Settu 131 starfsmann á hlutabætur og greiða nú 100 milljónir í arð

Greiðslur vegna hluta­bóta til starfs­manna Toyota í Kauptúni námu 26 millj­ónum króna í fyrra. Stjórn­ar­for­maður segir fyr­ir­tækið ekki geta end­ur­greitt fjár­muni sem það fékk ekki – greiðsl­urnar hafi borist starfs­mönnum en ekki fyr­ir­tæk­inu.

Sala nýrra bíla hjá Toyota dróst saman á árinu 2020 en sala notaðra bíla jókst í fyrrasumar. Áhrif af heimsfaraldri kórónuveiru voru mun minni á rekstur félagsins en gera mátti ráð fyrir, samkvæmt ársskýrslu.
Sala nýrra bíla hjá Toyota dróst saman á árinu 2020 en sala not­aðra bíla jókst í fyrra­sumar. Áhrif af heims­far­aldri kór­ónu­veiru voru mun minni á rekstur félags­ins en gera mátti ráð fyrir, sam­kvæmt árs­skýrslu. Mynd: EPA

Stjórn TK bíla, sem á og rekur Toyota í Kauptúni, leggur til að 100 millj­ónir króna verði greiddar í arð til hlut­hafa á árinu 2021 fyrir rekstr­ar­árið 2020 en félagið hagn­að­ist um 96,2 millj­ónir króna á því ári. Félagið er í jafnri eigu Úlfars Stein­dórs­sonar og Krist­jáns Þor­bergs­sonar í gegnum félög í þeirra eigu en Úlfar er stjórn­ar­for­maður félags­ins.

Við upp­haf kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins í fyrra fór 131 starfs­maður Toyota í Kauptúni í minnkað starfs­hlut­fall og þáði í kjöl­farið hluta­bætur frá Vinnu­mála­stofnun. Alls voru rúm­lega 26 millj­ónir greiddar í hluta­bætur til starfs­manna Toyota í Kauptúni í mars og apríl í fyrra, sam­kvæmt skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um hluta­starfa­leið­ina sem kom út í maí í fyrra.

Í skýrslu stjórnar í árs­reikn­ingi félags­ins segir: „Áhrif af Covid-19 heims­far­aldri var mun minni á rekstur félags­ins en gera mátti ráð fyrir í upp­hafi far­ald­urs­ins, eins og sjá má af afkomu árs­ins. Í upp­hafi far­ald­urs­ins nýtti félagið að hluta þau úrræði stjórn­valda sem í boði voru, auk þess nýtti félagið að hluta fryst­ingu á afborg­unum lána í sex mán­uði. Sala nýrra bíla dróst saman á árinu, en um sum­arið varð aukn­ing á sölu not­aðra bíla og sú stað­reynd ásamt aðgerðum til að draga úr rekstr­ar­kostn­aði hefur skilað betri rekstr­ar­nið­ur­stöðu en árið áður.“

Greiðslur bárust starfsmönnum en ekki félaginu

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn til Toyota í Kauptúni og spurði hvort komið hafi til tals að end­ur­greiða þær hluta­bætur sem starfs­fólk félags­ins þáði úr opin­berum sjóðum. Í skrif­legu svari frá Úlfari Stein­dórs­syni segir að í upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hafi ríkt mikil óvissa um fram­vindu. „Fram­vinda sem snéri að því hvort að fyr­ir­tækjum þyrfti að loka að hluta eða öllu leyti.“

Hann segir rík­is­stjórn­ina hafa hvatt fyr­ir­tæki til að setja starfs­fólk á hluta­bóta­leið­ina til að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi og að úrræðið hafi falið í sér að fólk var sett í hluta­starf í stað þess að vera sagt upp. Hjá Toyota í Kauptúni hafi hluti þess starfs­fólks sem lækk­aði í starfs­hlut­falli verið í 50 pró­sent starfi og hluti í 75 pró­sent starfi. [links]

„Tk bílar greiddu þessu fólki laun í sam­ræmi við það hlut­fall sem það mætti til vinnu. Þetta fólk fékk síðan bætur frá Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði að ákveðnu marki,“ segir Úlfar. Sjóð­ur­inn sé fjár­magn­aður með trygg­inga­gjaldi sem greiddur er af fyr­ir­tækjum. Samkvæmt Úlfari hafi félagið greitt vel á fjórða hund­rað millj­ónir í trygg­inga­gjald á síð­ustu fimm árum.

Úlfar segir að félagið geti ekki greitt til baka fjár­muni sem það aldrei fékk. „Að þessu sögðu, þá skil ég ekki hvernig við eigum að end­ur­greiða eitt­hvað sem að starfs­fólkið okkar fékk greitt frá Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði. Tk bílar fékk enga greiðslu til sín og varð að sjálf­sögðu af miklum tekjum þar sem að stór hluti starf­sem­innar er þjón­usta sem að felur í sér útselda vinnu.“

Um leið og létt var á sam­komu­tak­mörk­unum í maí fóru allir aftur í fullt starf og hafa verið síðan segir í svari Úlfars.

Nýting úrræðisins minnkaði með hertari skilyrðum

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um segir í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar að hluta­bóta­leiðin hafi verið frekar opið úrræði þegar það var sett á lagg­irnar. Skilyrði fyrir nýt­ingu úrræð­is­ins voru hert þegar úrræðið var fram­lengt og rík­ari krafa var gerð um tekju­skerð­ingu fyr­ir­tækja auk þess sem girt var fyrir það að vinnu­veit­endur gætu greitt sér arð, lækkað hlutafé, greitt óum­samda kaupauka eða keypt eigin bréf þangað til árið 2023.

Í síð­ari skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar sem kom út í des­em­ber kom fram að nýt­ing hluta­starfa­leið­ar­innar hafi minnkað um 60% á milli maí og júní eftir að skil­yrði fyrir nýt­ingu voru hert. Skýr­ing­una mátti að hluta til rekja til hert­ari reglna, að hluta til vegna nýs úrræðis um greiðslu launa á upp­sagn­ar­fresti og að hluta til vegna þess að hjólin fóru að snú­ast í atvinnu­líf­inu af aðeins meiri hraða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár