Var Luke Skywalker hryðjuverkamaður?

Póli­tíkin í vetr­ar­braut­inni langt langt í burtu er að mörgu leyti flókin. Það hefur ekki komið í veg fyrir að fjöl­margir fræð­ingar hafi reynt að ráða í hana. Gæti verið að hið góða sé í raun hið vonda? Er Star Wars kannski hryðju­verka­á­róður?

Kyn­slóð­irnar sem sáu fyrstu Star Wars mynd­irnar í bíó sem börn und­ir­búa sig nú til að fara með börnin sín, eða jafn­vel barna­börnin, í kvik­mynda­hús í dag eða á næstu dögum til að berja nýj­ustu mynd­ina í þessum vin­sælasta geimæv­in­týra­bálki sög­unnar augum. Flestir bera barns­lega von í brjósti að myndin verði aft­ur­hvarf til gömlu mynd­anna þriggja og eins fjarri Jar Jar Binks-lit­uðu von­brigð­unum sem George Lucas, hug­mynda­smiður Star Wars, bar á borð fyrir áhan­gend­urna á árunum 1999 til 2005.

Þær vonir hafa fengið byr undir báða vengi með þeim stiklum sem sýndar hafa verið úr mynd­inni, og þeim dómum sem þegar hafa verið birtir. Ljóst er að Disney, sem keypti rétt­inn að Star Wars af Lucasfilm árið 2012, ætlar sér sann­ar­lega að spila á þá for­tíð­ar­þrár­strengi til að ná til baka fjár­fest­ingu sinni í verk­efn­inu. Fregnir herma raunar að von sé á einni mynd á ári næstu sex árin ásamt breið­ustu vöru­línu af leik­föngum sem nokkru sinni hefur verið gefin út.

Pólitík í vetrarbraut langt langt í burtu

Vegna þess að Star Wars nær til svo margra, og hefur náð að verða aðdrátt­ar­afl fyrir nýjar og nýjar kyn­slóðir ára­tugum saman, þá er auð­vitað búið að greina mynd­irnar niður í öreindir. Ein af skemmti­legri umræðum sem hægt er að finna um þennan gervi-geim­heim snýst um póli­tík­ina í vetr­ar­braut­inni langt, langt í burtu. Seinni trílogían, sem átti að ger­ast á undan fyrri trílog­í­unni, snérist að stóru leyti um þessar póli­tísku átaka­línur sem áttu sér stað innan Vetr­ar­braut­ar­lýð­veld­is­ins (e. Galactic Republic) sem varð til þess að það breytt­ist í í Vetr­ar­braut­ar­heims­veldið (e. Galactic Empire) og leiddi til þess að and­spyrnu­banda­lagið (e. Rebel Alliance) var myndað sem mótafl.

Stjórn­skipan innan þess­ara bákna hefur þótt nokkuð óskilj­an­leg og Seth Masket, aðstoð­ar­pró­fessor í stjórn­mála­fræði við háskól­ann í Denver sagði við npr-útvarps­stöð­ina í vik­unni að hann efað­ist um að George Lucas skildi hana sjálfur. Masket, sem hefur skrifað um stjórn­mál Star Wars árum saman, segir að það sé erfitt að ímynda sér að það stjórn­kerfi sem kynnt er til leiks í mynd­unum myndi end­ast í þús­und daga, og hvað þá þús­undir ára eins og lagt er upp með í mynd­unum.

En í mjög stuttu máli snérist þessi fyrsti kafli, sem sýndur var við mjög mis­jafnar vin­sældir um síð­ustu ald­ar­mót, um hvernig öld­ung­ar­deild­ar­þing­mað­ur­inn Palpatine sölsar undir sig völd lög­gjafa­valds­ins og breytir lýð­veld­inu í ein­ræð­is­herra­rekið heims­veldi og sjálfan sig að keis­ara þess. Í geimnum.

Er góða liðið vonda liðið?

Fyrir þá sem ólust upp með myndum 4-6, sem frum­sýndar voru öðru hvorum megin við árið 1980, var engin vafi um hver væri hin póli­tíska staða í þeim. Annars vegar er and­spyrnu­hreyf­ingin með sína Jedi-ridd­ara og góða Máttinn (e. the Force) í sínu liði og hins vegar er Vetr­ar­braut­ar­heims­veldið með þá sem hafa umfaðmað myrkrar­hluta Máttsins í aðal­hlut­verki. Þessar and­stæður birt­ast auð­vitað skýr­ast í feðg­unum Luke Skywalker, hinum bjarta, hár­blásna og góða frels­ara and­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar, og Anakin Skywalker/Darth Vader, svarta hjálm- og skikkju­klædda hálf­mann­inum sem er einn þekkt­asti hold­gerv­ingur þess illa sem fyr­ir­finnst í kvik­mynda­sög­unni. Þær birt­ast einnig í leið­togum mann­anna tveggja. Annar er litli, græni, skakkta­landi, krút­t­dverg­ur­inn Yoda á meðan að hinn er hin gul­tennta og hættu­klædda and­styggð keis­ar­inn Palpatine. Báðir bera útlits­lega með sér að vera aug­ljós­lega góðir eða vondir.

En er þetta svona klippt og skorið? Um það er alls ekki ein­ing. Þegar önnur myndin í seinni trílog­í­unni var sýnd árið 2002 skrif­aði Jonathan V. Last fræga grein í the Weekly Standard þar sem hann færði rök fyrir því að þessu væri raunar öfugt farið: Heims­veldið væru góðu gæj­arnir en and­spyrnu­hreyf­ingin þeir vondu. Hann hélt því meðal ann­ars fram að Palpatine hefði sölsað undir sig völd til þess að við­halda friði og stöð­ug­leika í vetr­ar­braut­inni, eftir að lýð­veldið var farið að missa tökin undir stjórn skrif­finna og hinna sjálf­um­glöðu Jedi-ridd­ara sem fá Mátt sinn í erfðir eins og fínt kon­ungs­borið fólk. Markmið heims­veld­is­ins væri ekki að gera alla íbúa vetr­ar­braut­ar­innar að þrælum sínum eða að breiða út eitt­hvað óskil­greint illt. Það væri að við­halda reglu.

Sigur and­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar, sem verður að veru­leika eftir stór­kost­lega geimorr­ustu og dauða bæði Palpatine og Svart­höfða, felur hins vegar í sér að völdin yfir vetr­ar­braut­inni fær­ast frá hinu mið­stýrða reglu­veldi yfir til svæð­is­bund­inna hér­aðs­stjóra, sem hafa aðgang að her og geim­skipum, til að halda almúg­anum á hverju svæði fyrir sig í skefjum. Þetta kraðak er síðan með óljós tengsl við end­ur­reist kon­ungs­veldi þar sem Leia prinsessa er tákn­rænn leið­togi.

Last líkti ástand­inu í vetr­ar­braut­inni við Sómalíu skömmu eftir ald­ar­mót: landi stjórnað af stað­bundnum stríðs­herrum sem heyra ekki undir neinn og þurfa ekki að svara fyrir verk sín. Í mynd­unum sé aldrei lögð fram nein skýr stefna um hvers­konar stjórn­skipun eigi að taka við þegar heims­veldi Palpatine hefur verið fellt. Þess í stað blasi við stjórn­skip­un­ar­leg ringul­reið.

Nið­ur­lagið í grein­inni er svona: „Þetta gerir and­spyrnu­menn­ina – hetjur Lucas – að til­komu­litlum hópi stjórn­lausra kon­ungs­sinna sem eyði­leggja vetr­ar­braut­ina svo Leia prinsessa geti fengið kór­ón­una sína aftur“.

Auðvitað átti að sprengja Alderaan

Sonny Bunch skrif­aði mjög áhuga­verða fram­halds­grein sem byggir á sömu hug­mynda­fræði í The Washington Post í októ­ber síð­ast­liðnum. Þar leggur hann út frá því að heims­veldið hafi verið í fullum rétti þegar það sprengdi Alderaan, heima­plánetu Leiu prinsessu, í fyrstu Star Wars-mynd­inni sem var sýnd.

Engar for­sendur séu fyrir því að taka orð Leiu, njó­sn­ara and­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar og þekkts upp­reisn­ar­leið­toga, um að Alderaan hafi verið vopn­laus og frið­söm pláneta og því ekki haft neitt hern­að­ar­legt mik­il­vægi trú­an­leg. Þvert á móti rekur Bunch nokkrar lygar hennar í gegnum mynd­irnar og kemst að þeirri nið­ur­stöðu að heims­veldið hafi verið í fullum rétti við að sprengja hern­að­ar­legt skot­mark í loft upp. Sú sýn sem Lucas hafi boðið upp á í mynd­inni, að árásin á plánet­una væri hreint illsku­verk, sé fyrst og fremst áróð­urs­bragð.

Er Star Wars hryðjuverkaáróður?

Ein skemmti­leg­asta grein­ingin á Star Wars sem sett hefur verið fram á þessum grunni birt­ist síðan á vefnum Decider fyrir nokkrum dögum. Þar er því haldið fram að margt í þroska­ferli Luke Skywalker í gegnum mynd­irnar sé mjög sam­bæri­legt því sem hryðju­verka­menn öfga­trú­arafla í nútím­anum ganga í gegnum. Fyrsta tríló­gía Star Wars sé í raun saga Luke Skywalker frá eðli­leg­heitum til öfga­fullrar rót­tækni.

Þegar Luke er fyrst kynntur til sög­unnar er hann mun­að­ar­laus sveita­strákur sem á varla nokkra vini og býr hjá frænda sínum og frænku en langar í geim­her­inn. Í grein Decider er bent á að Luke hafi ekki orðið geim­hryðju­verka­maður á einni nóttu, en að hann hafi búið yfir öllum þeim kostum sem nýliða­safn­arar hryðju­verka­sam­taka leita að. Anthony Sta­helski lýsir þeim kostum ágæt­lega í hand­bók heima­varn­ar­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna. Þar segir hann að vænt­an­legir hryðju­verka­menn hafi til­hneig­ingu til að:

  • Koma frá fjöl­skyldum þar sem fað­ir­inn er ekki til staðar (eins og Luke)
  • Eigi í vand­ræðum með að mynda sam­bönd utan heim­il­is­ins (eins og Luke)
  • Laðast að hópum sem bjóði upp á við­ur­kenn­ingu og bræðra­lag (eins og and­spyrnu­hreyf­ingin)

Decider greinir líka læri­meist­ara Luke, hinn geð­þekka Obi -Wan Kenobi. Í grein­inni er hann sagður trú­ar­of­stæk­is­brjál­æð­ingur sem sé þekktur fyrir að taka unga drengi undir sinn vernd­ar­væng til að kenna þeim öfga­kennda túlkun á Mættinum. Bent er á að hryðju­verka­sam­tök leggi oftar en ekki alla áherslu á að slíta á öll tengsl nýliða sinna við aðra hópa og að ein­angra þá. Það er nákvæm­lega það sem ger­ist þegar Obi –Wan hittir Luke og segir honum að hann verði að yfir­gefa fjöl­skyldu sína til að fylgja honum. Til að tryggja þá nið­ur­stöðu lýgur hann meira að segja að Luke að keis­ar­inn hafi myrt föður hans, sem er auð­vitað ekki rétt. Hann lifði góðu lífi á bak­við svörtu grímuna.

Að lokum má nefna að sú þjálfun sem Luke fór í hjá Yoda litla, sem var blanda af lík­am­legri her­þjálfun og stækri trú­ar­inn­ræt­ingu, minnir mjög á þjálf­un­ar­búðir öfga­fullra hryðju­verka­manna. Svo voru bestu vinir hans og sam­starfs­menn lið­hlauparn­arnir og smygl­ar­arnir Han Solo og Chewbacca.

Því má vel velta fyrir sér, á grund­velli þeirrar grein­ingar sem Decider setur fram hvort Star Wars mynd­irnar séu ekk­ert annað en illa dul­bú­inn áróður hryðju­verka­sam­taka. Eða kannski eru menn bara farnir að ofhugsa skemmti­leg­ustu geim­fantasíu allra tíma og reyna að túlka hana sem eitt­hvað allt annað en hún er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár