Bjarni hefur beðið um lista yfir þá sem keyptu í Íslandsbanka og vonast til að geta birt hann

209 aðilar fengu að kaupa í Íslands­banka í lok­uðu útboði. 85 pró­sent þeirra voru inn­lendir, og þar af fengu 140 einka­fjár­festar að kaupa hlut með afslætti upp á næstum 700 millj­ónir króna. Alls 59 fjár­festar keyptu fyrir minna en 30 millj­ónir króna.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Golli

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur beðið Banka­sýslu rík­is­ins um að afhenda lista yfir þá sem fengu að kaupa 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka fyrir um tveimur vikum síðan og óskað eftir því að Fjár­mála­eft­ir­litið upp­lýsi um hvort gögnin séu háð banka­leynd.

[links]Að hans hálfu sé ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að list­inn verði birtur. „Bara ef lög stæðu í vegi fyrir því. Ég er að vona að nið­ur­staðan verði sú að við getum bara birt þetta.“

Þetta kom fram á vef RÚV sem ræddi við Bjarna um málið í dag. Þar sagði ráð­herr­ann að hann telji úti­lokað að aðrir en þeir sem telj­ast fag­fjár­festar hafi fengið að kaupa.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á þingi í gær að vand­inn við sölu­ferlið væri sá að það hafi ekki ríkt fullt gagn­sæi um ferlið. „Hins vegar er það alger­lega ljóst af minni hálfu að þegar rík­is­eign á borð við Íslands­banka er seld þá á að liggja fyrir hverjir keyptu. Það eru upp­lýs­ingar sem íslenskur almenn­ingur á heimt­ingu á. Ef ein­hver tækni­leg atriði valda því að Banka­sýsla rík­is­ins telur sig ekki geta birt þær upp­lýs­ingar tel ég rétt­ast að Alþingi geri við­eig­andi breyt­ingar á lagaum­hverfi þannig að unnt sé að birta þær því að annað gengur ekki.“

Innlendir keyptu 85 prósent

Í kynn­ingu sem Banka­sýsla rík­is­ins hélt fyrir ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál á föstu­dag var farið yfir sölu­með­ferð eign­ar­hluta í Íslands­banka. Þá var alls 22,5 pró­sent hlutur í Íslands­banka var seldur fyrir 52,65 millj­arða króna, með 2,25 millj­arða króna afslætti frá marka­virði bank­ans. Hlut­ur­inn var seldur með svoköll­uðu til­boðs­fyr­ir­komu­lagi sem þýðir að hann salan fór fram í lok­uðu útboði til val­inna fjár­festa. Í ráð­herra­nefnd­inni sitja Katrín, Bjarni og Lilja Alfreðs­dótt­ir, ferða­mála- við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

[adspot]Í kynn­ingu Banka­sýsl­unnar kom fram að fjöldi til­boða sem var tekið hafi verið 209. Þar af keyptu inn­lendir fjár­festar 85 pró­sent af hlutnum fyrir sam­tals 44,8 millj­arða króna, en erlendir aðilar 15 pró­sent fyrir 7,9 millj­arða króna.

Fjöldi inn­lendra fjár­festa sem fékk að kaupa voru 190 tals­ins. Þar af fengu 23 líf­eyr­is­sjóðir að kaupa 37,1 pró­sent þess sem selt var á 19,5 millj­arðar króna. Alls 140 íslenskir einka­fjár­festar fengu að kaupa næst mest, alls 30,6 pró­sent af því sem var selt á 16,1 millj­arð króna. Alls 13 verð­bréfa­sjóðir fengu að kaupa fyrir 5,6 millj­arða króna og „aðrir fjár­fest­ar“ frá Íslandi fyrir 3,5 millj­arða króna.

Alls 15 fjár­festar keyptu fyrir meira en einn millj­arð króna og sex keyptu fyrir á bil­inu 500 til 1.000 millj­ónir króna.

Tugir keyptu fyrir lágar fjárhæðir

Alls 24 þeirra sem tóku þátt fengu að kaupa hlut fyrir tíu millj­ónir króna eða minna, 35 keyptu fyrir tíu til 30 millj­ónir króna og 20 keyptu fyrir 30 til 50 millj­ónir króna. Því liggur fyrir 79 aðil­ar, rúm­lega helm­ingur allra þátt­tak­enda, keypti fyrir 50 millj­ónir króna eða minna.

Ef einka­fjár­fest­arnir 140 hefðu keypt hlut sinn á mark­aðsvirði hefðu þeir þurft að greiða sam­tals 688 millj­ónum króna meira fyrir hann en þeir gerðu í útboð­inu.

Í kynn­ingu Banka­sýsl­unnar var há hlut­deild einka­fjár­festa rök­studd með því að áskriftir þeirra hefðu skertar á kostnað almennra fjár­festa í frumút­boð­inu á hlutum í Íslands­banka, sem fór fram í fyrra­sumar en þá seldi ríkið 35 pró­sent hlut í bank­an­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár