum í bönk­unum. Þá sagð­ist hann vilja að eign­ar­að­ildin yrði dreifð, vandað yrði til verka.

Íslenska ríkið á í dag 98 pró­sent eign­ar­hlut í Lands­bank­anum, en eigið fé hans nemur um 250 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár