Björk er fimmtug í dag

Frægasti Íslend­ing­ur­inn og ein áhrifa­mesta mann­eskja heims þakkar fyrir sig með nátt­úru­vernd

Björk Guð­munds­dóttir er fimm­tug í dag, 21. nóv­em­ber. Hún er ekki ein­göngu fræg­asti Íslend­ing­ur­inn heldur er hún líka talin einn 100 áhrifa­mestu ein­stak­linga heims­ins, að mati TIME magazine. Tíma­ritið valdi hana á list­ann fyrr á árinu, og setti í hóp íkona. Þar eru líka Frans páfi, söng­konan Taylor Swift, rit­höf­und­ur­inn Haruki Murakami, Malala Yousafzai og Ruth Bader Ginsburg, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari í Banda­ríkj­unum.

Í fjöl­miðlum víða um heim er þess­ara tíma­móta getið. Í dönsku blöð­unum Politi­ken og Berl­inske tiderne var fjallað um afmælið í gær. Í Svíþjóð er einnig fjallað um hana, Dagens Nyheter tekur saman fimm mynd­bönd með henni og sænska rík­is­út­varpið greinir frá því að í óperu­hús­inu í Umeä verða í kvöld haldnir sin­fón­íu­tón­leikar henni til heið­urs.

El Mundo á Spáni óskar Björk til ham­ingju með dag­inn og skrifar grein um feril hennar, sem einnig er gert í Para­méter í Slóvakíu. Tón­list­ar­tíma­ritið NME heldur upp á afmæli Bjarkar með yfir­grips­miklu myndagall­eríi og sögum af ferli hennar og Doublej segir Björk vera í dag eins og alltaf „algjör­lega ein­staka“.

Finnst Ísland fjársjóður 21. aldarinnar

Björk hefur látið mikið til sín taka í nátt­úru­vernd á und­an­förnum árum. Fyrr í þessum mán­uði hélt hún blaða­manna­fund ásamt Andra Snæ Magna­syni rit­höf­undi, þar sem heims­byggðin var beðin um hjálp við að stemma stigu við stór­iðju­stefnu stjórn­valda hér á landi.

Í fyrra vakti hún líka mikla athygli þegar hún og Darren Aronof­sky kvik­mynda­leik­stjóri stóðu meðal ann­arra fyrir tón­list­ar­legum stór­við­burði til að krefj­ast þess að aft­ur­köllun nátt­úru­vernd­ar­laga yrði dregin til baka. Fé var safnað fyrir Nátt­úru­vernd­ar­samök Íslands og Land­vernd.

Björk kom í einka­við­tal við Kjarnann í tengslum við þessa tón­leika. Grípum niður í við­talið: „Við viljum virkja þjóð­ina í fjár­söfnun svo að sam­tökin geti starfað af fullum styrk og sem full­trúar okkar og nátt­úr­unnar. Svo þau geti ráðið sér lög­menn, prentað plaköt og verið með alvöru skot­færi til að fylgja þessu máli alla leið.“

Hún sagð­ist von­ast til þess að rík­is­stjórnin hlust­aði á þjóð­ina sína. „Ég er fyrst og fremst tón­list­ar­kona sem hefur nærst mikið af nátt­úr­unni. Svo hef ég verið að þakka fyrir mig með því að reyna að vernda hana. Þar get ég ekki verið hlut­laus. En ég hef aldrei kosið stjórn­mála­flokk og hef vandað mig í að dreifa orkunni minni ekki of mikið í aðrar áttir. Ég vil ekki missa fók­us­inn á nátt­úru­vernd.“

Björk sagði fólk í kringum hana telja Íslend­inga heppna. „Fólki í borgum erlendis finnst það vera búið að eyði­leggja jörð­ina. Það er fullt af sekt­ar­kennd. Fólk er lamað af sekt­ar­kennd og veit ekki hvar það á að byrja. Og það dáist að okkur fyrir að hafa haldið land­inu okkar „ósnertu“. Því finnst það vera fjár­sjóður tutt­ug­ustu og fyrstu ald­ar­innar. Því finnst við vera mjög heppin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár