Forseti Namibíu þakkaði forsætisráðherra Noregs fyrir aðstoðina við rannsókn Samherjamálsins

Hage Geingob þakk­aði Ernu Solberg fyrir að Noregur hafi hjálpað Namibíu að rann­saka spill­ing­ar­mál Samherja í Namibíu. Ísland og Noregur hafa veitt Namibíu aðstoð en lönd eins og Angóla, Dubaí og Kýpur hafa ekki verið eins viljug til þess.

Þakkar aðstoðina
Þakkar aðstoð­ina Hage Geingob, for­seti Namibíu, þakk­aði Ernu Solberg, for­sæt­is­ráð­herra Noregs, fyrir aðstoð­ina við rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins. Ísland hefur einnig aðstoðað yfir­völd í Namibíu við rann­sókn­ina.

Forseti Namibíu, Hage Geingob, þakk­aði for­sæt­is­ráð­herra Noregs, Ernu Solberg, fyrir stuðn­ing norskra stjórn­valda við rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu. Geingob og Solberg rædd­ust við í síma á fimmtu­dag­inn var, sam­kvæmt Facebook-síðu for­seta­emb­ætt­is­ins í Namibíu og fjöl­miðlum þar í landi.

Sam­herj­a­málið í Namibíu gengur undir nafn­inu Fishrot á ensku og snýst rann­sóknin um mútu­greiðslur upp á vel á annan millj­arð króna frá Samherja til ráð­herra og við­skipta­fé­laga þeirrra í skiptum fyrir hesta­makríl­skvóta á árunum 2012 til 2019. Kveikur, Stundin og Al Jazeera sögðu frá mál­inu í fyrra á grund­velli gagna frá Wikileaks. 

Sjö Namib­íu­menn sitja nú í gæslu­varð­haldi grun­aðir um að hafa þegið mútur frá Samherja auk fleiri brota. Tekið skal fram að engir núver­andi eða fyrr­ver­andi starfs­menn Samherja hafa rétt­ar­stöðu sak­born­inga í namibísku rann­sókn­inni.  Sex núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Samherja eru hins vegar með rétt­ar­stöðu sak­born­inga á Íslandi grun­aðir um aðild að mútu­greiðslum og pen­inga­þvætti. 

Samtalið á milli Geingobs og Solbergs sýnir að Sam­herj­a­málið og umræður um það eru ráða­mönnum þess­ara þjóða ofar­lega í huga þegar þeir ræða sín á milli enda standa yfir rann­sóknir á mál­inu í báðum lönd­unum. Sam­herj­málið er stærsta spill­ing­ar­mál sinnar teg­undar sem komið hefur upp í Namibíu og málið er einnig stórt í Noregi þar sem rík­is­bank­inn DNB var not­aður til að greiða hluta af mútu­greiðsl­unum sem sjömenn­ing­arnir sitja í gæslu­varð­haldi fyrir að hafa þegið. 

„Geingo for­seti þakk­aði rík­is­stjórn Noregs fyrir sam­vinnu þess í rann­sóknum á spill­ingu í fisk­veiði­iðn­aðnum í Namibíu“

Efni sím­tals­ins var hins vegar ekki ein­göngu Sam­herj­a­málið heldur ræddu þau Geingob og Solberg einnig önnur mál eins og sjálf­bærni í fram­leiðslu sjáv­ar­af­urða og fleiri mál. 

Yfirvöld á Íslandi og Noregi aðstoða Namibíu

Yfirvöld á Íslandi, vænt­an­lega emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara ef marka má fjöl­miðla í Namibíu, og í Noregi hafa veitt namibískum rann­sókn­ar­að­ilum aðstoð við rann­sókn máls­ins eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum. Ísland og Noregur tengj­ast rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu þannig að fyr­ir­tækið sem sjömenn­ing­arnir sitja í gæslu­varð­haldi fyrir að hafa þegið mútur frá, Samherji, er íslenskt og banka­reikn­ing­arnir sem að Samherji not­aði til að greiða mút­urnar til Namib­íu­mann­anna eru í norskum banka sem að hluta til er í eigu norska rík­is­ins. Sam­herj­a­málið er einnig til rann­sóknar í Noregi.

Noregur og Ísland veita aðstoðEinn helsti rann­sak­and­inn í Sam­herj­a­mál­inu hefur lýst því að Noregur og Ísland hafi veitt yfir­völdum í Namibíu aðstoð við rann­sókn máls­ins. Erna Solberg er for­sæt­is­ráð­herra Noregs.

Orðrétt segir um sam­skipti Geingobs og Solbergs á Facebook-síðu for­seta­emb­ætt­is­ins: „Geingob for­seti þakk­aði rík­is­stjórn Noregs fyrir sam­vinnu þess í rann­sóknum á spill­ingu í fisk­veiði­iðn­aðnum í Namibíu. Eftir að málið kom upp [í nóv­em­ber í fyrra], greindi Geingob for­seti for­sæt­is­ráð­herr­anum frá, hefur Namibía unnið að end­ur­bótum á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi sínu til þess að takast á við þau vanda­mál og þá mis­notkun á kerf­inu sem átt hefði sér stað í gegnum tíð­ina.“

Fá lönd hjálpfús

Í namibíska fjöl­miðl­inum Neweralive er sím­talið á milli Geingobs og Solberg sett í sam­hengi við það að fyrir viku síðan steig helsti rann­sak­and­inn í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu, Andreas Kanyang­ela, og sagði frá því að afar erf­ið­lega hefði gengið að fá aðstoð við rann­sókn máls­ins frá ein­stökum ríkjum. Af þeim níu ríkjum sem rann­sóknin teygði sig til  hefðu aðeins Noregur og Ísland verið sam­starfs­fús og reiðu­búin að veita Namib­íu­mönn­unum aðstoð.  Meðal þess­ara ríkja sem ekki hafa verið eins hjálp­fús eru Angóla, Kýpur og Dubaí sem öll tengj­ast rann­sókn­inni. 

Andreas Kanyang­ela nefndi sér­stak­lega er að erfitt hefði verið að fá aðstoð frá Angóla en rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins tengd­ist því landi sterkum böndum vegna Nam­gom­a­við­skipt­anna svoköll­uðu sem rann­sökuð eru sem sam­særi af namibískum yfir­völdum þar sem grunur er á að milli­ríkja­samn­ingur hafi verið gerður á milli land­anna í þeim eina til­gangi að tryggja Samherja hesta­makríl­skvóta. 

Rann­sókn­ar­stofn­unin ACC, sem sér­hæfir sig í að rann­saka spill­ingu í Namibíu, hefur þar til 14. des­em­ber að ljúka rann­sókn máls­ins. Ellegar er mögu­legt að sjömenn­ing­unum verði sleppt úr gæslu­varð­haldi og að ACC þurfi að ljúka rann­sókn­inni með sjömenn­ing­anna utan við fang­els­is­múr­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár