Hrun í giftingabransanum

Klúður við fram­kvæmd laga sem sett voru til að koma í veg fyrir svokölluð sýnd­ar­brúð­kaup hafa orðið til þess að nokkur sveit­ar­fé­lög í Danmörku hafa orðið fyrir veru­legu tekju­tapi.

Í árs­byrjun 2018 tóku gildi í Danmörku nýjar reglur varð­andi hjóna­vígslur. Reglunum var ætlað að koma í veg fyrir að rík­is­borg­arar landa utan Evr­ópu­sam­bands­ins gætu fengið land­vist­ar­leyfi í aðild­ar­ríkjum ESB, með því að fara „bak­dyra­megin“.

Samkvæmt reglum Evr­ópu­sam­bands­ins þarf fólk sem hyggst ganga í hjóna­band, í löndum sam­bands­ins að upp­fylla ákveðin skil­yrði. Yfirvöld í hverju landi eiga að ganga úr skugga um að þessi skil­yrði séu upp­fyllt. Fólk má ekki vera gift öðrum, við­kom­andi skulu hafa aldur til að mega gift­ast, fólk sé að ganga í hjóna­band af fúsum og frjálsum vilja, ekki sé um að ræða sýnd­ar­hjóna­band o.s.frv. Stjórn­völdum í ESB lönd­unum er í sjálfs­vald sett hvernig þessi „athugun“ á til­von­andi hjónum fer fram. Sum lönd hafa eina stofnun sem tekur á móti öllum umsóknum og ef allt er í lagi getur parið látið pússa sig saman hvar sem er, í við­kom­andi landi.

Í Danmörku var fyr­ir­komu­lagið þannig að sveit­ar­fé­lögin afgreiddu umsókn­irnar. Parið valdi sem sé fyr­ir­fram hvar það hygð­ist láta gifta sig og sótti um á við­kom­andi stað. Á sínum tíma þótti dönskum stjórn­mála­mönnum þetta gott fyr­ir­komu­lag „nóg er nú mið­stýr­ingin samt“ sögðu sumir þing­menn í umræðum. Flokk­arnir á danska þing­inu, Fol­ket­inget, voru sam­mála um að ef leyf­is­veit­ing­arnar væru á hendi sveit­ar­fé­lag­anna gengju þær hraðar fyrir sig.

Mun fleiri giftingar útlendinga í Danmörku

Á und­an­förnum árum hafa gift­ingar, þar sem annar aðil­inn var ESB borg­ari en hinn ekki, verið hlut­falls­lega miklu fleiri í Danmörku en öðrum ESB ríkjum. Í umræðum í þing­inu töldu þing­menn sig vita skýr­ing­una. Það væri ein­fald­lega miklu auð­veld­ara að verða sér úti um „leyfið“ í Danmörku en víð­ast hvar ann­ars staðar. Þess vegna hafi verið mikið um hin svo­nefndu sýnd­ar­brúð­kaup.

Tekjur og vinsælir staðir

Ástæðu þess að til­tölu­lega auð­velt væri að fá gift­ing­ar­leyfi í Danmörku töldu þing­menn aug­ljósa; sveit­ar­fé­lögin hefðu umtals­verðar tekjur af gift­ing­ar­leyfum og brúð­kaupum. Iðulega fjöl­menna ætt­ingjar og vinir til athafn­ar­innar og brúð­kaups­veisl­unnar, sumir koma kannski langt að og vilja gista.

[adspot]Allt þýðir þetta tekjur fyrir við­kom­andi sveit­ar­fé­lag. Engar tölur eru til um fjölda þeirra brúð­kaups­gesta sem komið hafa til Dan­merkur á und­an­förnum árum. Ljóst er hins­vegar að fjöld­inn er umtals­verður.

Fram til 1. jan­úar var leyf­is­gjaldið kr. 870.- danskar (19 þús­und íslenskar). Gjaldið rann til sveit­ar­fé­lags­ins, sem einnig ann­að­ist inn­heimt­una.

Vin­sæl­ustu brúð­kaups­stað­irnir í Danmörku hafa lengi verið, fyrir utan Kaup­manna­höfn, Sønd­er­borg og Tønder á Suður- Jótlandi ásamt eyj­unum Langa­landi og Ærø. Fyrir þrjá síð­ast­nefndu stað­ina hafa tekj­urnar af „túrista­brúð­hjón­unum“ skipt miklu máli.

Kontórinn í Óðinsvéum og sýndarbrúðkaupin

Breyt­ingin sem varð með regl­unum sem tóku gildi 1. jan­úar 2018 var sú að sett var á lagg­irnar sér­stök skrif­stofa í Óðins­véum sem sá um að yfir­fara allar leyf­is­beiðnir í stað sveit­ar­fé­lag­anna. Með því skyldi komið í veg fyrir að sveit­ar­fé­lögin freist­uð­ust til „frjáls­lyndis“ í leyf­is­veit­ingum, sem þýddi meiri tekjur í kass­ann. Sveit­ar­fé­lögin voru flest mjög andsnúin þess­ari breyt­ingu og töldu að ekki væri öruggt að hlut­irnir gengju hratt fyrir sig á nýja kontórnum í Óðins­véum.

Mai Mercadao, þáver­andi barna- og félags­mála­ráð­herra, gaf lítið fyrir þessi rök. Í skýrslu sem unnin var fyrir ráð­herr­ann kom fram að hluti þeirra gift­inga sem fram hafi farið í Danmörku hafi bein­línis verið skipu­lagður af glæpa­sam­tökum. Til­gang­ur­inn sá að konur frá löndum utan ESB kæmust inn í landið og yrðu síðan seldar í vændi. Þegar Mai Mercado ráð­herra kynnti breyt­ing­una, með stofnun skrif­stof­unnar í Óðins­véum, lagði hún mikla áherslu á að upp­ræta „þetta ill­gresi“ eins og hún komst að orði.

Gjald fyrir leyfið hækk­aði í 1600 krónur (34.500.- íslenskar) en var áður 870 krónur, og rennur nú í rík­is­kass­ann.

Seinagangur á kontórnum

Fljót­lega eftir að nýja skrif­stofan í Óðins­véum var opnuð (1. jan 2018) kom í ljós það sem sveit­ar­stjórn­ar­menn höfðu ótt­ast. Sem sé það að afgreiðsla á umsóknum tæki mun lengri tíma en áður. Kvart­anir streymdu inn, erfitt reynd­ist að ná síma­sam­bandi við nýju skrif­stof­una, og þegar svarað var til­kynnti sím­svari, á dönsku, að fólk yrði að bíða á lín­unni. Svo kom í ljós að eng­inn þeirra sem ætlað var að svara fyr­ir­spurnum tal­aði ensku.

Afleið­ing­arnar létu ekki á sér standa; í jan­úar 2018 voru 125 pör gefin saman í Tønder, þau höfðu öll fengið leyfi áður en kerf­inu var breytt, í jan­úar í fyrra (2019) gaf prest­ur­inn í Tønder saman eitt par. Svipaða sögu er að segja frá Langa­landi og Ærø.

Borg­ar­stjórar lýstu þessu sem hruni. Ole Wej Petersen borg­ar­stjóri á Ærø sagði ánægju­legt ef tek­ist hefði að koma í veg fyrir sýnd­ar­brúð­kaup en hins vegar hefði nýja fyr­ir­komu­lagið líka orðið til þess að fólk sem væri að ganga í „alvöru­hjóna­band“ eins og hann orð­aði það hefði hætt við að láta gifta sig í Danmörku. „Það er búið að eyði­leggja brúð­kaups­brans­ann hjá okkur“ sagði borg­ar­stjór­inn.

Hvað er til ráða?

Mai Mercado, fyrr­ver­andi barna-og félags­mála­ráð­herra sagði í við­tali fyrir nokkrum dögum, í danska sjón­varp­inu, að flokk­arnir á þing­inu hefðu svikið gefin lof­orð um að hjálpa brúð­kaups­brans­anum (bryllups­industrien). Úr því yrði að bæta með ein­hverjum ráðum. Hún kvaðst mjög ánægð með ef tek­ist hefði að upp­ræta sýnd­ar­hjóna­böndin en ætl­unin með nýju stofn­un­inni í Óðins­véum hefði ekki verið að fæla „heið­ar­legt fólk“ frá því að koma til Dan­merkur til að láta gefa sig saman.

Danskir þing­menn ræða nú leiðir til að greiða úr klúðr­inu. Ein hug­mynd sem fram hefur komið er sú að færa leyf­is­veit­ing­arnar að ein­hverju leyti til baka til sveit­ar­fé­lag­anna. Það myndi stytta bið­ina eftir afgreiðslu umsókna, sem þing­menn eru sam­mála um að sé í dag allt of langur.

Borg­ar­stjór­inn á Ærø sagð­ist vona að breyt­ingar, hverjar sem þær verði, hleypi á ný lífi í brúð­kaups­brans­ann. „Bakarinn sagði mér að hann væri næstum búinn að gleyma hvernig ætti að baka brúð­kaup­stertu. Ég sagði honum að dusta hveitið af upp­skrift­inni“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hjónaband

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár