Ráðuneytisstjóri ræddi „rætnar og alvarlegar ásakanir“ við Harald

Guð­mundur Árnason, ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, segir að hann hafi rætt við Harald Bene­dikts­son, þing­mann og nefnd­ar­mann í fjár­laga­nefnd Alþingis, um skýrsl­una um einka­væð­ingu bank­anna hina síð­ari.

Guð­mundur telur að hann sé hátt­setti emb­ætt­is­mað­ur­inn, sem meiri­hluti fjár­laga­nefndar bók­aði í morgun að hefði hótað nefnd­ar­mönnum æru- og eigna­missi eftir útkomu skýrsl­unnar.

Guð­mundur sendi skrif­legt svar til frétta­stofu RÚV um málið. Þar kemur fram að hann hafi átt sam­tal við Harald Bene­dikts­son síð­ast­lið­inn föstu­dag. „Í því sam­tali tjáði ég honum þá skoðun mína og fleiri að ásak­anir í skýrslu sem að sögn nýtur stuðn­ings meiri­hluta nefnd­ar­innar, þar á meðal hans, feli í sér rætnar og alvar­legar ásak­anir á hendur þeim sem komu að samn­ingum milli gömlu og nýju bank­anna af hálfu rík­is­ins. Ég vildi ganga úr skugga um að hann átt­aði sig á alvar­leika slíkra ásak­ana og að við áskildum okkur rétt til að láta reyna á per­sónu­lega ábyrgð þeirra sem slíku héldu fram fyrir dóm­stólum, enda æra okkar og starfs­heiður að veði. Önnur sam­töl hef ég ekki átt við þing­menn um þetta mál. Sé það upp­lifun Haraldar að sam­talið hafi falið í sér hótun af minni hálfu er hann beð­inn afsök­unar á því,“ segir í yfir­lýs­ingu Guð­mundar á vef RÚV.

Skýrslan var afgreidd úr fjár­laga­nefnd í morgun, en hún er ekki lengur sögð skýrsla meiri­hluta fjár­laga­nefndar heldur ein­göngu Vigdísar Hauks­dóttur, for­manns nefnd­ar­innar. Meiri­hluti fjár­laga­nefndar sam­þykkti að vísa skýrsl­unni til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis.

Bókun þing­manna meiri­hlut­ans var einnig lögð fram á fund­inum en hún hljóð­aði svona: „Und­ir­­rit­aðir þing­­menn ít­reka mik­il­vægi þess að stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefnd hrindi af stað rann­­sókn og að leynd á gögn­un­um er varða málið verði aflétt. Þing­menn innan stjórn­ar­meiri­hluta fjár­laga­nefndar hafa fengið beinar hót­anir um æru- og eigna­missi frá hátt­settum emb­ætt­is­manni eftir að skýrslan hafði verið kynnt. Kvörtun vegna þess verður sett í við­eig­andi far­veg. Í ljósi þeirra við­bragða telja und­ir­rit­aðir enn frekar mik­il­vægt að rann­sókn fari fram,“ segir í bókun þeirra.

Þá sagði Val­gerður Gunn­ars­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að nafn umrædds emb­ætt­is­manns yrði gert opin­bert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár