Facebook reisir umhverfisvænt gagnaver í Texas

Sam­fé­lags­miðl­aris­inn Facebook ætlar að byggja gagna­ver í Fort Worth í Texas sem verður ein­göngu knúið með end­ur­nýj­an­legri orku. Til þess fjár­festir fyr­ir­tækið 500 millj­ónum banda­ríkja­dala eða um 67 millj­örðum íslenskra króna.

Áætlanir gera ráð fyrir að gagna­verið verði til­búið til notk­unar seint á næsta ári en fyrir rekur Facebook fimm álíka gagna­ver í Iowa, Oregon, Norður-Karólínu og Luleå í Svíþjóð. Til að spara orku verður vél­bún­aður þessa gagna­vers ekki kældur með raf­knúnum viftum heldur með nátt­úru­legum vindum. Slíkt hóf Facebook að gera í Oregon með góðum árangri.

Á frétta­bloggi Facebook segir Tom Furlong, yfir­maður inn­viða fyr­ir­tæk­is­ins að þetta verði eitt þró­að­asta, afkasta­mesta og umhverf­is­væn­asta gagna­ver í heim­inum. „Þróun okkar á gagna­ver­unum er mik­il­vægur hluti af því að auka hag­kvæmni inn­viða fyr­ir­tæk­is­ins og hefur þegar sparað okkur meira en tvo millj­arða doll­ara í kostnað síð­ustu þjú ár.“

Vindorka verður beisluð til að knýja gagna­verið en 200 mega­vatta vind­orku­ver hefur verið reist til að anna orku­eft­ir­spurn nýja gagna­vers­ins. „Kolefna­spor hvers not­anda á ári á Facebook er nú jafn mikið og af með­al­stórum bolla af latté,“ segir Furlong enn fremur í bloggi sínu.

Stór­fyr­ir­tæki í tölvu­iðn­aði kepp­ast nú við að reisa gagna­ver víðs­vegar um heim­inn. Fyrr á þessu ári bár­ust fregnir þess efnis að tölvuris­inn Apple hafi þreifað fyrir mögu­leika á að reisa gagna­ver hér á landi. Verið reisti Apple að lokum í Danmörku.

Á vef íslenskrar verk­fræði­stofu er bent á hag­kvæmni­mögu­leika þess að reisa gagna­ver á Íslandi. Hér eru góðir kæli­mögu­leikar og lágt orku­verð miðað við það sem þekk­ist ann­ar­staðar í heim­inum. „Útihiti er að jafn­aði mjög lágur og loft­raki að sama skapi. Á Íslandi þarf því minni raf­orku til rekst­urs gagna­vera en í flestum öðrum löndum heims,“ segir á vef Eflu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár