Lögreglan á Íslandi má leggja hald á fjármuni útlendinga

Frumvarp hefur verið harð­lega gagn­rýnt í Danmörku, en heim­ildir eru þegar til staðar á Íslandi.

Lög­reglan á Íslandi hefur heim­ildir til þess að leggja hald á fjár­muni útlend­inga til þess að greiða fyrir kröfu vegna kostn­aðar við brott­för og gæslu, sam­kvæmt lögum um útlend­inga á Íslandi. Samkvæmt frum­varpi að nýjum útlend­inga­lögum verður þessu ekki breytt og heim­ilt verður að krefja hæl­is­leit­endur um end­ur­greiðslu á kostn­aði.

Þessar heim­ildir svipa til þeirra sem nú er lagt til að lög­reglan í Danmörku fái, til þess að fá kostnað við komu hæl­is­leit­enda end­ur­greiddan frá þeim. Frumvarp þess efnis hefur vakið mikla reiði og umræðu í Danmörku, en gert er ráð fyrir að lög­reglan megi leita í far­angri útlend­inga til að kanna hvort verð­mæti finn­ist þar. Frum­varpið var lagt fram fyrr í des­em­ber og gert er ráð fyrir því að það taki gildi sem lög í febr­úar næst­kom­andi. Leita má að verð­mætum til að mæta kostn­aði en stjórn­völd segja að lögin nái aðeins til afar verð­mætra eigna. Eins og fram kemur í umfjöllun mbl.is af mál­inu hefur verið vísað til eigna­upp­töku nas­ista í seinni heim­styrj­öld­inni í gagn­rýni á lögin.

Íslensk útlend­inga­lög gera ráð fyrir því að krefja eigi útlend­ing um end­ur­greiðslu kostn­aðar af rétt­ar­að­stoð að hluta til eða að öllu leyti ef hann hefur ráð á því. Jafn­framt gera lögin ráð fyrir því að útlend­ingur eigi að greiða kostnað af brott­för sinni og kostnað sem hlýs af því ef lög­regla þarf að fylgja við­kom­andi ein­stak­ling úr land­inu. Gera má fjár­nám vegna þess­arar kröfu og hún getur líka verið grund­völlur frá­vís­unar frá land­inu ef útleni­dingur kemur aftur til lands­ins síðar.

Auk þess sem lög­reglan hefur heim­ildir til þess að leggja hald á fjár­muni fólks má leggja hald á far­seðla sem finnst í fórum útlend­ings. Lög­mað­ur­inn Árni Helgason bendir á þessa heim­ild í lög­unum á Facebook-síðu sinni, en segir jafn­framt að hann viti ekki til þess að þessum ákvæðum hafi verið beitt. Heim­ildin er hins vegar til staðar.

Þessar heim­ildir verða áfram til staðar ef frum­varp til nýrra útlend­inga­laga verður að veru­leika, en frum­varpið var samið af þverpóli­tískri nefnd og skilað inn til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins fyrir skemmstu. Ekki er fjallað sér­stak­lega um þessi ákvæði í grein­ar­gerðum með frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár