Ætla ekki að skila hlutabótum þrátt fyrir methagnað í fyrra

Alls var rúm 31 milljón í formi hluta­bóta greidd til 148 starfs­manna Húsa­smiðj­unnar í mars og apríl í fyrra. Ekki hefur komið til tals að end­ur­greiða bæt­urnar að sögn for­stjóra en fyr­ir­tækið var rekið með um 900 milljón króna hagn­aði í fyrra fyrir skatta.

Húsasmiðjan rekur byggingavöruverslanir víða um land.
Húsa­smiðjan rekur bygg­inga­vöru­versl­anir víða um land. Mynd: Húsasmiðjan

Þrátt fyrir met­hagnað Húsa­smiðj­unnar í fyrra stendur ekki til að end­ur­greiða þær hluta­bætur sem greiddar voru til starfs­fólks fyr­ir­tæk­is­ins vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. „Nei, það hefur nú ekki komið til tals. Þetta var nátt­úr­lega í mjög stuttan tíma sem við nýttum þetta,“ segir Árni Stef­áns­son, for­stjóri Húsa­smiðj­unnar, í sam­tali við Kjarnann.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um hluta­starfa­leið­ina kemur fram að í mars og apríl í fyrra voru 148 starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins settir á hluta­bætur og námu greiðslur úr opin­berum sjóðum vegna þessa alls rúmri 31 milljón. Þeir fjár­munir verða ekki end­ur­greiddir þrátt fyrir met­hagnað, en líkt og fram kom í við­tali Mark­að­ar­ins við Árna í vik­unni nam hagn­aður Húsa­smiðj­unar í fyrra um 900 millj­ónum króna fyrir skatta.

Spurður að því hvers vegna fyr­ir­tækið ætli ekki að end­ur­greiða hluta­bæt­urnar, líkt og sum fyr­ir­tæki hafa ákveðið að gera, segir Árni að bæt­urnar hafi ekki runnið til fyr­ir­tæk­is­ins heldur til starfs­fólks þess. Þá segir hann upp­hæð­ina vera lága. Að mati Árna hafi mátt taka til­lit til stærðar versl­ana þegar fjölda­tak­mark­anir voru ákveðnar á sínum tíma. Versl­anir Húsa­smiðj­unnar séu stórar en hafi þurft að lúta sömu reglum og minni versl­anir.

Telja sig hafa tekið ábyrga afstöðu

„Við teljum okkur hafa tekið mjög ábyrga afstöðu. Við vorum sett í stöðu sem við vildum alls ekki vera í. Við vorum ósam­mála aðgerðum og okkur þótti allt of grimmt vera farið, að taka ekk­ert til­lit til stærðar. Við vorum í raun og veru sett undir sama hatt og 50 fer­metra verslun í Kringl­unni,“ segir Árni.

Hann nefnir það einnig að hluta­bóta­leiðin hafi verið nýtt á stuttu tíma­bili, frá síð­ari hluta mars í fyrra til síð­ari hluta apríl en á því tíma­bili hafi veltu­tap fyr­ir­tæk­is­ins numið rúmum 200 millj­ónum króna miðað við sama tíma­bil ári fyrr. Árni segir að rekst­ur­inn á fyrsta fjórð­ungi árs­ins 2020 hafi farið hægt af stað, óvissan vegna COVID kom því á slæmum tíma: „Við sáum ekk­ert í krist­alskúl­unni hvað myndi verða.“

Að sögn Árna tók veltan við sér í síð­ari hluta apríl og fyr­ir­tækið því hætt að nýta hluta­starfa­leið­ina í kjöl­farið. „Um leið og veltan tók við sér þá fóru starfs­menn í fullt starfs­hlut­fall og við nýttum þá ekk­ert þessi úrræði í fram­haldi,“ segir Árni.

Eigandi Húsa­smiðj­unnar er danska bygg­inga­vöru­keðjan BYGMA. Árni bendir á að eig­end­urnir hafi ekki greitt sér arð út úr félag­inu á síð­ustu árum heldur hafi hagn­aður lið­inna ára farið í að efla félagið og fjár­festa hér inann­lands.

Úrræðið ekki ætlað stöndugum fyrirtækjum

Rík­is­end­ur­skoðun fjall­aði ítar­lega um hluta­starfa­leið­ina í skýrslu sinni sem kom út í maí í fyrra og áður hefur verið minnst á hér að ofan. Í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar er sagt að af lög­unum og lög­skýr­ing­ar­gögnum hafi mátt ráða að úrræðið hefði ekki verið ætlað stönd­ugum fyr­ir­tækjum.[links]

Í skýrsl­unni segir einnig að nokkuð frjáls­ræði hafi verið á túlkun lag­anna. „Í hópi þeirra aðila sem hafa nýtt sér hluta­starfa­leið­ina eru fyr­ir­tæki og fyr­ir­tækja­sam­stæður sem búa að öfl­ugum rekstri og traustum efna­hag en ekki verður séð af lög­unum og lög­skýr­ing­ar­gögnum að slíkt hafi verið ætl­unin,“ segir meðal ann­ars í skýrsl­unni. Þar kom einnig fram að sum fyr­ir­tæki hefðu boðað end­ur­greiðslu á hluta­bótum.

Í apríl síð­ast­liðnum óskaði Kjarninn eftir gögnum frá Vinnu­mála­stofnun um umfang end­ur­greiðslna hluta­bóta. Í minn­is­blaði Vinnu­mála­stofn­unar sem dag­sett er 23. apríl kemur fram að þá höfðu alls 88 fyr­ir­tæki end­ur­greitt hluta­bætur og að heild­ar­fjár­hæð end­ur­greiðslna næmi tæpum 380 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár