Ákvað að vera fabjúlös, fyndinn og frábær

„Mér var strítt í grunn­skóla og smá í fram­halds­skóla líka,“ segir Sigurður Heimir Guð­jóns­son, sem sagði upp starf­inu sínu fyrir ári og vinnur nú alfarið sem dragdrottn­ingin Gógó Starr. Hann sýnir á æsku­slóð­unum á Akureyri um helg­ina.

Gógó Starr
Gógó Starr Sigurður Heimir Guð­jóns­son var nýi strák­ur­inn í Verk­mennta­skól­anum þegar honum var kastað út í hlut­verk dragdrottn­ingar í upp­færslu Verk­mennta­skól­ans á „We Will Rock You“. Nú snýr hann aftur. Mynd: Ben Strothmann

Ein fremsta dragdrottn­ing lands­ins, Gógó Starr, snýr aftur til æsku­slóð­anna á Akureyri um helg­ina. Reykja­vík Kabarett mun sýna bæði föstu­dags- og laug­ar­dags­kvöld í Sam­komu­hús­inu og eru sýn­ing­arnar bann­aðar innan 18 ára og „hentar ekki fólki sem er við­kvæmt fyrir undrum manns­lík­am­ans“.

Sigurður Heimir Guð­jóns­son hefur komið fram undir nafn­inu Gógó Starr síðan 2013 og vann Dragg­keppni Íslands árið 2015. Hann seg­ist hlakka til að sýna aftur í heimabæ sínum, þó að honum hafi oft liðið út undan, ver­andi öðru­vísi í smáu sam­fé­lagi. „Það var lúm­skt erfitt,“ segir hann. „Ekki bara að vera hinsegin, heldur líka að líða eins og maður sé öðru­vísi en allir. Mér var strítt í grunn­skóla og smá í fram­halds­skóla líka. En svo lærði ég að „owna“ það, hunsa nei­kvæðu radd­irnar og vera fabjúlös, fynd­inn og frá­bær. Sem hefur gert mig að miklu sterk­ari mann­eskju.“

Ásamt Gógó Starr munu Margrét Erla Maack, Lárus töfra­maður og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár