Fyrirtæki hafa endurgreitt 380 milljónir vegna hlutastarfaleiðarinnar

Alls hafa 88 fyr­ir­tæki end­ur­greitt hluta­bætur sem greiddar voru til 1.834 launa­manna. Hluta­starfa­leiðin er umfangs­mesta efna­hags­lega úrræði stjórn­valda vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins en alls hafa 28 millj­arðar verið greiddir í hluta­bætur.

Tæplega 380 millj­ónir króna hafa verið end­ur­greiddar til vinnu­mála­stofn­unar vegna hluta­starfa­leið­ar­innar. Alls hafa 88 fyr­ir­tæki end­ur­greitt hluta­bætur sem greiddar voru til 1.834 launa­manna. Fyr­ir­tækin sem hafa end­ur­greitt hluta­bætur hafa því að með­al­tali greitt 4,3 millj­ónir króna til Vinnu­mála­stofn­unar og með­al­tal á hvern launa­mann sem búið er að end­ur­greiða fyrir er 206 þús­und krónur.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði frá Vinnu­mála­stofnun en Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum um heild­ar­um­fang end­ur­greiðslna þeirra fyr­ir­tækja sem ákveðið hafa að end­ur­greiða hluta­bætur. Fram kemur í svari Unnar Sverr­is­dóttur, for­stjóra Vinnu­mála­stofn­unar, við fyr­ir­spurn Kjarnans stofn­unin hafi ekki heim­ildir til að leggja mat á þörf ein­stakra fyr­ir­tækja fyrir þátt­töku í hluta­starfa­leið­inni. Fyr­ir­tækin hafi sjálf metið þetta og eftir atvikum end­ur­greitt þær hluta­bætur sem greiddar voru til starfs­manna hafi nið­ur­staðan verið sú að fyr­ir­tækin hafi ekki þurft á stuðn­ingnum að halda.

Rúmir 28 milljarðar hafa verið greiddir í hlutabætur

Hluta­starfa­leiðin er umfangs­mesta úrræði stjórn­valda vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Í nýrri skýrslu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu kemur fram að hingað til hafa rúm­lega 28 millj­arðar króna verið greiddir í hluta­bætur. Úrræðið rennur sitt skeið á enda í lok maí 2021 og gert er ráð fyrir að heild­ar­kostn­aður vegna úrræð­is­ins muni nema 30 millj­örðum króna.

Frá síð­asta sumri hafa að með­al­tali um 4.350 ein­stak­lingar fengið greiddar hluta­bætur í hverjum mán­uði. Alls hafa 36 þús­und ein­stak­lingar fengið hluta­bætur á gild­is­tíma úrræð­is­ins. Í mars síð­ast­liðnum fengu 4.186 ein­stak­lingar greiðslur úr opin­berum sjóðum vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls.

Lögin túlkuð nokkuð frjálslega

Rík­is­end­ur­skoðun fjall­aði ítar­lega um hluta­starfa­leið­ina í skýrslu sem stofn­unin sendi frá sér í maí á síð­asta ári. Í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar er sagt að af lög­unum og lög­skýr­ing­ar­gögnum hafi mátt ráða að úrræðið hefði ekki verið ætlað stönd­ugum fyr­ir­tækjum.

„Það hefur þó komið í ljós að þrátt fyrir áherslu stjórn­valda um að hluta­starfa­leiðin væri stuðn­ingur við líf­væn­leg fyr­ir­tæki sem misst hefðu miklar tekjur virð­ist að nokkuð frjáls­ræði hafi verið á túlkun lag­anna. Í hópi þeirra aðila sem hafa nýtt sér hluta­starfa­leið­ina eru fyr­ir­tæki og fyr­ir­tækja­sam­stæður sem búa að öfl­ugum rekstri og traustum efna­hag en ekki verður séð af lög­unum og lög­skýr­ing­ar­gögnum að slíkt hafi verið ætl­unin. Nokkur fyr­ir­tæki hafa til­kynnt um að horfið verði frá nýt­ingu hluta­starfa­leiðar og önnur boðað end­ur­greiðslu á fram­lagi Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs.“

Þá var það einnig sagt vekja athygli að sveit­ar­fé­lög og opin­berir aðilar hafi nýtt sér úrræðið.

Fækkaði í hópnum með hertum skilyrðum

Þegar skýrslan var skrifuð var úrræðið en nokkuð opið og hert skil­yrði fyrir nýt­ingu hluta­starfa­leiðar fyr­ir­huguð. Skil­yrðin voru í kjöl­farið hert og gerð var rík­ari krafa um tekju­skerð­ingu auk þess sem girt var fyrir það að vinnu­veit­endur gætu greitt sér arð, lækkað hlutafé, greitt óum­samda kaupauka eða keypt eigin bréf fyrr en í fyrsta lagi í júní 2023. [links]

Rík­is­end­ur­skoðun sendi frá sér aðra skýrslu í des­em­ber á síð­asta ári um vinnu­mark­aðs­að­gerðir á tímum kór­ónu­veiru. Í þeirri skýrslu er nið­ur­stöðum skýrsl­unnar um hluta­starfa­leið­ina fylgt eftir. Í kafl­anum um hluta­starfa­leið­ina í þeirri skýrslu kemur fram að í júní fækk­aði launa­mönnum á hluta­starfa­leið um 60 pró­sent á milli mán­aða. Hertari reglur skýra þessa fækkun að ein­hverju leyti.

“Skýr­ing­una má að hluta til rekja til hert­ari reglna um skil­yrði sem fyr­ir­tæki þurftu að upp­fylla til að starfs­fólk þess gæti nýtt sér hluta­starfa­leið­ina. Einnig var kynnt nýtt úrræði um greiðslu launa á upp­sagn­ar­fresti sem hafði m.a. þau áhrif að ein­hverjum launa­mönnum á hluta­starfa­leið­inni var sagt upp. Þá má benda á að atvinnu­lífið og þá sér­stak­lega ferða­þjón­ustan tók við sér með auknum ferða­lögum Íslend­inga inn­an­lands í júlí og ágúst. Því fækk­aði þeim rekstr­ar­að­ilum sem settu starfs­fólk sitt í hluta­störf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár