Ragnheiður Ríkharðs leggur til að eingöngu konur skipi næsta Alþingi

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, leggur til að næst þegar kosið verður til Alþingis, árið 2017, verði ein­göngu konur kjörnar á þing. Þingið gæti orðið til tveggja ára og að því loknu væri hægt að sann­reyna hvort vinnu­brögð kvenna séu öðru­vísi en vinnu­brögð karla, og þá gætu kjós­endur „velt því fyrir sér hvort það væri jafn­vel bara skyn­sam­legra að hafa kvenna­þing.“

Ragn­heiður varp­aði fram þess­ari hug­mynd undir liðnum störf þings­ins á Alþingi fyrir skömmu og sagði hug­mynd sína mjög rót­tæka. „Hún er í þá veru hvort það væri mögu­leiki í kosn­ing­unum 2017 að lög­binda að þá sitji ein­göngu konur á þingi. Í tvö ár, frá 2017 til 2019, þá yrði kosið til kvenna­þings til tveggja ára og konur fái tæki­færi til þess að sýna fram á hvort að það sé í raun satt, því sem haldið er fram, að vinnu­brögð kvenna séu með öðrum hætti en vinnu­brögð karla. Þingið yrði stutt, það yrði tvö ár og að loknu því þingi gæti þjóðin sjálf að sjálf­sögðu, og þeir sem að kosn­ingum koma, velt því fyrir sér hvort það væri jafn­vel bara skyn­sam­legra að hafa kvenna­þing.“

Hún sagð­ist hafa setið á þingi frá því í maí 2007 og á þeim tíma hefði lítið sem ekk­ert breyst í störfum þings­ins. Hún vildi því ræða þessa hug­mynd sína og aðra hug­mynd, sem snýr að því að eitt þing verði sett í það að end­ur­skoða þau lög sem sett hafa verið á Alþingi í gegnum tíð­ina. Í stað þess að „koma fram með bunka af lögum á hverju þingi og bæta í pok­ann“ þá yrði skoðað hvernig þau lög sem þegar hafi verið sett virki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár