Þétt dagskrá hjá Sigmundi í Líbanon

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra er nú staddur í Líbanon að kynna sér aðstæður flótta­manna. Aðstoð­ar­maður hans segir dag­skránna þétta. Sig­mundur Davíð sendi snap í gær sem hefur vakið umtal á sam­fé­lags­miðlum.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur verið í Líbanon í tvo daga að kynna sér aðstæður flótta­manna í land­inu. Dag­skráin hefur verið þétt síðan í gær­morgun, að sögn Jóhann­esar Þórs Skúla­sonar, aðstoð­ar­manns hans. Hann heldur svo til London í fyrra­málið.

Í gær hitti Sig­mundur Davíð fram­kvæmda­stjóra líbanska Rauða kross­ins og heim­sótti eins konar heilsu­gæslu á hjólum, sem er verk­efni sem Rauði kross­inn á Íslandi hefur tekið þátt í. Þá fund­aði hann með for­sæt­is­ráð­herra Líbanon og for­seta þings­ins. Eftir það fór hann í flótta­manna­búðir fyrir Palest­ínu­flótta­menn sem reknar eru af Palest­ínu­flótta­manna­að­stoð Sam­ein­uðu þjóð­anna.

[adspot]

Umdeilt snapp

For­sæt­is­ráð­herra hefur verið virkur á Snapchat und­an­farið og í seinni­part­inn í gær sendi hann snapp af raf­línum sem eru væg­ast sagt illa frá­gengnar. Sig­mundur Davíð sló á létta strengi í snapp­inu og skrif­aði: „Lofaði að skila því að það vantar raf­virkja til Shatila.”

Myndin hefur vakið nokkuð hörð við­brögð á sam­fé­lags­miðlum í morgun þar sem for­sæt­is­ráð­herra er sak­aður af nokkrum, sér­stak­lega stjórn­ar­and­stöðu­fólki, um ósmekk­leg­heit og takt­leysi.

Fundar í London á morgun

Í morgun heim­sótti Sig­mundur Davíð Flótta­manna­stofnun SÞ og fékk kynn­ingu hjá þeim. Að því loknu skoð­aði hann flótta­manna­búðir fyrir sýr­lenska flótta­menn, sem eru yfir­fullar. Upp­haf­lega voru þær reistar fyrir þrjú til fjögur þús­und manns, en að sögn stjórn­valda er fjöld­inn nú að nálg­ast 20.000.

Sig­mundur Davíð fer til London í fyrra­málið þar sem hann sækir fund með breskum, þýskum, kúveitskum og norskum full­trúum þar sem flótta­manna­vand­inn verður ræddur. Fund­ur­inn er að sögn Jóhann­esar hald­inn til að kalla eftir fram­lögum til aðstoðar í Sýrlandi og til að ræða með hvaða hætti sé hægt að vinna að upp­bygg­ingu á svæð­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár