Segja kostnað við komu Pence „óverulegan“

Heimsókn vara­for­seta Banda­ríkj­anna hafði áhrif á dag­leg störf Land­helg­is­gæsl­unnar að sögn upp­lýs­inga­full­trúa.

Mike Pence
Mike Pence Vara­for­seti Banda­ríkj­anna dvaldi á Íslandi í 7 klukku­stundir. Mynd: Pressphotos

Land­helg­is­gæslan segir kostnað við komu Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, til Íslands hafa verið óveru­legan. „Heim­sóknin hafði vissu­lega áhrif á dag­leg störf Land­helg­is­gæsl­unnar, þá sér­stak­lega í Keflavík,“ segir Ásgeir Erlends­son, upp­lýs­inga­full­trúi Land­helg­is­gæsl­unnar, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

„Fáir starfs­menn voru kall­aðir út vegna heim­sókn­ar­innar. Hafa verður í huga að Land­helg­is­gæslan er við­bragðs­að­ili og til að mynda voru liðs­menn sér­að­gerða- og sprengju­eyð­ing­ar­sviðs og þyrlu­sveitar á hefð­bund­inni vakt þennan dag. Þyrlu­sveitin var kölluð út sem og sér­að­gerða­sviðið en það rúm­ast innan ramma hefð­bund­inna dag­legra starfa.“

Mikill við­bún­aður var vegna komu Pence til Íslands. Vopnaðir full­trúar frá banda­rísku leyni­þjón­ust­unni voru með honum í fylgd, en íslenskir lög­reglu­menn og sér­sveit Rík­is­lög­reglu­stjóra áttu einnig í sam­starfi um öryggi hans. Hann dvaldi á land­inu í aðeins 7 klukku­stundir.

Leyniskyttur voru uppi á hús­þökum við Borg­ar­tún, á þaki hús­næðis Advania ann­ars vegar og Arion banka hins vegar, hvort sínum megin við Höfða, þar sem Pence …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár