Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stefnulaust rekald

Auður Jóns­dóttir rithöfundur og Jakob Falur Garðarsson, framkvæmda­stjóri Frumtaka, hittu Kára Stef­ánsson til að finna út hvað hann myndi gera ef hann væri heilbrigðis­ráðherra.

VARÚÐ – FÓLKI VIÐKVÆMU FYRIR ENSKU- OG LATÍNUSLETTUM ER RÁÐIÐ FRÁ AÐ INNBYRÐA ÞETTA VIÐTAL

Fyrir ári síðan sagði Jakob Falur – vinur minn og framkvæmda­stjóri Frumtaka, samtaka lyfja­fram­leiðenda – mér frá ráðstefnu sem hann hafði staðið fyrir með yfir­skriftinni: Hver er réttur minn til heilbrigðis­þjónustu?

Ég hafði hvorki leitt hugann að slíkum rétti né hvað fælist í frasanum um betra heilbrigðis­kerfi. Hversu mikinn rétt finnst Kára Stef­ánssyni að við eigum þegar hann talar um betra heilbrigðis­kerfi? hrökk upp úr mér og Jakob svaraði: Eigum við ekki bara að spyrja hann?

Hugmyndin var rauðvíns­legin og kviknaði í matarboði en þó svo lífseig að meira en ári síðar spurðum við Kára hvort við mættum koma í heimsókn. En áður en við fórum sagði Jakob: Ertu viss um að þú viljir hafa lyfja­lobbíista eins og mig með þér?

Ég vildi það því hann veit ýmislegt um þessi mál sem ég veit ekki en greinina ber þó að lesa með þeim gleraugum að þar eru harðsnúinn lyfja­lobbíisti og rómantísk skáldasál að gera einlæga tilraun til að yfirheyra Kára.

Kári talar Megasar-íslensku, óvenju blæbrigða­ríka og kjarnyrta íslensku, en kryddar hana með lærðum latínu­slettum í bland við ameríska frasa í ætt við þá sem gætu einkennt sumar sögu­hetjur Einars Kárasonar. Mig langaði að fanga þetta sérstaka orðfæri og því er greinin óvenju löng. Svona tungutak tímir maður ekki að kötta.

Að þessu sögðu færi ég mig, Auði, yfir í þriðju persónu og inn í samtal okkar þriggja.

Milljón dollara meðferðir

En snúum okkur að alvöru málsins. Ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur er nú tekin við eftir tiltölu­lega stutta en snarpa kosninga­baráttu. Miklum fjármunum er bætt við heilbrigðis­kerfið í nýsamþykktum fjárlögum. Til að mynda er ríflega fjórum milljörðum bætt í lyfjalið fjár­laganna. Í aðdrag­anda kosninga var í raun samhljómur með öllum fram­bjóðendum um að auka framlög til heilbrigðis­þjónustunnar. Engum vafa er undirorpið að rödd Kára Stef­ánssonar hefur þar haft áhrif. Gefum honum orðið!

Kári: Hver er lyfja­lobbíistinn?

Jakob Falur: Það er ég.

Kári: Auðvitað ert það þú!

Jakob: Málið er að við hittumst einu sinni yfir rauðvíns­glasi, við Auður. Var það ekki bara heima hjá mér?

Auður: Jú, í matarboði hjá ykkur hjónum.

Jakob: Þá vorum við í vinnunni nýbúin að halda þessa ráðstefnu undir yfir­skriftinni Hver er réttur minn til heilbrigðis­þjónustu? Og við förum að ræða það...

Kári: Við skulum aðeins fara í gegnum þetta, áður en við byrjum að tala um heilbrigðis­kerfið almennt. Þá ætla ég að benda á alveg himin­hrópandi vandamál sem á rætur sínar í þeim iðnaði sem þú ert í forsvari fyrir...

Jakob, nokkuð dræmur: Já...

Kári: ...og það er sú staðreynd að það er verið að búa til alveg fullt af mjög flottum svokölluðum líftækni­lyfjum þessa dagana, lyf sem byggja á svolítið öðrum prinsippum heldur en tíðkuðust hér áður, sem eru lyf sem eru raun­verulega mótefni – sem eru búin til þess að fikta í allskonar viðtækjum í skrokknum á okkur. Þessi nýju lyf eru mörg hver alveg ótrúlega effektív, en verið að selja þau á slíku verði að flest samfélög í þessum heimi koma aldrei til með að hafa efni á þeim. Tökum sem dæmi lyf við mergæxlum sem að Johnson & Johnson setti á markað í fyrra, ein meðferð fyrir einn sjúkling kostar milljón dollara.

Regeneron setti lyf á markað snemma á þessu ári við atópískum dermatítis, bara exemi, það kostar þrjátíu og fimm þúsund dollara á ári fyrir einstaklinginn. Í þessu felst að vissu leyti brot á alþjóð­legum sósíal-kontrakt. Sem er sá: Við skulum búa til lyf, við seljum þau á ákveðnu verði sem er dálítið hátt til þess að við höfum efni á að búa til fleiri lyf. En þessi verð­lagning sem er byggð á svokölluð value based pricing er alltof há til þess að það sé substainable, samfélagið kemur til með að snúast gegn þessum iðnaði af mjög miklum krafti ef svo heldur fram mikið lengur. Þetta er vandamál í þessum iðnaði.

Takið eftir því að það er til sjúkdómur sem heitir Cystic Fibrosis, hann er algengasti víkjandi erfða­sjúkdómur í heiminum. Þetta er sjúkdómur í börnum sem gerir það að verkum að lungun í þeim hætta að starfa. Það er fyrirtæki sem heitir Vertex sem hefur búið til nokkur lyf sem vinna gegn stökk­breytingunum sem valda þessum sjúkdómi, fyrir­tækið selur þessi lyf á þrjú hundruð þúsund dollara á ári per barn. Þetta er alveg gjör­samlega ósiðlegt, óásættanlegt og þetta á ekki að geta gerst.

Meðan ekk­ert kemur fyrir þig eða þína, þá er ímynd þín eða sýn þín á þessi risa­stóru alþjóð­legu lyfja­fyr­ir­tæki að þau séu í raun og veru, með verð­lagn­ingu sinni, að arð­ræna sam­fé­lagið.
Kári Stefánsson, Auður Jónsdóttir og Jakob Falur.
Kári Stef­áns­son, Auður Jóns­dóttir og Jakob Falur.

Hlutfall lyfjaútgjalda lágt

Kári þagnar án þess að bregða svip og Auður spyr hver sé raun­kostnaðurinn við að framleiða lyf á borð við þetta.

Kári: Það er mjög erfitt að fígúra það út, enda mjög mismun­andi. En þarna er ekki verið að tala um verð­lagningu á kostnaðinum við að búa þetta til, það er verið að byggja verð­lagninguna á því hversu miklu betur þessi lyf virka en þau sem til staðar eru. Þetta er svokölluð value based pricing, metið út frá því hvað lyfin leggja af mörkum til samfélagsins.

Jakob: Ef ég má grípa fram í fyrir þér, Kári. Nú hefur þú verið að tala um að auka verði framlög til íslenska heilbrigðis­kerfisins. Kannski er ekki rétt að einblína svona mikið á lyfin. Mér finnst miklvægt að við á Íslandi höfum, sem samfélag, haft efni á að fjárfesta í nýjum lyfja­meðferðum, þó svo að hlutfall lyfja­útgjalda á Íslandi sé mjög lágt miðað við löndin í kringum okkur.

Kári: Að vísu eru öll löndin í kringum okkur farin að hætta að kaupa þessi dýrustu lyf. Ég reikna ekki með því að þessi verð­lagning haldi áfram. Ég held að iðnaðurinn komi til með að láta undan þeim þrýstingi sem er að byggjast upp. Það er alveg ótrúlegt að sá iðnaður sem býr til 99,99 prósent af öllum þeim lyfjum sem eru notuð til að minnka sársauka og svo framvegis, að það skuli verið litið á þann iðnað sem the bad guy. Hann ætti að vera borinn á höndum okkar.

Jakob: Það er málið í hnotskurn og mér finnst það alveg óskiljanlegt.

Kári: Það er bara út af þessum klaufa­skap!

Auður: Er verið að tala um tvö apparöt hérna?

Jakob: Nei, það sem hann er að segja er: Meðan ekkert kemur fyrir þig eða þína, þá er ímynd þín eða sýn þín á þessi risastóru alþjóð­legu lyfja­fyrirtæki að þau séu í raun og veru, með verð­lagningu sinni, að arðræna samfélagið. Arðræna heilbrigðis­kerfið og gamla fólkið í þjóð­félaginu. En um leið og eitthvað kemur fyrir þig eða þína, þá vilt þú fá það frá þessum fyrir­tækjum –sem þú trúir og treystir – að sé það besta og state of the art...

Auður: Að hvað sé best?

Jakob: Nú, lyfin sem þau framleiða!

Kári: Þú vilt að nýjasta tækni sé notuð til þess að búa til nýjar aðferðir til að takast á við sjúkdóma. Tæknin í heiminum í dag er nú á þeim stað að hægt er að búa til alveg ævintýra­lega effektív lyf við allskonar hlutum en það vill svo til að þessi nýju lyf eru að auka við það misrétti sem er í heiminum þegar kemur að aðgengi að heilbrigðis­þjónustu.

Ný ríkisstjórn og hvað gerist þá?

Kári: En nú skulum við að gamni stoppa og horfa á það sem er að gerast núna.

Það er tekin táknræn kúnstpása áður en samtalið heldur áfram.

Kári: Við erum með nýja ríkis­stjórn og hún er með allskonar athuga­semdir í sínum stjórnar­sáttmála um heilbrigðis­kerfið. Og það sem segir í stjórnar­sáttmálanum, finnst mér, benda til góðs vilja. En ekki endilega mikils skilnings á þeim vanda­málum sem blasa við.

Jakob: Ekki ígrundaður vilji?

Kári: Nei. Eitt af því sem þau segja er að þau vilji auka við styrk heilsu­gæslunnar og láta heilsu­gæsluna vera fyrsta snertiflöt einstaklingsins eða sjúklingsins við heilbrigðis­kerfið. Semsagt, þau vilja að það sé Ironclad-tilvísana­kerfi og vanda­málið við tilvísana­kerfi er ósköp einfald­lega að í læknis­fræði, eins og á flestum öðrum tækni- og fræði­sviðum, er vanda­málið yfirleitt ekki þegar þú veist að þú veist ekki. Vanda­málið er að þú veist ekki að þú veist ekki. Og þegar sjúklingur kemur til heimilis­læknis sem er generalisti – sem veit svolítið um allt en ekki mikið um nokkurn skapaðan hlut – þá lendir sjúklingurinn í því að hann fær ekki rétta greiningu.

Aðferðin til þess að gera þetta er að hafa aðgang að sérfræðingum eins opinn og hægt er. En eftir að búið er að greina sjúklinginn á að vísa honum til heimilis­læknis og hann sér um meðferðina – vegna þess að það er oft samkvæmt kokka­bókum. Það þarf að sjá til þess að sjúklingurinn hafi greiðan aðgang að þeim sem getur greint sjúk­dóminn, því ef sjúk­dómurinn er ekki greindur hratt, þá verður prísinn á sjúk­dómnum miklu hærri.

Sjúk­ling­ur­inn á ekki að fara nema einu sinni eða tvisvar í röð til hjarta­lækn­is­ins en ekki tutt­ugu og fimm sinnum eins og menn gera í dag.

Til dæmis ef sjúklingur kemur til sérfræðings og er greindur með háþrýsting, þá á hann ekki að fara á þriggja mánaða fresti í tíu ár til sérfræðingsins heldur bara til síns heimilis­læknis. Sérfræðingurinn greinir og býr til meðferðar­áætlun, heimilis­læknirinn sér um meðferðina.

Sjúklingurinn á ekki að fara nema einu sinni eða tvisvar í röð til hjarta­læknisins en ekki tuttugu og fimm sinnum eins og menn gera í dag. Við það er ég handviss um að kostnaðurinn af sérfræðingunum minnkar mjög mikið.

Engin heilbrigðisstefna

Jakob glósar eitthvað hjá sér áður en hann orðar næstu vanga­veltu: Þegar þú varst með undir­skrifta­söfnunina talaðir þú um að útgjöld til heilbrigðis­mála væru of lág og nefndir töluna 11 prósent sem viðmið sem ætti að stefna að af vergri land­framleiðslu.

Kári: Já, en nú tala Samtök atvinnu­lífsins um að í dag sé þetta ennþá minna en talað hefur verið um eða 7,2 prósent.

Jakob: Í það minnsta vitum við að það er vel fyrir neðan átta. Og þú hefur talað um að það þurfi að auka framlögin, þau þurfi að vera 11 prósent.

Kári: Ég talaði um að við yrðum að auka þau myndar­lega. Og ég setti þetta niður sem einhvers konar stake in the ground – mælistiku.

Jakob: En nú vitum við öll að það er ekkert sem heitir heilbrigðis­stefna í þessu landi.

Kári: Það sem þarf að gera er að setja saman heildar­stefnu áður en farið er í að auka fjár­framlög. Til dæmis þarf að greina: Hvaða hluti af heilbrigðis­þjónustunni á að vera á höndum Land­spítalans – sem er þjóðar­spítalinn? Hvað á að vera á höndum legu­deilda spítalans? Hvað á göngu­deildum spítalans? Hvað á að vera á höndum sérfræðinga á stofum úti í bæ? Hvað í heilsu­gæslunum og hvað í öðrum stofnunum heilbrigðis­kerfisins?

Staðreyndin er sú að læknis­fræði er alltaf að verða tækni­væddari. Og það er alltaf að verða stærri og stærri hundraðs­hluti heilbrigðis­þjónustunnar sem verður að vera á höndum mikilla sérfræðinga. Þannig að Land­spítalinn verður að vissu leyti að vera miðtaugakerfi heilbrigðis­kerfisins. Land­spítalinn á til dæmis að sjá um gæða­eftirlit í heilsu­gæslunni. Hann á að sjá um gæða­eftirlit hjá sérfræðingum á stofum úti í bæ. Í dag er ekkert gæða­eftirlit neins staðar. Takið eftir því að við erum að rífa hlutfalls­lega mörgum sinnum fleiri háls­kirtla úr börnum heldur en gerist í löndunum í kringum okkar. Og hvað þýðir það? Það þýðir að menn eru að afla sér fjár með líkams­árásum á börn.

Jakob: Það eru fleiri svona dæmi…

Kári: Hlustaðu nú á mig! Það er bara þannig að svo margt í læknis­fræði er svona judgement-call. Og ef það er enginn sem hjálpar þér við að halda þig réttu megin við línuna, þá ferðu yfir hana. Og það er ekkert gæða­eftirlit, það er ekkert eftirlit. Og ég er ekki í nokkrum vafa að allir þessir háls-nef- og eyrna­læknar hafa verið hundrað prósent vissir um að það væri rétt í hvert einasta skipti sem þeir tóku háls­kirtla.

Jakob: Tann­læknirinn minn kallaði mig aftur til sín í síðustu viku, nokkuð sem hann er ekki vanur að gera, og hann sagði: Jakob minn, ég varð nú að fá þig hingað fyrir jólin til að auka aðeins tekjurnar. Hann sagði þetta að sjálfsögðu í gríni en auðvitað segir þetta manni að það sé ákveðinn möguleiki til staðar.

Kári: Já, já. Já, já.

Jakob: Ég veit ekkert hvort hann fann í alvörunni skemmd eða ekki!

Kári: Já, já, jú, jú. Þetta er flókið.

Why do you want to kill us all?

Þessi flókna veröld er hugleidd í hljóði, síðan segir Jakob: Ef við megum, mig langar svo að fá þitt take á þetta heilbrigðis­kerfi.

Kári: En aðeins um hvað lífið getur verið flókið! Fyrir nokkrum vikum síðan komst erlendur blaða­maður að því að það fæðast ekki lengur börn á Íslandi sem eru með Down-syndrom.

Jakob: Já, jú.

Kári: Það komu til mín óteljandi erlendar sjónvarps­stöðvar út af þessu. Og allir byrja þeir á sama útgangs­punktinum, þessir blaðamenn, að ég hafi jafnvel staðið á bak við þetta. Meðal annars kom kona frá BBC sem sjálf á barn með Down-syndrom og sat með mér heilan eftir­miðdag að ræða við mig. En það er tiltölu­lega einfalt að taka á þessu vegna þess að það sem hefur gerst hér er að við höfum einfald­lega ákveðið að konur megi ákveða hvort þær fari í fóstur­eyðingu eða ekki. Þær mega ákveða hvort þær bera sitt barn og eiga sitt barn eða fara í fóstur­eyðingu. Við sem samfélag höfum veitt konum heimild til að fara í fóstur­eyðingu upp að ákveðnum tíma­punkti.

Það komu til mín ótelj­andi erlendar sjón­varps­stöðvar út af þessu. Og allir byrja þeir á sama útgangs­punkt­inum, þessir blaða­menn, að ég hafi jafn­vel staðið á bak við þetta.

Jakob: Þeirra er ákvörðunin – áttu við?

Kári: Já, og þegar kona ákveður þetta höfum við sem samfélag ekki heimild til að skipta okkur af ástæðum hennar til að fara í fóstur­eyðingu. Og það getur á engan máta talist ljótara að eyða fóstri með Down-syndrom heldur en heil­brigðu fóstri. Hvort tveggja er óæskilegt, það er ekki góð getnaðar­vörn að nota fóstur­eyðingar en það þýðir ósköp einfald­lega að réttur fósturs með Down-syndrom í íslensku samfélagi er hinn sami og fósturs sem er heilbrigt. Olræt?! Vanda­málið með þessa hugmynd um að við séum að útrýma öllum börnum með Down-syndrom er bara bullshit!

Við veitum konum heimild til að fara í fóstur­eyðingu og það má deila um þá ákvörðun samfélagsins – en samfélagið hefur ákveðið þetta.

Þetta gekk allt mjög vel og þessir blaðamenn tóku við þessu öllu saman. En á föstu­daginn í síðustu viku, þá var þetta allt saman toppað af ítalskri sjónvarpsstöð sem hafði beðið um viðtal og ég fallist á að tala við þá. Það var sett upp hérna inni á þessari skrif­stofu og þegar ég kem hingað inn situr á móti mér ung kona með Down-syndrom og hennar fyrsta spurning er: Why do you want to kill us all?

Auður: Ha! Þetta er nú með því... Var sjónvarpsvél með?!

Kári: Já, já. Þetta var dálítið heví. En þetta endaði með að hún kyssti mig á báðar kinnar og varð vinur minn, skilurðu! Hún hafði gefið út þessa bók hérna, hún gaf mér eintak af henni. Kári réttir fram bók á ítölsku með mynd af konunni.

Auður: En áhugavert.

Auður Jónsdóttir og Jakob Falur Garðarsson.
Auður Jóns­dóttir og Jakob Falur Garð­ars­son.

Læknar bara venjulegt fólk

Bókin er handfjötluð og höfundurinn skoðaður. Síðan spyr Jakob: En er ekki ástæðan fyrir þessu hjá okkur sú, að það er boðið upp á hnakka­þykktar­mælingu í heilbrigðis­kerfi okkar?

Kári: Ástæðan fyrir þessu er sú að við erum með ofboðs­lega gott prenatal care. Besti hluti heilbrigðis­kerfisins hjá okkur er prenatal care (mæðra­eftirlit). Konur koma oftar í skoðun fyrir fæðingu heldur en annars staðar. Ungbarna­dauði á Íslandi er rétt um tveir af þúsund. Þannig að við erum með alveg feikna gott kerfi. Þannig að konur fá þessa ástæðu upp í hendurnar oftar en annars staðar.

Læknar eru því miður alltof óöguð stétt. Þeir gera skrýtna hluti. Og læknar ættu að vera agaðri en aðrar stéttir þegar þeir ráð­leggja fólki hluti sem lúta að lífi og dauða. En þeir eru bara venju­legt fólk.

Auður: Ég lenti nú í því þegar ég var ung og á lyfjum við floga­veiki að verða ólétt fyrir slysni og fara til kven­sjúkdóma­læknis. Þá var haldið að áhrifin af lyfjunum væru meiri en þau eru í raun og veru og mér var ráðlagt undir rós að fara í fóstur­eyðingu – sem ég gerði – en nú í dag myndi enginn ráðleggja mér það. Lyfin hafa áhrif, en samt ekki eins mikil áhrif og þá var haldið.

Kári: Sko, ástæðan fyrir því að þetta gerist er að fóstur­eyðingar voru gefnar frjálsar svo stuttu áður en þú lendir í þessu. Ekki nema svona áratugur eða einn og hálfur. Og menn voru að læra að nota þessa leið.

Læknar eru því miður alltof óöguð stétt. Þeir gera skrýtna hluti. Og læknar ættu að vera agaðri en aðrar stéttir þegar þeir ráðleggja fólki hluti sem lúta að lífi og dauða. En þeir eru bara venjulegt fólk.

Flugvöllurinn er ekkert issjú

Jakob: Nú erum við með nýja ríkis­stjórn og verið að setja aukna fjármuni í heilbrigðis­kerfið. En eins og þú segir – sem ég er alveg sammála – að það er ekkert vit í því að dæla peningum í heilbrigðis­kerfið án þess að vera með einhverja stefnu.

Kári: Ég er alveg gjör­samlega sammála því.

Jakob: Þetta er níundi heilbrigðis­ráðherrann á ellefu árum – sem við erum að fá núna. Það gefur auga leið að heilbrigðis­ráðherrann, hver svo sem hann nú er og úr hvaða flokki, hefur ekki haft nein tækifæri til að implimentera neina stefnu.

Kári: Það sem truflar mig nú meira en það er að maður sér þess engin merki að það hafi raun­verulega verið sett saman heildar­stefna í heilbrigðis­málum síðan Magnús Kjartansson var heilbrigðis­mála­ráðherra.

Jakob: Og enginn að tala um það.

Kári: Enginn að tala um það. Við verðum að passa okkur svolítið á því hvernig við tökum á þessum heilbrigðis­málum. Ein af hættunum sem ég sé er sú að menn fari út í svipað og nýorðinn menntamála­ráðherra gerir með mennta­málin. Við vitum að menntamál á Íslandi eru í töluverðu rusli. Hvað er það fyrsta sem nýi menntamála­ráðherrann gerir? Hún gefur út yfir­lýsingu um að hún ætli að nota mennta­málin í nokkuð sem hefur ekkert með þau að gera: Sem tæki til að auka jafnvægi í byggð landsins. Auður: Hvernig yfir­færirðu þetta yfir á heilbrigðis­kerfið?

Kári: Vanda­málið þar er að menn fara til dæmis að hlúa að, af miklum krafti, sjúkra­húsi á Ísafirði, Akureyri og Norðfirði vegna þess að það er mikilvægt upp á starfsemi í lókal byggð. Þegar staðreyndin er sú að það er í raun ekki forsenda að reka nútíma­spítala nema á einum stað á Íslandi.

Jakob: Eru menn ekki að verða sammála um það?

Kári: Menn eru að hluta til sammála um það en það er dálítil tilhneiging til að ætla Fjórðungs­sjúkra­húsinu á Akureyri of mikið. En staðreyndin er sú að fólkið á Akureyri og fólkið úti á landi á rétt á því að fá jafn góða heilbrigðis­þjónustu og við hin og hana veitum við með því að sjá til þess að sjúkra­flutningar séu mjög góðir.

Auður: Hvað finnst þér þá um flug­völlinn?

Kári: Flug­völlurinn á ekki að skipta neinu fokkings máli.

Jakob: En hvað með aðgengi allra að heilbrigðis­þjónustu?

Kári: Ég vil ekki blanda saman deilum um þetta tvennt.

Auður: En það er svo oft talað um það í samhengi.

Jakob: Það er ekkert issjú með þennan flugvöll.

Stóra málið er að ganga úr skugga um að það séu mjög góðir sjúkra­flutn­ingar. Ef það er ekki hægt að stunda almenni­lega sjúkra­flutn­inga með þyrlum, þá verðum við að hafa þennan flug­völl.

Kári: Við skulum orða það þannig að það er ekki stóra málið. Stóra málið er að ganga úr skugga um að það séu mjög góðir sjúkra­flutningar. Ef það er ekki hægt að stunda almennilega sjúkra­flutninga með þyrlum, þá verðum við að hafa þennan flugvöll.

Jakob: Ég held að meira en níutíu prósent sjúkra­flutninga í lofti séu ekki akút.

Kári: Ef að það þarf flugvöll, þá á hann að vera þarna. Vegna þess að mínútur geta ákvarðað hvort menn lifa eða deyja. Og ein algengasta ástæða dauða í íslensku samfélagi eru kransæða­sjúkdómar. Þar sem að það getur skipt öllu máli að koma manneskju í þræðingu mínútu fyrr heldur en seinna.

Auður: Er hægt að notast alfarið við þyrlur?

Kári: Nú veit ég ekki hvort það er hægt að nota þyrlur til að flytja manneskjur að af öllu landinu. Ef það er hægt, þá á að nota þyrlur. Það á að fjárfesta mikið í því að sjá til að sjúkra­flutningar séu effektívir.

Einstaklingurinn getur staðið fyrir massívri einkavæðingu

Jakob kinkar kolli hinn áhuga­samasti og beinir því næst talinu að fjar­lækningum. Er hægt að notast við þær?

Kári: Þær notarðu í algjörri neyð.

Jakob: En ég meina…

Kári: Hvað ætlarðu að gera í fjar­lækningum?

Jakob: Ég á við einfaldari lækna­þjónustu eins og í heilsu­gæslunni.

Kári: Það á að vera hægt að ráðleggja lókal­lækni í gegnum svona fjarfunda­búnað. Það er alveg sjálfsagt og það er mjög einfalt. Og kostar mjög lítið.

Jakob: En það er engin stefna í því?

Kári: Það er engin stefna í heilbrigðis­málum almennt. Við erum með þessi tiltölu­lega nýju lög um sjúkra­tryggingar – að setja þau lög án þess að hafa heildar­stefnu í heilbrigðis­málum hefur til dæmis gert það að verkum að forstjóri sjúkra­trygginganna hefur einn og út af fyrir sig staðið fyrir alveg massívri einka­væðingu í íslenskri heilbrigðis­þjónustu. Og Stein­grímur Ari Arason er frjáls­hyggju­maður. Hann lítur svo á að einka­væðingin sé góð fyrir okkar samfélag og hefur því verið að þjóna samfélaginu eins vel og hann heldur að hann geti.

Jakob: Ertu þá að vísa til samnings sjálfstætt starfandi lækna? Kári: Já, hann hefur verið aðhalds­samur við spítalann en mjög frjáls­lyndur í samningum sínum við sjálfstætt starfandi lækna. Með því móti hefur vaxið upp þessi risavaxni sveppur af einka­stofum úti í bæ sem eru að taka stærri og stærri hundraðs­hluta af heildar­kostnaði við heilbrigðis­þjónustu.

Auður: Svo meðan það er engin stefna, þá getur einn einstaklingur haft svona mikil áhrif?

Kári: Já, einn einstaklingur gert allskonar hluti. Og ekki misskilja mig. Ég er ekkert að dæma þessar stofur úti í bæ og segja þær vera vondar. Ég er bara að segja að það sé engin stefna.

Það ætti að sjá til þess að það væru sér­fræð­ingar til staðar til þess að ráð­leggja læknum á öllum stigum heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Gate-keepers íslenska heilbrigðiskerfisins

Nú er komið að Auði að spyrja: Gætir þú teiknað upp í grófum dráttum heilbrigðis­stefnu eins og ef þú værir að krota hugmyndir á blað? Svona litla mynd af stefnu.

Kári: Þá myndi ég skilgreina Land­spítalann sem miðtaugakerfi heilbrigðis­þjónustunnar sem ætti ekki bara að sjá um hina tækni­væddu heilbrigðis­þjónustu þeirra sem þurfa á slíku að halda heldur eigi að veita öllu heilbrigðis­kerfinu gæða­stjórn. Það ætti að sjá til þess að það væru sérfræðingar til staðar til þess að ráðleggja læknum á öllum stigum heilbrigðis­kerfisins. Heilsugæslu­læknar ættu að eiga aðgang að sérfræðingum spítalans, skilgreindan aðgang til þess að leita aðstoðar við lausn á flóknum vanda­málum. Ég myndi líta svo á að það væri mjög mikilvægt að það væri greiður aðgangur að sérfræðingum, bæði inni á göngu­deildum spítalans og sjálfstætt starfandi sérfræðingum – fyrir fólkið í landinu. Fólkið gæti leitað til þeirra til að fá greiningu á sínum sjúkdómum en það væri stefnt að því að láta meðferðina og eftir­fylgnina vera í höndum heilsu­gæslunnar í stað þess að vera með tilvísunar­kerfi. Þetta kerfi gæti komið í veg fyrir að þeir væru einhvers konar aðgengis­hindrun að þeim sem raun­verulega geta komið með greiningu.

Jakob: Svona Gate-keepers?

Kári: Já, Gate-keepers – þeir eiga ekki að vera það. Þeir eiga að taka við sjúklingum frá sérfræðingunum. Fólk á ekki að geta verið í eftir­meðferð hjá sérfræðingi svo árum skiptir.

Verkfærataska íslenskra lækna

Nú getur lyfja­lobbíistinn ekki hamið sig lengur og spyr: Svona í ljósi þess að ég kem úr lyfja­áttinni, finnst þér skipta máli að íslenskir læknar hafi sömu verkfæri í sinni verkfæra­tösku og kollegar þeirra í löndunum í kringum okkur?

Kári: Algjör­lega. Og ég held því fram að það sé alveg ofboðs­lega mikið réttlætismál að sjá til þess að við höfum öll nýjustu lyf til þess að spila úr. Mjög mikið af þessum nýjustu lyfjum eru lyf sem geta lengt líf mjög mikið hjá þeim sem eru með alvarlega sjúkdóma. Og ég held því fram að við eigum að teygja okkur mjög langt. Númer eitt í því er að finna peninga til þess að kaupa þessi lyf fyrir fólk sem er með þessa sjúkdóma sem margir hverjir eru krabba­mein. En við eigum líka að taka þátt í alþjóðlegri tilraun til þess að koma einhverju skikki á þessa verð­lagningu.

Það má ekki gleyma því að þessi lyf, sem er verið að búa til, verða til vegna þátttöku sjúklinga með sjúk­dómana. Það er ekki hægt að búa þau til án þess að menn taki þátt í klínískum rann­sóknum eða lyfja­tilraunum. Það er raun­verulega, í huga mínum, svik við þetta fólk, sem tekur þátt, að verð­leggja lyfin á þann hátt að þeir sem raun­verulega þurfa á þeim að halda geta aldrei fengið þau. Þetta er flókið vegna þess að lyf verða að vera dýr til þess að hægt sé að þróa ný lyf af því að það er svo dýrt að þróa þau. Það tekur að meðaltali tíu til fimmtán ár að gera það og einmitt þess vegna er ég svona æstur yfir þessu, lyfja­iðnaðurinn gerir sér ekki grein fyrir hversu viðkvæmur þessi samningur við samfélagið er.

Ákvarðanir sem stytta líf fólks

Auður: Nú er ég hinn almenni fávísi skatt­greiðandi og spyr: Er kannski verið að svíkja okkur Íslendinga um lyf sem er verið að nota á Norður­löndunum og í Þýska­landi? Erum við nógu meðvituð um hvaða lyf við fáum og hver ekki?

Kári: Ég get ekki tjáð mig fyllilega um það en það er alveg ljóst að töluvert af þessum nýju lyfjum hefur komið hingað seinna en í löndunum í kringum okkur.

Auður: Hversu mikið seinna?

Kári: Jakob er í betri aðstöðu til að tjá sig um það.

Jakob: Á myndinni sem ég sýndi þér í gær, þegar við bárum Ísland saman við Norður­löndin, mátti sjá að á síðustu fjórum árum voru komin í notkun tuttugu og fimm ný krabbameinslyf. Tuttugu og fjögur þeirra voru komin í notkun í Noregi, tuttugu og tvö í Danmörku og Svíþjóð, sautján í Finnlandi, en einungis átta komin í notkun hér á landi. Þetta er bara fakta.

Kári: Og þetta er grafal­varlegt. Þetta eru ákvarðanir sem enda á því að stytta líf fólks.

Þurfum að taka afstöðu sem samfélag

Auður: Hversu mikinn rétt eigum við, sem samfélag, til þess að biðja um þessi lyf?

Kári: Þetta er það sem ég var að reyna að prédika þegar við vorum í þessari undir­skrifta­söfnun. Það er bara spurning um hvað samfélagið vill. Ég held því fram að samfélagið vilji að við fjár­festum í svona lyfjum sem hluta af fjár­festingu í heilbrigðis­kerfinu. Grund­vallar forsenda þess að við getum risið undir skilgreiningunni á samfélagi er að við hlúum að þeim sem eru lasnir og meiddir. Og þessi lyf eru besta leiðin til að hlúa að fólki sem er með allskonar krabba­mein. Ég held því fram að við eigum að fórna ýmsu öðru til þess að geta hlúð að þessu fólki.

Ég held því fram að sam­fé­lagið vilji að við fjár­festum í svona lyfjum sem hluta af fjár­fest­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu. Grund­vallar for­senda þess að við getum risið undir skil­grein­ing­unni á sam­fé­lagi er að við hlúum að þeim sem eru lasnir og meiddir.

Auður: Hversu meðvitaður er almenningur um þetta?

Kári: Það er mjög erfitt fyrir almenning að setja sig inn í þetta. Ég held að almenningur verði að taka afstöðu til hins almenna prinsipps sem er þetta: Viljum við eða viljum við ekki fjárfesta í að byggja upp heilbrigðis­kerfi sem stenst samjöfnuð við heilbrigðis­kerfi annarra landa. Á móti kemur að það birtist af og til tölfræði sem segir að heilbrigðis­kerfið á Íslandi sé svo ofsalega gott.

Auður: Hver eru þá viðmiðin?

Kári: Viðmiðin eru mismun­andi. Ein af ástæðunum fyrir því að við komum vel út úr saman­burði af þessari gerð er að fjar­lægðir eru litlar á Íslandi. Fjar­lægðin milli okkar og fólksins sem vinnur í heilbrigðis­kerfinu er tiltölu­lega lítil. Olræt? Við erum lítið samfélag, ekki stórt samfélag. Stóru samfélögin koma alltaf miklu verr út úr þessu. Andorra kom til dæmis út sem land með besta heilbrigðis­kerfi í heimi – skilurðu.

En stóra málið er að það þarf að setja saman heildar­stefnu. Menn þurfa að gera sér grein fyrir því að heilbrigðis­þjónustan er dýrari litla samfélaginu en stóra samfélaginu af því að við erum svo fá að kostnaður á hvern einstakling er töluvert hærri, þú færð ákveðinn magn­afslátt í stærra samfélagi.

Við þurfum að taka afstöðu sem samfélag, að við ætlum að eyða ákveðnum hundraðs­hluta af því sem við öflum til þess að hlúa að meiddum og lösnum. Mér finnst eðlilegt að það breytist miðað við afkomu samfélagsins. Og við komumst ekkert upp með að eyða 7,2 prósent af vergri lands­framleiðslu í heilbrigðis­kerfið og halda því fram að við höfum heilbrigðis­þjónustu sem jafnast á við það sem finnst annars staðar.

Ef Kári væri heilbrigðisráðherra?

Auður: Hvað myndir þú gera ef þú værir heilbrigðis­ráðherra núna?

Kári: Ég myndi setja saman heildar­stefnu – allt annað er auka­atriði – og taka til þess tvo mánuði. Það er engin ástæða til þess að bíða fram í byrjun febrúar til þess að hafa tilbúna heildar­stefnu. Það er hægt að fá fullt af góðu fólki til þess að setjast yfir þetta og síðan má endur­skoða þá heildar­stefnu linnulaust. Það má láta endur­skoðun þessarar heildar­stefnu vera aðal­verkefni heilbrigðis­ráðuneytisins á hverjum tíma fyrir sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár