Fékk heilaslag en enga björgunarþyrlu

Kona sem fékk heilaslag á Hólmavík síð­ast­lið­inn föstu­dag fékk ekki aðstoð björg­un­ar­þyrlu Land­helg­is­gæslu Íslands vegna þess að tvær vél­anna voru í reglu­bundnu við­haldi og sú þriðja bil­aði óvænt. Málið er ekki eins­dæmi.

Þyrla
Þyrla Gæslan rekur þrjár björg­un­ar­þyrlur. Mark­miðið er að hafa alltaf tvær þeirra til taks en það gengur ekki alltaf vegna reglu­bund­ins við­halds. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Það getur skipt sköpum fyrir fólk sem fær heilaslag að kom­ast hratt undir læknis hendur en afleið­ingar geta verið lífs­hættu­legar. Því varð dóttur konu á Hólmavík illa við á föstu­dag þegar móðir hennar fékk heilaslag og Land­helg­is­gæslan gat ekki ræst út björg­un­ar­þyrlu til þess að koma henni fljótt á Land­spít­ala.

Ástæðan var sú að tvær af þremur björg­un­ar­þyrlum Land­helg­is­gæsl­unnar voru í reglu­bundnu við­haldi og sú eina sem eftir stóð bil­aði á föstu­dag. Því þurfti sjúkra­flutn­inga­fólk á Hólmavík að aka kon­unni til Akraness þar sem annar sjúkra­bíll tók við. Ferðin tók um tvær klukku­stundir.

Þetta er ekki eins­dæmi, stöku sinnum kemur það fyrir að engar björg­un­ar­þyrlur eru til taks hjá Land­helg­is­gæsl­unni en Guð­mundur Birkir Agn­ars­son, aðgerða­stjóri hjá Land­helg­is­gæsl­unni, segir þó að það ger­ist sjaldan.

„Það er kapps­mál hjá okkur að hafa alltaf tvær vélar til taks en við vitum að við höfum þær ekki alltaf,“ segir Guð­mundur Birkir …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár