Heiða Kristín hætt í Íslandi í dag – Tekur ekki þingsæti að svo stöddu

Heiða Kristín Helga­dóttir, sem stýrði Umræð­unni, viku­legum þætti um stjórn­mál á Stöð 2, mun ekki starfa áfram hjá fyr­ir­tæk­inu. Hún seg­ist ekki ætla að taka sæti Bjartar Ólafs­dóttur, þing­manns Bjartrar fram­tíðar, að svö stöddu, en Björt er komin í fæð­ing­ar­or­lof. Heiða Kristín er vara­þing­maður hennar.

Aðspurð hvort hún ætli að fara aftur í stjórn­mál segir Heiða Kristín að það þurfi mikið að ger­ast hjá Bjartri fram­tíð, flokk­inum sem hún tók þátt í að stofna, til að henni finn­ist ákjós­an­legt að stíga inn á þann vett­vang á ný. „Mér finnst vandi Bjartrar fram­tíðar vera inni í Bjartri fram­tíð, hann er ekki vandi kjós­enda. Vandinn er ekki til­kom­inn vegna þess að kjós­endur skilja ekki flokk­inn heldur er hann vandi for­manns­ins [Guð­mundar Stein­gríms­sonar] og þeirra sem starfa í Bjartri fram­tíð.“

[caption id="attachment_30280" align="alignnone" width="800"] Heiða Kristín segir vanda Bjartrar fram­tíðar ekki til­kom­inn vegna skiln­ings­leysi kjós­enda á flokknum heldur sé hann „vandi for­manns­ins [Guð­mundar Stein­gríms­sonar] og og þeirra sem starfa í Bjartri fram­tíð."[/caption]Heiða Kristín segir að í nán­ustu fram­tíð ætli hún sér að starfa með nýstofn­uðu fyr­ir­tæki, Borg­ar­brag ehf., sem eig­in­maður hennar hafi nýverið sett á fót í sam­starfi við aðra og sinna stjórn­ar­setu í góð­gerð­ar­sjóðnum Best Peace Solution.

Fylgi Bjartrar fram­tíðar hefur hríð­fallið und­an­farið. Í könnun sem MMR birti í dag sögð­ust ein­ungis 4,4 pró­sent kjós­enda ætla að kjósa flokk­inn, sem er versta útkoma hans í mæl­ingum MMR á þessum kjör­tíma­bili. Miðað við það fylgi myndi Björt fram­tíð ekki ná inn manni í kom­andi kosn­ingum.

Áhorf á Ísland í dag hríðféll


Í byrjun apríl síð­ast­lið­ins var til­kynnt um breyt­ingar á Íslandi í dag. Í þeim fólst meðal ann­ars að þætt­irnir yrðu að að jafn­aði lengri en áður, eða um 40 mín­útur að lengd, og þeir gerðir í meiri sam­vinnu við frétta­stofu 365. Auk þess yrðu sér­stakir þættir um stjórn­mál, efna­hags­mál og við­skipta­líf undir hatti Íslands í dag. Þannig átti þátt­ur­inn alltaf að fjalla um mál­efni líð­andi stundar og tengj­ast betur þjóð­mála­um­ræð­unni en hann hafði gert und­an­farin ár.

Sérstaki þátt­ur­inn um stjórn­mál hét Umræðan, var einu sinni í viku og honum var stýrt af Heiðu Kristínu.

Áhorf á hið nýja Ísland í dag hefur ekki staðið undir vænt­ingum. Í lok febr­úar var með­al­á­horf á þátt­inn yfir 16 pró­sent og viku áður en breyt­ingar á honum voru inn­leiddar horfðu 14,1 pró­sent á hann. Samkvæmt mæl­ingum Gallup horfðu tólf pró­sent á Ísland í dag fyrstu vik­una eftir breyt­ingar og 8,8 pró­sent vik­una eftir það. Í síð­ustu viku júní­mán­aðar var áhorfið sjö pró­sent. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans verður þátt­ur­inn stokk­aður tölu­vert upp fyrir næsta vetur. Á meðal þeirra sem hverfa á braut er Heiða Kristín, en samn­ingur hennar við 365 miðla rann út í lok júní.

[caption id="attachment_25274" align="alignnone" width="644"] Í lok febr­úar var með­al­á­horf á þátt­inn yfir 16 pró­sent og viku áður en breyt­ingar á honum voru inn­leiddar horfðu 14,1 pró­sent á hann. Samkvæmt mæl­ingum Gallup horfðu tólf pró­sent á Ísland í dag fyrstu vik­una eftir breyt­ingar og 8,8 pró­sent vik­una eftir það. Í síð­ustu viku júní­mán­aðar var áhorfið sjö pró­sent.[/caption]

Stofnaði Besta flokkinn og Bjarta framtíð


Heiða Kristín var ráðin til 365 miðla í jan­úar síð­ast­liðnum til að stýra þætt­inum. Mánuði áður hafði hún til­kynnt að hún myndi hætta sem stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar og hætta öllum afskiptum af stjórn­málum.

Heiða Kristín kom að stofnun Besta flokks­ins fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2010 og síðar Bjartrar fram­tíðar. Hún var um tíma aðstoð­ar­maður Jóns Gnarr borg­ar­stjóra, fram­kvæmda­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Besta flokks­ins, vara­for­maður Besta flokks­ins, stjórn­ar­for­maður og fram­kvæmda­stjóri Bjartrar fram­tíðar. Hún bauð sig fram fyrir hönd Bjartrar fram­tíðar í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum en náði ekki kjöri. Hún er fyrsti vara­þing­maður flokks­ins í Reykja­vík norður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár