Bylgja rís í Danmörku

Ráð­gjafa­nefnd danskra stjórn­valda spáir því að smit­tölur á næstu vikum verði sam­bæri­legar við stærstu bylgju sem orðið hefur í land­inu hingað til. Sex vikur eru síðan öllum tak­mörk­unum var aflétt í land­inu.

Örtröð fyrir utan skemmtistaðinn La Boucherie í Kaupamannahöfn á dögunum.
Örtröð fyrir utan skemmti­stað­inn La Boucherie í Kaupa­manna­höfn á dög­unum. Mynd: EPA

Á næstu vikum gæti farið svo að dag­legar smit­tölur í Danmörku yrðu álíka margar og þær urðu þegar þær voru flestar í bylgju sem reið yfir í nóv­em­ber og des­em­ber í fyrra. Ráð­gjafa­nefnd yfir­valda telur að inn­lögnum COVID-sýktra á sjúkra­hús eigi einnig eftir að fjölga.

Uppfærð spá ráð­gjafa­nefnd­ar­innar um lík­lega þróun far­ald­urs­ins var gefin út í gær. Í henni er því spáð að dag­legur fjöldi smita með sama áfram­haldi og með sömu hegðun almenn­ings geti orðið milli 2-4.500 í byrjun des­em­ber. Smit í land­inu urðu flest rúm­lega 4.500 þann 18. des­em­ber í fyrra. Tvennt greinir fyrst og fremst bylgj­una nú og þá að. Í fyrra voru bólu­setn­ingar ekki hafnar en þá voru í gildi harðar tak­mark­anir á sam­komum sem öllum var aflétt í sept­em­ber síð­ast­liðnum.

Ráð­gjafa­nefndin, sem starfar á vegum dönsku smit­sjúk­dóma­stofn­un­ar­innar, telur að fari sem horfi gætu 60-160 dag­lega manns þurft á inn­lögn á sjúkra­hús að halda í upp­hafi des­em­ber­mán­aðar.

[adspot]

Í gær greindust tæp­lega 2.000 smit í Danmörku. Yfir 114 þús­und sýni voru tekin og hlut­fall jákvæðra sýna var því 1,73 pró­sent. Núna liggja 264 mann­eskjur á sjúkra­húsi með COVID-19 og hefur þeim fjölgað fjóra daga í röð. Ekki hafa fleiri verið á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins síðan í febr­úar.

Samkvæmt spá ráð­gjafa­nefnd­ar­innar verða smit áfram útbreidd­ust hjá fólki undir sex­tugu og þeim sem ekki enn hafa verið bólu­settir gegn COVID-19. Nefndin tekur fram að margir óvissu­þættir liti spárnar og sá stærsti sé hegðun fólks, hvort hún hald­ist óbreytt eða hvort aukn­ing smita muni hafa þau áhrif að hún breyt­ist. Ráð­gjafa­nefndin gaf síð­ast út spá í októ­ber. Sú spá hefur ekki gengið eftir, það er að segja, fleiri hafa þurft á inn­lögn að halda en spáð hafði verið. Ein skýr­ingin kann að fel­ast í fjölgun sýna sem tekin eru, m.a. meðal þeirra sem lagðir eru inn á sjúkra­hús af öðrum ástæðum en COVID-19 líkt og nýjar reglur kveða á um.

„Við getum ekki sagt nákvæm­lega til um hvað er að valda þessu stökki í smitum,“ er haft eftir lækn­inum Camillu Holten Møller sem fer fyrir nefnd­inni í frétta­til­kynn­ingu.

Aftur aðgerðir eður ei?

Mikil umræða hefur und­an­farið verið í Danmörku um hvort grípa eigi til aðgerða inn­an­lands á ný í ljósi þró­unar far­ald­urs­ins. Sér­fræð­ingar hafa nefnt og sumir jafn­vel lagt til að grímu­skylda verði tekin upp aftur.

Er öllum aðgerðum var aflétt í Danmörku í sept­em­ber var allt önnur staða í far­aldr­inum en nú og allar tölur á nið­ur­leið og innan við 100 manns með COVID-19 lágu á sjúkra­húsum lands­ins. En októ­ber bar með sér breyt­ingar og hafa dag­leg smit verið yfir þús­und allan mán­uð­inn. Þá hefur inn­lögnum einnig fjölgað.

Smit­sjúk­dóma­stofnun Dan­merkur segir að R-talan, sem segir til um hvort far­aldur er í vexti eða ekki, sé núna 1,1. Þegar hún er yfir einum er far­ald­ur­inn í vexti og þannig er því staðan nú.

75 pró­sent Dana eru bólu­settir gegn sjúk­dómnum og örv­un­ar­bólu­setn­ingar hjá ákveðnum hópum eru hafnar. Yfir 80 pró­sent 12 ára og eldri eru full­bólu­sett.

Vilja innleiða kórónupassann

Auk umræðu um grímu­skyldu er einnig rætt um svo­kall­aðan kór­ónupassa í Danmörku. Slíkt tæki hefur áður verið reynt og væri hægt að nota til að lág­marka útbreiðslu. Með honum gæti fólk vottað að það væri bólu­sett eða sýnt nið­ur­stöður nei­kvæðra prófa til að kom­ast á ákveðna staði. Christian Wejse, pró­fessor í lýð­heilsu­fræðum við háskól­ann í Árhúsum, hefur trú á slíkum passa og segir hann geta hvatt fólk til að fara í bólu­setn­ingu og sýna­töku. „Ég held að við þurfum á því að halda í núver­andi ástandi,“ sagði hann við danska rík­is­út­varpið í vik­unni.

Danska rík­is­stjórnin hefur ekki lengur heim­ild til að setja á sam­fé­lags­legar tak­mark­anir án þess að bera það undir þingið. Það breytt­ist í sept­em­ber er far­ald­ur­inn var færður af neyð­ar­stigi á hættu­stig. Eins og staðan er í augna­blik­inu virð­ist ekki vera stuðn­ingur við það á þing­inu að setja á harðar aðgerðir. Ef sér­stök þing­nefnd sem fer með mál­efni tengd far­aldr­inum myndi hins vegar mæla með því gæti það haft áhrif á stuðn­ing þings­ins við end­ur­komu aðgerð­anna.

Andlát vegna COVID-19 í Danmörku hafa verið að með­al­tali um 1-2 á dag síð­ustu vikur. Þegar verst lét í stóru bylgj­unni fyrir ári síðan, þegar bólu­setn­ingar voru ekki hafnar, voru þau um og yfir 30 á dag svo að því leyti er staðan allt önnur en hún var fyrir ári. Yfir 2.700 and­lát í land­inu eru rakin til sjúk­dóms­ins frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár