Ráðherrar mega flytja undirstofnanir sínar milli staða

Frumvarp Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra um breyt­ingar á stjórn­ar­ráð­inu var sam­þykkt á Alþingi í dag. Það hefur meðal ann­ars í för með sér að nú mega því ráð­herrar ákveða aðsetur stofn­ana sem heyra undir þá, því sú heim­ild, sem hafði verið tekin út úr lögum árið 2011, er end­ur­vakin. Einnig verður nú heim­ilt að flytja starfs­menn á milli ráðu­neyta og stofn­ana.

Þetta hefur verið mikið gagn­rýnt frá því að frum­varpið kom fram, ekki síst í ljósi mis­heppn­aðrar til­raunar Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra til þess að færa Fiski­stofu til Akur­eyrar.

Sú breyt­ing hefur orðið á lög­unum að nú þarf ráð­herra að gefa Alþingi skýrslu um fyr­ir­hug­aðan flutn­ing á aðsetri stofn­unar áður en ákvörðun er tekin. Það breytir þó engu um heim­ildir við­kom­andi ráð­herra til að flytja stofn­anir.

Þá verður sam­hæf­ing­ar­nefnd um sið­ferði­leg við­mið fyrir stjórn­sýsl­una lögð niður með gild­is­töku lag­anna. Í stað­inn fyrir nefnd­ina, sem sjö ein­stak­lingar eiga að sitja í og á að starfa að sið­ferð­is­legum málum innan stjórn­sýsl­unnar, mun for­sæt­is­ráðu­neytið veita ráð um túlkun siða­reglna þegar eftir því er leitað. Síðasta skipan nefnd­ar­innar rann út haustið 2013 og Sig­mundur Davíð hefur aldrei skipað nýja nefnd.

Í des­em­ber síð­ast­liðnum hvatti Rík­is­end­ur­skoðun til þess að ráðu­neytið skip­aði nýja nefnd í sam­ræmi við ákvæði laga. Það var gert í tengslum við könnun Rík­is­end­ur­skoð­unar á þekk­ingu starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins á siða­reglum fyrir starfs­fólk Stjórn­ar­ráðs Íslands. Í könn­un­inni kom fram að stór hluti starfs­manna taldi sig ekki þekkja siða­regl­urnar vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár