Allir komufarþegar eiga að fara í skimun og 4-5 daga sóttkví

Rík­is­stjórnin ákvað á fundi sínum í dag að allir sem til Íslands koma þyrftu frá og með 19. ágúst að fara í skimun á landa­mærum, svo í sótt­kví í 4-5 daga og að því búnu aftur í skimun.

Frá Keflavíkurflugvelli
Frá Kefla­vík­ur­flug­velli Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórnin ákvað á fundi í dag að eigi síðar en frá og með mið­viku­deg­inum 19. ágúst næst­kom­andi verði allir komu­far­þegar skimaðir tvisvar við kom­una til Íslands. Fyrri sýna­taka verður á landa­mærum, að því búnu ber komu­far­þegum að fara í sótt­kví í 4-5 daga þangað til nið­ur­staða er fengin úr seinni sýna­töku. Börn fædd 2005 og síðar þurfa þó ekki að fara í skimun. Þetta kemur fram á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Þessi ákvörðun er sögð „tekin í ljósi þess hvernig veiran hefur þró­ast á heims­vísu og hér innan lands“, en um mikla stefnu­breyt­ingu er að ræða hvað varðar ferða­lög til og frá land­inu. Farið var eftir þeirri leið sem Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir taldi álit­leg­asta frá sjón­ar­miði sótt­varna.[links]

„Tíðni smita vegna Covid-19 fer vax­andi í nágranna­löndum og um allan heim. Þá er enn verið að kljást við hóp­sýk­ingu sem upp hefur komið hér á landi án þess að vitað sé hvernig það afbrigði veirunnar barst inn í landið. Loks liggur fyrir að sótt­varna­læknir telur þessa leið áhrifa­rík­asta frá sótt­varna­sjón­ar­miði,“ segir í til­kynn­ingu frá rík­is­stjórn­inni, sem er að kynna þessa ákvörðun sína á blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu.

Engin „örugg ríki“ lengur

Helsta breyt­ingin sem leiðir af þess­ari ákvörðun rík­i­s­tjórn­ar­innar er sú að allir far­þegar, fyrir utan börn fædd 2005 og síðar, verða skimaðir við komu til lands­ins. Und­an­farið hafa far­þegar frá til­teknum ríkjum verið und­an­skildir. Í þeim ríkjum er far­ald­ur­inn að taka sig upp að nýju og erfitt hefur reynst að hafa eft­ir­lit með því að far­þegar hafi í raun dvalið 14 daga í við­kom­andi landi, sam­kvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu stjórn­valda. Nú verða því allir skimaðir, óháð því hvaðan þeir koma.

[adspot]

Þá ber öllum að fara í sýna­töku 2 til þess að tryggja betur að smit grein­ist hjá þeim sem eru nýlega smit­aðir. „Hingað til hefur sú krafa ein­ungis átt við Íslend­inga og þá sem hér eru búsettir eða koma til lengri tíma dvalar. Fyrstu 4-5 dag­ana þurfa við­kom­andi að vera í sótt­kví sem er örugg­ara og skýr­ara fyr­ir­komu­lag en svokölluð heim­komusmit­gát sem mun þá heyra sög­unni til,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Loks verða reglur um for­skrán­ingu far­þega hertar til þess að tryggja að nauð­syn­legar upp­lýs­ingar liggi fyrir áður en komið er til lands­ins.

„Þessi ákvörðun er byggð á þeirri verð­mætu reynslu sem feng­ist hefur við skimun á landa­mærum frá 15. júní sl. þar sem sam­starf heilsu­gæsl­unnar, Land­spít­ala og Íslenskrar erfða­grein­ingar hefur verið lyk­il­at­riði undir yfir­stjórn sótt­varna­læknis og með full­tingi landamæra­eft­ir­lits og almanna­varna­deildar lög­reglu. Nú eru reglur hertar til að lág­marka enn frekar hætt­una á nýjum smitum með öryggi lands­manna og lýð­heilsu að leið­ar­ljósi. Með þessu er talið að dregið verði úr líkum á því að frek­ari rask­anir verði á dag­legu lífi lands­manna vegna sótt­varn­ar­að­gerða inn­an­lands. Áfram verður fylgst grannt með þróun mála í öðrum ríkjum og reglur end­ur­metnar með hlið­sjón af henni. Hér eftir sem hingað til metur sótt­varna­læknir með reglu­bundnum hætti hvort lönd séu lágá­hættu­svæði og fari þá yfir í fyr­ir­komu­lag ein­faldrar skimunar á landa­mærum,“ segir í til­kynn­ingu rík­is­stjórn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár