Pundið fellur eftir ummæli Trump

Ummæli Trump um engan frí­versl­un­ar­samn­ing milli Banda­ríkj­anna og Bret­lands leiddi til mik­illar veik­ingar punds­ins gagn­vart Banda­ríkja­dal í morgun.

Theresa May forsætisráðherra Bretlands og Donald Trump Bandaríkjaforseti
Theresa May for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og Donald Trump Banda­ríkja­for­seti Mynd: EPA

Gengi punds­ins á móti Banda­ríkja­dal hefur fallið um 0,6% í morgun í kjöl­far ummæla Banda­ríkja­for­seta um að nýja Brexit-áætlun Theresu May myndi úti­loka frí­versl­un­ar­samn­ing við Banda­ríkin. Frá þessu er greint á vef The Independent.

Trump lét orðin falla í við­tali við breska blaðið The Sun í gær, en við­talið átti sér stað í miðri opin­berri heim­sókn Banda­ríkja­for­seta til Bret­lands. Í við­tal­inu segir Trump hafa leið­beint May um hvernig Brexit ætti að vera fram­kvæmt, en að hún hafi ekki hlustað á hann.

May kynnti í gær nýjar áætl­anir sínar um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu, en þær miða að frí­versl­un­ar­samn­ingi við sam­bandið í vöru­við­skiptum. Samkvæmt Trump sýna áætlun­irnar of mikla lin­kind og úti­loka frí­versl­un­ar­samn­ing Bret­lands við Banda­ríkin: „Ef þeir gera slíkan samn­ing þyrftum við að eiga við allt Evr­ópu­sam­bandið í stað­inn fyrir að eiga við Bretland, þannig að það myndi lík­lega gera út af við samn­ing­inn.“

Frá því að ummælin voru gerð opin­ber í gær­kvöldi hefur gengi punds á móti Banda­ríkja­dal fallið um 0,6%, en það er mesta lækkun júlí­mán­aðar. Gengi krónu gagn­vart pund­inu hefur einnig styrkst lít­ill­lega frá opnun mark­aða í dag, eða um 0,23%. Á sama tíma hefur gengi Banda­ríkja­dals gagn­vart krónu styrkst um 0,57%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár