Kynjakvóti leitt til betri stjórnarhátta og bætt ákvarðanatöku

Rannsókn á áhrifum kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja bendir til að umfjöll­un­ar­efnin við stjórn­ar­borðið séu fjöl­breytt­ari en áður. Stjórn­ar­for­menn eru almennt jákvæð­ari í garð kynja­kvóta en almennir stjórn­ar­menn.

Þau Auður Arnardóttir og Þröstu Olaf Sigurjónsson hafa rannsakað hvaða áhrif kynjakvóti í stjörnum hefur haft á starfsemi innan þeirra.
Þau Auður Arn­ar­dóttir og Þröstu Olaf Sig­ur­jóns­son hafa rann­sakað hvaða áhrif kynja­kvóti í stjörnum hefur haft á starf­semi innan þeirra. Mynd: Aðsendar myndir

Inn­leið­ing kynja­kvóta hjá stjórnum fyr­ir­tækja hefur bætt ákvarð­ana­töku og leitt til fjöl­breytt­ari umræðna við stjórn­ar­borðið. Þetta leiða nið­ur­stöður rann­sóknar Auðar Örnu Arn­ar­dóttur, for­stöðu­manns MBA náms og dós­ents við við­skipta­deild Háskól­ans í Reykja­vík, og Þrastar Olafs Siurjóns­sonar, pró­fess­ors við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands í ljós. Þau Auður og Þröstur rit­uðu grein­ina Áhrif kynja­kvóta á stjórn­ar­brag að mati stjórn­ar­manna í nýjasta tölu­blað Tímarits um við­skipti og efna­hags­mál þar sem sagt er frá fram­kvæmd rann­sókn­ar­innar og nið­ur­stöðum hennar. [adspot]

Ísland er eitt þeirra landa sem hefur lög­leitt kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja en það var gert árið 2013. „Íslensku lögin kveða á um að ekki lægra hlut­fall en 40% skuli vera af öðru kyni í stjórnum fyr­ir­tækja,“ segir um lögin í grein­inni og falla öll fyr­ir­tæki með fleiri en 50 starfs­menn á árs­grund­velli undir þau. Gögnin sem þau Auður og Þröstur skoð­uðu í rann­sókn sinni eru frá raf­rænni könnun sem gerð var ári eftir að lögin tóku að fullu gildi. Könnunin var send stjórn­ar­mönnum 300 stærstu íslensku fyr­ir­tækj­anna. Svar­endur voru 244 stjórn­ar­menn og var hlut­fall kven­kyns svar­enda 41 pró­sent.

Stjórnarformenn jákvæðari í garð kynjakvóta en almennir stjórnarmenn

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar benda til þess að auk­inn fjöldi kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja „hafi ekki aðeins leitt, að mati stjórn­ar­manna, til rík­ari umræðna innan stjórna heldur séu umfjöll­un­ar­efnin við stjórn­ar­borðið fjöl­breytt­ari en áður. Þetta hefur bætt ákvarð­ana­töku stjórna að mati þeirra stjórn­ar­manna sem voru þátt­tak­endur í þess­ari rann­sókn.“ [links]

Meðal áhuga­verð­ari nið­ur­staðna rann­sókn­ar­innar, að mati grein­ar­höf­unda, er munur á afstöðu stjórn­ar­for­manna og almennra stjórn­ar­manna til kynja­kvóta. Jækvæðni í garð kynja­kvóta var meiri meðal stjórn­ar­for­manna en stjórn­ar­manna. „Það kann að vera lengri reynsla stjórn­ar­for­manna og/eða mögu­lega meiri yfir­sýn þeirra yfir starf stjórna og áhrif stjórna á æðstu stjórn­endur við­kom­andi fyr­ir­tækis sem skýrir þennan mun,“ segir í lokakafla grein­ar­innar.

Sambærilegar niðurstöður í erlendum rannsóknum

Þar að auki segja grein­ar­höf­undar það áhuga­vert að stjórnir séu almennt virk­ari í eft­ir­lits­hlut­verki sínu í eftir að kynja­kvót­inn var lög­festur. Þá telja stjórn­ar­menn að meiri gaumur sé gef­inn að stjórn­ar­háttum fyr­ir­tækja eftir upp­töku kynja­kvóta.

Erlendis hafa nið­ur­stöður í sams konar rann­sóknum verið á svip­aða leið. „Meðal skýr­inga sem hafa verið nefndar, í erlendum rann­sóknum, er að konur séu lík­legri til þess að vera óháðir stjórn­ar­menn og ekki með eins víð­tækt tengsla­net og karlar. Sú fjar­lægð kvenna leiði þá hugs­an­lega til sterkara eft­ir­lits. Áhættu­fælni kvenna, sem sögð er meiri en karla, hefur líka verið nefnd sem mögu­leg skýri­breyta hér um eft­ir­lits­hlut­verk stjórna,“ segir í grein þeirra Auðar og Þrastar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár