Danir sitja í flóttamannasúpunni

Öll spjót standa nú á dönsku rík­is­stjórn­inni vegna mál­efna flótta­fólks. Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur harð­lega gagn­rýnt yfir­lýs­ingar danskra ráð­herra um að flótta­fólki verði gert skylt að afhenda verð­mæti, til dæmis pen­inga og skart­gripi við kom­una til Dan­merkur. Svíar hafa gert Dönum skylt að skoða skil­ríki allra sem fara yfir sundið, Þjóð­verjar neita allri sam­vinnu um landamæra­eft­ir­lit, Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn vill strang­ari landamæra­gæslu og lög­reglan seg­ist ekki geta annað eft­ir­lit­inu með full­nægj­andi hætti vegna mann­eklu.

Demantar, perlur og skírasta gull

Um miðjan nóv­em­ber kynnti Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur laga­frum­varp dönsku stjórn­ar­innar sem miðar að því að draga úr straumi flótta­fólks til Dan­merkur. Áætlun stjórn­ar­innar var í 34 liðum, mesta athygli vakti að lög­reglu og toll­gæslu yrði heim­ilt að leggja hald á verð­mæti, til dæmis dem­anta, gull og reiðufé umfram þrjú þús­und krónur danskar(ca 60 þús­und íslenskar), sem flótta­fólk hefði í fórum sínum við kom­una til Dan­merkur. Fjöl­miðlar víða um heim hentu þetta á lofti og töl­uðu um mann­vonsku og útlend­inga­hatur Dana. Spurt var hvort til stæði að rífa gull­fyll­ingar úr tönnum flótta­fólks og jafn­vel vitnað til síð­ari heims­styrj­aldar í því sam­bandi. Ráð­herrar,einkum Inger Stöjberg ráð­herra inn­flytj­enda­mála, reyndu að útskýra að regl­urnar væru þær sömu og gildi um Dani en allar voru þær útskýr­ingar klaufa­legar og urðu ekki til að lægja gagn­rýn­is­öld­urnar.

Stjórnin hefur síðan dregið nokkuð í land með hug­myndir sínar í þessum efnum enda talið mjög vafa­samt, eða jafn­vel úti­lokað, að frum­varpið um eigna­upp­töku verði sam­þykkt í þing­inu. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn gagn­rýnir hins­vegar stjórn­ina og vill halda fast við upp­haf­legu til­lög­una um eigna­upp­töku. Dönsku fjöl­miðl­arnir hafa flestir fjallað ítar­lega um þetta „dem­anta­mál”, eins og það er kallað, og nú fyrir helg­ina var greint frá gagn­rýni Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna vegna hug­mynda dönsku rík­is­stjórn­ar­innar. Yfir­maður Evr­ópu­skrif­stofu Flótta­manna­stofn­un­ar­innar segir fyr­ir­ætl­anir dönsku stjórn­ar­innar eins­dæmi og hvetur til að allar hug­myndir um eigna­upp­töku verði dregnar til baka. Frum­varpið kemur vænt­an­lega til kasta þings­ins síðar í þessum mán­uði.

Svíar og landamæragæslan

Eins og mikið hefur verið fjallað um í fjöl­miðlum ákváðu sænsk stjórn­völd að taka upp strangt eft­ir­lit og skil­ríkja­skoðun á landa­mærum Dan­merkur og Sví­þjóðar. Skil­ríkja­skoð­unin getur ekki farið fram á landa­mær­unum sjálfum því þau liggja úti á miðju Eyr­ar­sundi og á Eyr­ar­sunds­brúnni er til dæmis engin aðstaða til slíkrar skoð­unar. Svíar beittu ákvæði Schengen sam­komu­lags­ins (flytj­anda­á­byrgð) sem skyldar fyr­ir­tæki sem ann­ast far­þega­flutn­inga milli landa að skoða skil­ríki far­þega við brott­för úr einu landi til ann­ars. Þessi skil­ríkja­skoðun fer fram á Kastrup hjá þeim far­þegum sem ætla til Sví­þjóðar með lest og í dönskum ferju­höfnum eins og til dæmis Hels­ingja­eyri. Danir bera því kostn­að­inn, sem er ærinn, af þessu eft­ir­liti. Svíar eru mjög ósáttir við að Danir hleyptu lengi vel öllu flótta­fólki áfram til Sví­þjóðar og þótt allt sé að mestu slétt og fellt á yfir­borð­inu eru sam­skipti þjóð­anna „við frost­mark” eins og það er svo kurt­eis­lega orðað.

Hvað gerir skilríkjalausa fólkið?

Eft­ir­litið á Kastrup hófst sl. mánu­dag 4. jan­úar. Þann dag og dag­inn eftir kom þangað tals­verður fjöldi skil­ríkja­lausra flótta­manna sem var snúið við. Fljótt flýgur fiski­sagan og nú eru það nær ein­göngu skil­ríkja­lausir Svíar og Danir sem ekki kom­ast leiðar sinnar, flótta­fólkið veit að ekki þýðir að reyna slíkt án skil­ríkja. Þá vaknar spurn­ingin hvað verður um þetta fólk. Í raun veit það eng­inn með vissu, ein­hverjir eru sjálf­sagt á hálf­gerðum flæk­ingi án þess að vita hvað tekur við. Þeir eru þó lík­lega fleiri sem leita ann­arra lausna. Og hverjar gætu þær verið? Á Eyr­ar­sunds­strönd Dan­merkur eru fjöl­margar (skipta tugum) smá­báta­hafnir og þús­undir smá­báta að mestu bundnir við bryggju á þessum árs­tíma.

Enginn fylgist með öllum þessum fleytum, eig­endum og umráða­mönnum er í sjálfs­vald sett að halda til hafs, þegar og ef þeim sýn­ist. Und­an­farna daga hafa dönsku fjöl­miðl­arnir birt við­töl við báta­eig­endur, jafn­vel undir nafni, sem segj­ast með glöðu geði ferja fólk yfir sundið. Það sé bein­línis borg­ara­leg skylda að hjálpa fólki í neyð. „Nauðsyn brýtur lög” sagði einn við­mæl­andi Danska útvarps­ins, DR. Svíar hafa til­kynnt að þeir muni auka eft­ir­lit á Eyr­ar­sundi en það veldur smá­báta­eig­endum ekki áhyggjum. „Það er ekki bannað að sigla með fólk um Eyr­ar­sund og hefur sænska strand­gæslan heim­ild til að krefj­ast skil­ríkja af mér og vinum mínum? Ég held ekki” sagði áður­nefndur við­mæl­andi DR.

Danir feta í fótspor Svía

Nokkrum klukku­stundum eftir að skil­ríkja­skoð­unin var tekin upp við landa­mæri Sví­þjóðar og Dan­merkur tikynnti danska rík­is­stjórnin að Danir sæju sig knúna til að gera slíkt hið sama, á landa­mærum Dan­merkur og Þýska­lands. „Við gerum þetta af illri nauð­syn” sagði Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra við frétta­menn. Landa­mæri Þýska­lands og Dan­merkur eru sjö­tíu kíló­metra löng og þar eru þrettán landamæra­stöðvar, sem segja má að séu að mestu leyti arfur frá gam­alli tíð og flestar þeirra hafa verið ómann­aðar um ára­bil. Auk þess eru þar ótal stígar og minni vegir. Fjöldi Dana sækir dag­lega vinnu yfir landa­mærin og sömu sögu er að segja um Þjóð­verja sem vinna Dan­merk­ur­megin. Járn­brautin sem tengir löndin tvö liggur um Padborg og þar, ásamt bænum Flens­borg, er mið­stöð toll­af­greiðslu flutn­inga­bíla sem fara um landa­mærin, hund­ruðum eða þús­undum saman á degi hverjum.

Sú ákvörðun Dana að taka upp skil­ríkja­skoðun á landa­mær­unum er ekki auð­leyst verk­efni. Í dönskum fjöl­miðlum hefur komið fram að landamæra­eft­ir­litið er ein­ungis á stærstu stöðv­unum, þar sem almenn­ings­sam­göngur liggja um og þarf um það bil tvö­hund­ruð lög­reglu­menn til að sinna eft­ir­lit­inu hverju sinni, miðað við þrí­skiptar vaktir þýðir það sam­tals um sex hund­ruð manns. Lög­reglu­þjónar víðs­vegar úr Danmörku hafa verið sendir til starfa við landa­mærin og rætt hefur verið um að her­inn verði lög­regl­unni til aðstoðar og sendi allt að fjögur hund­ruð her­menn að landa­mær­unum. Rík­is­stjórnin miðar eft­ir­litið við tíu daga en fast­lega er gert ráð fyrir að það standi lengur.

Þjóðverjar yppa öxlum

Kostn­að­ur­inn við eft­ir­litið er mik­ill og Danir hafa farið fram á það við Þjóð­verja að þeir taki að sér skil­ríkja­skoðun í lestum og far­þeg­ar­útum, vís­uðu til Schengen ákvæð­is­ins um flytj­anda­á­byrgð. Þjóð­verjar hafa ekki opin­ber­lega svarað þessu erindi Dana en tals­menn þýsku járn­braut­anna hafa sagt, í fjöl­miðlum, að þeir taki þetta ekki að sér, frekar muni þeir leggja af lest­ar­sam­göngur yfir landa­mærin. Einn tals­maður járn­braut­anna sagði að útgjöld Þjóð­verja vegna flótta­fólks­ins væru gríð­ar­leg og þeir ætli ekki að taka að sér landamæra­gæslu fyrir Dani.

Framhaldið

Tæp vika er nú liðin síðan landamæra­eft­ir­litið hófst. Engin leið er að segja til um hvernig fram­haldið verður. Danska dóms­mála­ráðu­neytið birtir dag­lega tölur um fjölda þeirra sem fara um landa­mærin og nýj­ustu tölur benda til að þeim fari ört fækk­andi sem vilja kom­ast frá Þýska­landi til Dan­merkur. Í sam­tali við blaða­mann Jót­land­s­pósts­ins, Þýska­lands­megin við landa­mærin, sagði skil­ríkja­laus sýr­lensk fjöl­skylda ætla að sækja um hæli í Þýska­landi fyrst úti­lokað væri að kom­ast til Dan­merkur og áfram norður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár