Goldman Sachs opnar bækurnar fyrir dönskum stjórnvöldum

Banda­ríski fjár­fest­inga­bank­inn Goldman Sachs hefur til­kynnt að bank­inn sé reiðu­bú­inn að veita nán­ari upp­lýs­ingar um mjög gagn­rýnd kaup á 18 pró­senta hlut í danska orku­fyr­ir­tæk­inu DONG Energy. Við söl­una í jan­úar 2014 varð rík­is­stjórn Helle-Thorning Schmidt fyrir miklu áfalli og féll nærri.

Fjallað var ítar­lega um furðu­legan aðdrag­anda og eft­ir­mála söl­unnar á eign­ar­hlut rík­is­ins í DONG til fjár­fest­inga­bank­ans í Kjarn­anum undir fyr­ir­sögn­inni Kaos í Krist­jáns­borg. Þáver­andi fjár­mála­ráð­herra rauðu blokk­ar­innar í dönskum stjórn­málum gaf afar skamman frest fyrir fleiri til­boð að ber­ast, en orku­fyr­ir­tækið var þá að öllu leyti í eigu danska rík­is­ins. Eftir mis­heppn­aðar fjár­fest­ingar fyr­ir­tæk­is­ins í Bret­landi, Hollandi og víðar varð að afskrifa háar fjár­hæðir.

Því var ákveðið að selja stóran hlut í DONG og sýndi Goldman Sachs mik­inn áhuga. Það end­aði með að bank­inn keypti 18 pró­senta hlut fyrir um átta millj­arða danskra króna; eitt­hvað sem and­stæð­ingar söl­unnar töldu tombólu­verð. Um það bil 200 þús­und und­ir­skriftir söfn­uð­ust gegn söl­unni og mörg þús­und manns mót­mæltu við Krist­jáns­borg­ar­höll, sem hýsir danska þingið.

Í kjöl­farið klofn­aði sam­steypu­stjórn Helle-Thorning Schmidt þegar þriðji stjórn­ar­flokk­ur­inn, Sós­íal­íski þjóð­ar­flokk­ur­inn, hrundi vegna máls­ins og ráð­herrar flokks­ins sögðu af sér. Fylgi rík­is­stjórn­ar­innar hrundi eftir sölu DONG og í þing­kosn­ing­unum í Danmörku í júní hlaut bláa blokkin meiri­hluta atkvæða og ný rík­is­stjórn tók við.

Goldman Sachs hefur gefið Claus Hjort Fred­rik­sen, fjár­mála­ráð­herra, leyfi til að veita upp­lýs­ingar um sölu for­vera síns á orku­fyr­ir­tæk­inu og Fred­rik­sen hefur til­kynnt að hann vilji veita fjár­laga­nefnd danska þings­ins öll gögn um söl­una.

Yfirmenn hjá fjár­fest­inga­bank­anum hafa sagt í við­tölum það sé óeðli­legt að bank­inn veiti leyfi til að dreifa slíkum upp­lýs­ingum en mik­il­vægt sé að kveða niður „mýtur og get­gátur“ um dul­ar­fult samn­inga­ferlið í aðdrag­anda söl­unnar.

„Við höfum ekk­ert að fela og sjáum þess vegna enga ástæðu til þess að koma í veg fyrir að fjár­laga­nefnd þings­ins fjalli um málið. Við höfum kom­ist að nið­ur­stöðu um að eðli­legt sé að bregða út af van­anum,“ sagði Martin Hintze við Berl­inske.

[caption id="attachment_35775" align="alignnone" width="1500"] Helle Thorning-Schmidt sýnir kon­ungs­hjón­unum aflgjafa DONG Energy ásamt fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins árið 2013.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár