101 þingmál á leiðinni

Rík­is­stjórnin er með 101 mál á þing­mála­skránni. Flest er fjár­mála­ráð­herra með, en for­sæt­is­ráð­herra og mennta­mála­ráð­herra fæst. Mest gæti mætt á félags­mála­ráð­herra.

Rík­is­stjórn Íslands hyggst leggja fram 101 þing­mál á vor­þing­inu, sem gert er ráð fyrir að standi út maí. Flest málin hyggst fjár­mála­ráð­herr­ann Benedikt Jóhann­es­son leggja fram, eða sautján tals­ins, en Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Kristján Þór Júl­í­us­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra ætla að leggja fram fæst mál, þrjú hvor.

For­sæt­is­ráð­herra er búinn að leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sína um breytta skipan ráðu­neyta í stjórn­ar­ráð­inu. Þá á hann bara eftir að flytja þing­inu tvær skýrslur, ann­ars vegar um mál­efni þjóð­lendna og hins vegar um fram­kvæmd upp­lýs­inga­laga.

Fjár­mála­ráð­herra leggur fram ýmis mál lögum sam­kvæmt, eins og fjár­mála­stefnu og fjár­mála­á­ætlun til fimm ára. Fjár­mála­stefnan er þegar komin fram. Hann er einnig með mál eins og nið­ur­lagn­ingu Líf­eyr­is­sjóðs bænda og hjúkr­un­ar­fræð­inga á mála­skránni, sem og ýmsar inn­leið­ingar á Evr­óputil­skip­unum.

Líklega er það Þor­steinn Víglunds­son félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra sem ætlar að leggja fram þau mál sem gætu orðið umdeild­ust. Hann er með þrettán mál á þing­mála­skránni, meðal ann­ars jafn­launa­vottun og heild­ar­end­ur­skoðun á lögum um mál­efni fatl­aðs fólks. Þar er ætl­unin að lög­festa not­enda­stýrða per­sónu­lega aðstoð. Þá ætlar hann að leggja fram frum­varp um almanna­trygg­ingar, þar sem farið verður m.a. í að taka upp ein­fald­ara greiðslu­kerfi vegna bóta og líf­eyris. Þá verður stuðn­ingur við öryrkja sem hafa mjög lágar eða engar tekjur bættur og kveðið verður á um að líf­eyr­i­s­töku­aldur verði hækk­aður úr 67 árum í 70 ár. Frí­tekju­mark vegna atvinnu­tekna elli­líf­eyr­is­þega verður líka hækkað.

Þá mun félags­mála­ráð­herra líka leggja fram breyt­ingu á fæð­ing­ar­or­lofi, með það að mark­miði að hækka hámarks­greiðslur í öruggum skrefum á næstu fjórum árum.

Endurskoðar skipan ferðamála

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra ætlar meðal ann­ars að leggja fram frum­varp um Flug­þró­un­ar­sjóð, sem á að styðja við reglu­legt milli­landa­flug til Akur­eyrar og Egils­staða. Hún ætlar líka að fara í heild­ar­end­ur­skoðun á gild­andi lögum um skipan ferða­mála og heild­ar­end­ur­skoðun á lögum um fag­gild­ingu. Umgjörð verður sett um starf­semi Ferða­mála­stofu með lögum og hún ætlar að end­ur­flytja þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um aðgerða­á­ætlun um orku­skipti fram til árs­ins 2030.

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra ætlar að leggja fram frum­varp um þjóð­bundna mann­rétt­inda­stofnun, og þings­á­lyktun um lög­gæslu­á­ætlun fyrir næstu árin. Hún hyggst einnig leggja fram frum­varp til laga um breyt­ingar á gjaf­sóknum og laga­frum­varp sem tengj­ast nýjum Lands­rétti.

Setur lög um rafsígarettur og stera

Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra er með fimm mál á þing­mála­skrá sinni, meðal ann­ars heild­ar­end­ur­skoðun á lyfja­lögum, sem er byggt á frum­varpi sem for­veri hans lagði fram á síð­asta þingi. Hann ætlar einnig að leggja fram frum­varp um mis­notkun vefja­auk­andi efna og stera, og setja heild­stæðan ramma utan um allt sem teng­ist raf­sí­gar­ettum. Hann mun einnig leggja fram lyfja­stefnu fyrir næstu árin.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra er með sjö mál á sinni könnu. Hún ætlar að end­ur­skoða búvöru­lögin, og þar með úthlutun toll­kvóta fyrir land­bún­að­ar­vörur og und­an­þágur frá ákvæðum sam­keppn­islaga. Hún ætlar að leggja fram frum­varp um heild­ar­lög um Mat­væla­stofnun, stjórn­sýslu Fiski­stofu, lög um vigtun sjáv­ar­afla og um stjórn ála­veiða, svo dæmi séu tekin.

Ný lög um Þjóðleikhús og dansflokkinn

Kristján Þór Júl­í­us­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hyggst leggja fram frum­varp um Lánasjóð íslenskra náms­manna, en þó ekki sama frum­varp og for­veri hans lenti í vand­ræðum með. Frumvarp hans fjallar um lán­veit­ingar til frum­greina­náms. Hann ætlar líka að leggja fram ný heild­ar­lög um sviðs­lista­starf­semi, þar með talið Þjóð­leik­húsið og Íslenska dans­flokk­inn. Hann hyggst líka inn­leiða til­skipun frá ESB um við­ur­kenn­ingu á fag­legri menntun og hæfi fólks frá öðrum EES ríkjum.

Jón Gunn­ars­son sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra er með átta mál á sinni þing­mála­skrá, en eitt er reyndar tekið fram tvisvar. Hann ætlar meðal ann­ars að afnema skyldu Reykja­vík­ur­borgar til að fjölga borg­ar­full­trúum úr 15 í 23, en það var ákveðið með sveit­ar­stjórn­ar­lögum að fjöldi full­trúa skyldi auk­inn. Hann ætlar að inn­leiða reglu­gerð um net­hlut­leysi og ýmsar aðrar inn­leið­ingar eru einnig á hans könnu.

Björt Ólafs­dóttir umhverfis- og auð­linda­ráð­herra er með þrettán mál á þing­mála­skránni. Þar á meðal eru ýmsar inn­leið­ingar á Evr­óputil­skip­unum, en líka heild­ar­lög um Umhverf­is­stofnun, um land­mæl­ingar og grunn­korta­gerð, um skóg­rækt og land­græðslu.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra er með tólf mál á sinni skrá og flest varða EES samn­ing­inn og inn­leið­ingar honum tengdar. Hann ætlar þó líka að end­ur­skoða lög um Íslands­stofu og vill stofna aðlægt belti utan land­helgi Íslands, sem felur í sér vald­heim­ildir fyrir ríkið að 24 sjó­mílum frá grunn­línum land­helg­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár