Kostnaðurinn eykst hjá sveitarfélögunum en tekjur fylgja með

Miklar launa­hækk­anir hjá sveit­ar­fé­lögum, ekki síst kenn­urum, komu illa við mörg sveit­ar­fé­lög í fyrra, en vonir standa til þess tekj­urnar muni aukast hjá þeim í rúm­lega sama takti á þessu ári, vegna almennra launa­hækk­ana og jákvæðra áhrifa á útsvar.

Sveit­ar­fé­lög í land­inu hafa mörg hver upp­lifað ójafn­vægi í grunn­rekstri sínum, eftir að samið var um miklar launa­hækk­anir á almennum vinnu­mark­aði og hjá hinu opin­bera, en Halldór Hall­dórs­son, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, segir margt benda til þess að tekju­stofnar sveit­ar­fé­lag­anna muni ráða við þessar hækk­anir. „Launa­hækk­an­irnar voru vissu­lega miklar, og það var ójafn­vægi í rekstri margra sveit­ar­fé­laga, meðal ann­ars vegna mik­illlar hækk­unar á launa­kostn­aði, í fyrra. En til lengdar litið, og það er farið að sjást nú þegar, að þá skila laun­hækk­an­irnar sér í auknum útsvars­tekjum. Það sem gerir stöð­una erf­iða hjá mörgum sveit­ar­fé­lögum, sem upp­lifðu mikla þenslu fyrir hrunið sér­stak­lega, er að það er ekki ennþá búið að leysa úr mörgum málum sem tengj­ast þessum tíma,“ segir Halldór.

Tekur langan tíma

Þrátt fyrir að nú séu sjö og hálft ár liðið frá hruni fjár­mála­kerf­is­ins og setn­ingu fjár­magns­hafta, eftir mikið geng­is­fall krón­unnar, þá er ennþá langt í að mörg sveit­ar­fé­lög séu búin að leysa úr öllum vanda­málum sínum. „Það tekur tíma að leysa úr ýmsu sem teng­ist þessum tíma, en það hefur náðst mik­ill árangur. Mörg sveit­ar­fé­lög geta líka rýnt betur í rekst­ur­inn og hag­rætt, án þess að draga úr þjón­ust­unni, og er Reykja­vík­ur­borg dæmi um það,“ segir Halldór.

Eitt þeirra sveit­ar­fé­laga sem glímir enn við mik­inn skulda­vanda er Reykja­nes­bær, en eins og greint var frá á vef Kjarnans í gær, þá sam­þykkti hluti kröfu­hafa bæj­ar­ins ekki 6,4 millj­arða króna skulda­nið­ur­fell­ingu, og er því óvíst hvernig leyst verður úr stöðu bæj­ar­ins. Fjár­halds­stjórn átti þó að skipa fyrir dag­inn í dag, sam­kvæmt ákvörðun bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar frá því í síð­ustu viku.

Reikna má með því að mörg önnur sveit­ar­fé­lög, sem glíma við þungan rekstur, fylgist grannt með gangi mála hjá Reykja­nesbæ, enda getur end­ur­skipu­lagn­ingin á fjár­hag sveit­ar­fé­lags­ins sett for­dæmi fyrir önnur sveit­ar­fé­lög.

Sterkari tekjustofnar

Horft yfir heild­ina í rekstri sveit­ar­fé­laga­stigs­ins þá staðan ekki talin svo slæm. Sé mið tekið af umfjöllun Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga um fjár­hags­á­ætl­anir sveit­ar­fé­laga fyrir árið 2016, þá virð­ist staða mála smátt og smátt styrkj­ast á þessu ári. Sé horft yfir árin 2016 til og með 2019 þá er gert ráð fyrir að staða efna­hags­mála muni batna almennt í land­inu, og tekjur vaxa með hag­vexti, umfram kostnað, þrátt fyrir að laun grunn- og leik­skóla­kenn­ara, sem eru stærsti kostn­að­ar­liður í grunn­rekstri sveit­ar­fé­laga, muni hækka um 20 pró­sent á tíma­bil­inu. „Í heild­ina tekið þá er útlitið heldur gott í heild­ina tekið hjá sveit­ar­sjóðum á árunum 2016-2019 miðað við nið­ur­stöður úr fjár­hags­á­ætl­unum til fjög­urra ára. Rekstr­ar­af­gangur fer vax­andi, veltufé frá rekstri vex, lán­taka minnkar og veltu­fjár­hlut­fall og skulda­hlut­fall styrk­ist. Fjár­fest­ingum í var­an­legum rekstr­ar­fjár­munum lækka heldur undir lok tíma­bils­ins. Vita­skuld eykst óvissan um end­an­lega útkomu eftir því sem lengra líður á áætl­un­ar­tíma­bilið,“ segir í frétta­bréfi Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga.

Nið­ur­staða fjár­hags­á­ætl­ana fyrir sam­stæðu sveit­ar­fé­laga fyrir árin 2016-2019 er sú, að því er segir í frétta­bréfi Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, að sveit­ar­fé­lögin hafa í heild­ina tekið góð tök á fjár­málum A-hluta sveit­ar­sjóða, það er grunn­rekstr­inum, og B-hluta fyr­ir­tækja, sem eru dótt­ur­fé­lög eins og veitu­fyr­ir­tæki og hafn­ar­rekstr­ar­fé­lög. Þróunin virð­ist stefna í rétta átt þrátt fyrir að um ein­hver frá­vik geti verið að ræða milli ára.

Mikil hækkun launa­kostn­aðar hefur reynst sveit­ar­fé­lögum erfið og mörg hafa brugð­ist við með hag­ræð­ingu og nið­ur­skurði í útgjöldum. Það á jafnt við um þau minni og þau stærri.

Samræmd hagstjórn

Eitt af því sem mun einnig áhrif á fram­vindu mála hjá hinu opin­bera, bæði ríki og sveit­ar­fé­lögum, eru lög­bundnar kvaðir sem fylgja lögum um fjár­mál hins opin­bera. Þeim er ætlað að sam­ræma hag­stjórna hjá hinu opin­bera í heild, skýra stefnu­mörkun og styrkja áætluna­gerð. Einu sinni á ári er lögð fyrir áætlun þar sem lín­urnar eru lagðar fyrir næstu fimm árin. Sveit­ar­fé­lög þurfa að marka sér stefnu í sam­ræmi þá stefnu sem lögð er fram árlega, og má reikna með að þetta hafi meiri áhrif á fjár­mál sveit­ar­fé­laga eftir því sem tím­inn líður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár