Vilja afsagnir vegna Borgunarmálsins

Löglegur en sið­laus gjörn­ingur, segir þing­maður VG um Borg­un­ar­málið. Tveir þing­menn köll­uðu eftir afsögnum í þing­sal í dag.

Tveir þing­menn köll­uðu eftir því á Alþingi í dag að yfir­menn í Lands­bank­anum segi af sér vegna Borg­un­ar­máls­ins. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður VG, sagði að „að mínu viti eiga bæði stjórn og banka­stjóri að víkja“ og Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði að taka yrði þannig til hend­inni að „yfir­stjórn bank­ans víki.“

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, ræddi einnig um málið og sagði það verða flókn­ara og flókn­ara með hverjum deg­inum sem líði og stjórn­endur Lands­bank­ans hafi orðið marg­saga í mál­inu. „Fjár­mála­kerfið í heild þarf að fá yfir­haln­ingu,“ sagði hann, nú væri tæki­færi til að raða spil­unum upp á nýtt og stokka upp banka­kerfið.

„Dag eftir dag er okkur boðið upp á farsa. Farsa í boði Lands­bank­ans og Borgunar. Það er ekki boð­legt hvernig þessir aðilar hegða sér og koma hér fram,“ sagði Bjarkey um málið í dag. „Það má vel vera að þessi gjörn­ingur sé lög­legur, en hann er algjör­lega sið­laus.“ Hún sagði málið snú­ast um traust og trú­verð­ug­leika banka, sem ríkið væri komið með í fangið og hún hefði áhyggjur af.

Þor­steinn sagði málið einnig snú­ast um traust og trú­verð­ug­leika bank­ans, og væri þannig farið að snú­ast um allt annað og miklu meira en sölu bank­ans á hlut sínum í Borgun, „sem var nógu slæm.“ Nú væru Borgun og Lands­bank­inn farin að kenna hvoru öðru um. Það hafi mátt vera ljóst jafn­vel áður en bank­inn seldi hlut sinn í Borgun að til stæði að Visa Inc. keypti Visa Europe, það hafi komið fram í fjöl­miðlum og í árs­hluta­upp­gjöri hjá Visa Inc. „Nú bera menn af sér og segj­ast ekki hafa vitað þetta. Eins og ég hef sagt hér áður er fávísi ekki sak­næm en hún er rán­dýr.“

Bæði Árni Páll og Þor­steinn köll­uðu jafn­farmt eftir því að Alþingi taki málið til athug­unar. „Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að öllum steinum verði velt við,“ sagði Árni Páll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár