Nú lágu Danir í því

Þótt það standi fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur á fer­il­skránni er það ekki endi­lega trygg­ing fyrir mik­ils­metnum emb­ættum á alþjóða­vett­vangi. Það hefur Helle Thorning-Schmidt fengið að reyna. Fyrir nokkrum dögum fékk hún að vita að hún fengi ekki starf yfir­manns Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna. Starf sem hún hafði sóst eftir og lýst miklum áhuga á. Þegar gert var opin­bert að hún myndi sækja um þetta starf var það til­kynnt með pomp og pragt á frétta­manna­fundi á Krist­jáns­borg 4. sept­em­ber. Og það var ekki bara hún ein sem var þar mætt til að til­kynna um þessa ákvörðun, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, Lars Løkke Rasmus­sen var með Helle Thorning á frétta­manna­fund­inum. Hann lýsti yfir stuðn­ingi við umsókn for­sæt­is­ráð­herr­ans fyrr­ver­andi fyrir hönd rík­is­stjórnar Dan­merkur.

Þau tvö, Lars Løkke og Helle Thorning hafa lengi eldað grátt silfur og tek­ist hart á, bæði utan þings og innan. En á áður­nefndum frétta­manna­fundi hældi Lars Løkke Helle Thorning á hvert reipi og sagði að hún hefði, að sínu mati, alla þá kosti til að bera sem þetta háa emb­ætti krefð­ist. Rík­is­stjórn Dan­merkur stæði ein­huga að baki fram­boði hennar.

Fáar gagnrýnisraddir heima fyrir

Danskir fjöl­miðlar fjöll­uðu ítar­lega um fram­boð Helle Thorning-Schmidt eins og vænta mátti. Það er ekki á hverjum degi sem Dani sæk­ist eftir svo háu alþjóð­legu emb­ætti. Fjöl­miðl­arnir voru sam­mála um að Helle Thorning- Schmidt yrði verð­ugur full­trúi Dan­merkur og hún hefði það sem til þyrfti til að gegna þessu starfi. Hún væri þekkt mann­eskja, væri með munn­inn fyrir neðan nefið, tal­aði reiprenn­andi ensku (ekki sjálf­gefið með Dani), hún væri vel menntuð sem hefði góð sam­bönd víða um lönd. Ekki spillti fyrir að bóndi hennar, Stephen Kinnock væri orð­inn þing­maður í Bret­landi. Allt mælti með Helle Thorning í þetta virðu­lega og mik­ils­metna emb­ætti.

Sumir danskir fjöl­miðlar létu að því liggja að hún væri allt að því sjálf­kjörin í emb­ættið. Í fyrstu leit reyndar út fyrir að eng­inn annar yrði í kjöri, umsókn­ar­frest­ur­inn var til 14. sept­em­ber en sú dag­setn­ing var reyndar ekki fast­bundin. Nokkru áður en umsókn­ar­frest­ur­inn var úti til­kynnti Ítalinn Filippo Grandi um fram­boð sitt. Hann hefur um ára­bil verið starfs­maður Sam­ein­uðu þjóð­anna, að und­an­förnu fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna varð­andi mál­efni Palest­ínu. Þekkir starf­semi SÞ út og inn, hóf reyndar feril sinn innan sam­tak­anna hjá flótta­manna­stofn­un­inni árið 1988. Svo gerð­ist það að Þjóð­verj­inn Achim Steiner til­kynnti um fram­boð og jafn­framt að hann hefði stuðn­ing Angelu Merkel kansl­ara. Sá stuðn­ingur var þó ekki opin­ber fyrr en seint og um síðir og fyr­ir­fram var Steiner ekki tal­inn lík­legur til að fá stöð­una.

Svíar hikuðu en studdu Helle Thorning að lokum

Þegar ljóst var að fleiri en Helle Thorning-Schmidt höfðu auga­stað á emb­ætt­inu fór danska rík­is­stjórnin af stað. Ráð­herrar, með Kristian Jensen utan­rík­is­ráð­herra í broddi fylk­ingar ferð­uð­ust til margra landa til að afla stuðn­ings við Helle Thorning.

Margir voru hik­andi, Banda­ríkja­menn töldu sig, þótt ekki væri það sagt opin­ber­lega, tæp­lega geta stutt hana. Seint og um síðir lýsti for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar yfir stuðn­ingi og sömu sögu er að segja um for­sæt­is­ráð­herra Noregs.

Ráðning yfir­manns Flótta­manna­stofn­unar SÞ er í höndum Ban Ki-moon fram­kvæmda­stjóra (áður kall­aður aðal­rit­ari) Sam­ein­uðu þjóð­anna. Fram­kvæmda­stjór­inn hlustar vissu­lega á full­trúa aðild­ar­ríkj­anna en þegar að ákvörðun kemur er það hann sem ræður. Fyrir nokkrum dögum til­kynnti hann að það yrði Filippo Grandi sem fengi starfið. Grandi tekur við af Portú­ga­l­anum António Guterres sem gegnt hefur emb­ætt­inu um tíu ára skeið.

Af hverju fékk Helle Thorning-Schmidt ekki starfið

Þessari spurn­ingu hafa danskir fjöl­miðlar reynt að svara síðan til­kynnt var að for­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi yrði ekki næsti yfir­maður Flótta­manna­stofn­unar SÞ.

Flestir sem fjöl­miðlar hafa rætt við nefna fyrst og fremst tvær ástæður. Í fyrsta lagi að Helle Thorning-Schmidt hafi sem for­sæt­is­ráð­herra ekki bein­línis verið tals­maður flótta­manna heldur þvert á móti. Hún hafi marg­sinnis talað um að setja þyrfti hertar reglur um inn­flytj­endur í því skyni að tak­marka fjölda þeirra. Þótt hún hafi, af eðli­legum ástæðum ætíð talað um Danmörku í þessu sam­bandi sé aug­ljóst hver sjón­ar­mið hennar séu.

Þau sjón­ar­mið sam­ræm­ist ekki starfi yfir­manns Flótta­manna­stofn­unar SÞ og kannski sé Helle Thorning ekki til þess fallin að sam­eina kraft­ana í því erf­iða ástandi sem ríki, einkum í Evrópu. Í öðru lagi að hún hafi ekki staðið sig sér­lega vel í við­tölum vegna starfs­ins. Þar hafi hún ekki verið sér­lega vel und­ir­búin og ekki haft nægi­lega skýra sýn á hvernig hún hygð­ist starfa og áherslu­at­riði í starf­inu.

Þurfti mann sem kann á kerfið

Síðast en ekki síst hafi hún átt við erf­iðan and­stæð­ing að etja. Ítalinn Filippo Grandi þekkir starf­semi Sam­ein­uðu þjóð­anna út og inn og eins og ástandið sé nú um stundir skipti miklu að yfir­maður Flótta­manna­stofn­un­ar­innar þurfi ekki að byrja á því að kynn­ast starf­sem­inni, en það taki iðu­lega drjúgan tíma. Hlut­irnir þurfi og verði að ger­ast hér og nú.

Þess­vegna sé aug­ljóst að Ítalinn Filippo Grandi hafi verið betri kostur en Helle Thorning-Schmidt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár