Staðan breytist hratt – BBC lýsti yfir sigri Íslands gegn veirunni á mánudagskvöld

Í frétta­skýr­ingu BBC á mánu­dags­kvöld var fyrir yfir það hvernig Íslandi hefði tek­ist að berja veiruna niður á ný og hvernig kom­ist hefði verið í veg fyrir útbreiðslu breska afbrigð­is­ins inn­an­lands. Skjótt skip­ast veður í lofti.

Það má með sanni segja að umfjöllun BBC, undir fyrirsögn sem gæti útlagst sem „Hvernig Ísland stemmdi stigu við og hafði betur gegn veirunni“ á íslensku, hafi komið fram á óheppilegum tíma.
Það má með sanni segja að umfjöllun BBC, undir fyr­ir­sögn sem gæti útlagst sem „Hvernig Ísland stemmdi stigu við og hafði betur gegn veirunni“ á íslensku, hafi komið fram á óheppi­legum tíma. Mynd: EPA

Á mánu­dags­kvöld birt­ist frétta­skýr­ing á vef breska rík­is­út­varps­ins BBC þar sem farið var yfir hvernig Íslandi hefði tek­ist að slá kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn niður og verða á ný nær smit­laust land. Í gær greindust svo 17 kór­ónu­veirusmit inn­an­lands, lík­lega flest af hinu bráðsmit­andi B117-afbrigði veirunnar, sem fyrst fannst í Bret­landi.

Rík­is­stjórnin fundar nú um hvort grípa skuli til hertra aðgerða inn­an­lands til að hefta útbreiðslu veirunnar. Það má því með sanni segja að umfjöllun BBC, undir fyr­ir­sögn sem gæti útlagst sem „Hvernig Ísland stemmdi stigu við og hafði betur gegn veirunni“ á íslensku, hafi komið fram á óheppi­legum tíma.

Í frétta­skýr­ing­unni segir að síðan veiran var „upp­rætt“ úr sam­fé­lag­inu í júní í fyrra hefðu verið sett upp „stál­landa­mæri“ og vísað til þess að allir far­þegar á leið til lands­ins hafi þurft að fara í sótt­kví og und­ir­gang­ast skimanir við kom­una.

Katrín segir veiruna hafa haldið sér vakandi í heilt ár

Í umfjöllun BBC er rætt við Þórólf Guðnason sótt­varna­lækni, Kára Stef­áns­son for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar, Gylfa Þór Þor­steins­son sem stýrir far­sótt­ar­húsi Rauða kross­ins og Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, sem játar fyrir blaða­manni BBC að vera orðin þreytt á veiru­fár­inu, sem hafi haldið henni vak­andi í heilt ár.

„Ég vildi að þessu væri bara öllu lokið og ég gæti farið að tala um stjórn­mál aftur,“ er haft eftir for­sæt­is­ráð­herra.

Í grein­inni er minnst á að hið svo­kall­aða breska afbrigði veirunnar (B117) hafi í fyrsta sinn smit­ast á milli manna inn­an­lands nýlega, en einnig segir frá því að tek­ist hafi að kom­ast fyrir frek­ari útbreiðslu smita. Afbrigðið væri þar af leið­andi ekki að valda sama usla hér á landi og ann­ars staðar í Evrópu.

Ekki virð­ist þó bitið úr nál­inni með það í ljósi tíð­inda dags­ins.

New Yorker lýsti yfir sigri Íslands í júní

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem erlendir miðlar fjalla um „sigra Íslands“ í bar­átt­unni við veiruna skömmu áður en ný bylgja brýst út. Síðasta sumar fjall­aði banda­ríska tíma­ritið New Yorker ítar­lega um hvernig Ísland hefði haft betur gegn kór­ónu­veirunni.

[adspot]

Sú umfjöllun, undir fyr­ir­sögn­inni „Hvernig Ísland sigr­aði kór­ónu­veiruna“ birt­ist þann 1. júní í fyrra og var enn í tölu­verðri dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum á borð við Twitter löngu eftir að næsta bylgja veiru­far­ald­urs­ins náði flugi á Íslandi.

Í umfjöllun BBC er haft er Gylfa Þór hjá Rauða kross­inum að í sumar hafi starfs­menn sótt­varna­húss­ins komið saman og fagnað því að eng­inn væri lengur inniliggj­andi hjá þeim.

Hann sagði að hið sama yrði ekki uppi á ten­ingnum nú, þrátt fyrir að staðan hafi virst góð er blaða­maður BBC ræddi við hann.

„Ekki fleiri COVID-kveðjupartý. Ekki enn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár