Evrópusambandið ætlar að rannsaka skattamál Ikea

Margrethe Vestager, fram­kvæmda­stjóri sam­keppn­is­mála hjá Evr­ópu­sam­band­inu, er sögð ætla að hrinda af stað rann­sókn á sænska hús­gagna­ris­anum Ikea í Hollandi.

Margrethe Vestager, framkvæmdastjóri samkeppnismála hjá Evrópusambandinu.
Margrethe Vestager, fram­kvæmda­stjóri sam­keppn­is­mála hjá Evr­ópu­sam­band­inu. Mynd: EPA

Evr­ópu­sam­bandið er sagt ætla að rann­saka skatta­mál fyr­ir­tæk­is­ins Ikea í Hollandi, en sam­kvæmt frétt Financial Times sem birt­ist í gær, mun Margrethe Vestager, fram­kvæmda­stjóri sam­keppn­is­mála hjá Evr­ópu­sam­band­inu, sjá um rann­sókn­ina.

Fyr­ir­tækið á að hafa kom­ist hjá því að borga skatt upp á einn millj­arð evra á árunum 2009 til 2014 um alla Evrópu. Þetta kom fram í skýrslu sem var gefin út árið 2016 á vegum The Greens hjá Evr­ópu­þing­inu.

Ónefndur hol­lenskur emb­ætt­is­maður segir í Wall Street Journal að hol­lensk yfir­völd hafi verið látin vita af þess­ari vænt­an­legri rann­sókn.

Ikea sem starf­rækir 242 búðir í Evrópu var stofnað í Svíþjóð en er nú í eigu Stichting Ingka Foundation sem er með aðsetur í Hollandi.

Fleiri stór­fyr­ir­tæki hafa verið rann­sökuð á síð­ustu miss­erum hjá Evr­ópu­sam­band­inu á borð við Apple, Starbucks og Amazon.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár