Glataði snillingurinn

Hann var ljúf­lingur sem samdi ljóð, spil­aði á gítar við versl­ana­mið­stöðvar í Manchester og tætti í sig varnir and­stæð­ing­ana á vell­inum. Ryan Giggs segir hann hafa verið ótrú­legan leik­mann. Adrian Doherty lést 27 ára gam­all.

„Doherty hafði ekk­ert fyrir því að hlaupa fram­hjá mönnum. Hann gat farið í gegnum tæk­lingar eins og að drekka vatn. Hann gat farið inn í gegnum vörn­ina og utan á hana líka. Var góður í stuttu spili (1, 2s)[...] Þú veist, í The Matrix, þegar allir hlut­irnir eru að tengj­ast, og ger­ast mjög snöggt – en hægt og rólega í höfð­inu á karakt­ernum (Neo). Þetta var þannig hjá Doc.“

Svona lýsir goð­sögnin Ryan Giggs, fyrrum félaga sínum hjá ung­linga­liði Manchester United, Adrian Doherty, sem oft­ast var kall­aður Doc. Hann þótti stór­kost­lega efni­legur leik­maður, einn sá besti sem komið hefur fram hjá félag­inu. Giggs var í skugg­anum af honum, og þótti ekki eins góður. „Hann var ekki frá þessum heimi (out of this World),“ segir Gary Neville, sem lék með Giggs og Doherty í gegnum ung­linga­liðin. Hann er einn af þeim sem aldrei er minnst á, þegar hinn frægi ´92 árgangur er til umræðu. Giggs, Scholes, Butt, Neville bræður, Beckham. En aldrei Doherty.

Sorgarsaga ljúflings

En hver er þessi náungi og hvað varð um hann? Hvers vegna er hans aldrei getið þegar gull­ald­ar­ár­gangar Manchester United, sem lögðu grunn­inn að ótrú­legri sig­ur­göngu undir hand­leiðslu Alex Ferguson, eru til umræðu?

Stutta svarið er það, að Doherty lést þegar hann var tæp­lega 27 ára, 9. júní árið 2000. Hann datt á göngu í Hollandi, algjör­lega upp úr þurru, og var í dái á sjúkra­húsi í mánuð. Þar til hann lést. Nokkrum árum áður hafði fót­bolta­fer­ill­inn kom­ist á enda­stöð.

Hann meidd­ist illa á hné þegar hann var að brjót­ast inn í aðal­liðið, árið 1992, og náði sér aldrei almenni­lega. Fjöl­skylda Doherty hefur aldrei fyr­ir­gefið Manchester United með­ferð­ina sem hann fékk, því hann náði sér ekki af meiðsl­unum og missti samn­ing. Hann var ekki af ríku fólki kom­inn og þurfti strax að leita sér að vinnu. Um tíma vann hann í súkkulaði­verk­smiðju í Preston. Hann gerði til­raun til þess að ná sér af meiðsl­unum, en allt kom fyrir ekki. Hann færði sig svo til Hollands, nánar til­tekið til Haag, í apríl árið 2000, þar sem hann fór að vinna hjá hús­gagna­fyr­ir­tæki á tíma­bundnum starfs­samn­ingi.

Ferillinn búinn

Fer­ill­inn fór bara strax út um þúfur, eftir að lækna­lið Manchester United hafði greint honum frá því, að meiðslin væru mjög alvar­leg og lið­böndin var­an­lega sködduð. Röng með­höndlun gerði alvar­lega stöðu enn verri. Félagar hans héldu við hann sam­bandi, og voru Giggs og Gary Neville alla tíð nánir vinir hans. Þeir reyndu að hjálpa til, en lækn­is­skoð­anir sýndu að hann myndi ekki ná sér almenni­lega aftur. Á ald­ar­fjórð­ungi hafa miklar fram­farir orðið þegar kemur að með­höndlun hné­meiðsla, og því má telj­ast ólík­legt að þetta gæti gerst í dag.

Hinn 19. maí næst­kom­andi kemur út bók um Doherty í Bret­landi eftir Oliver Kay sem ber heitið Forever Young. Þar er farið yfir feril Doherty, og tím­ann eftir að hann hætti í fót­bolt­anum. Í Manchester hafa lengi verið sögur um að hann hefði verið óreglu­maður og ekki haft agann til þess að ná langt, en raun­veru­leik­inn er allt annar. Þetta stað­festir Alex Ferguson sjálfur í bók­inni og segir Doherty hafa verið góðan dreng, í sem í minn­ing­unni hafi samið ljóð, sungið og spilað á gítar á milli þess sem hann spændi fram­hjá mótherjum sínum á vell­inum. Ferguson segir Doherty hafa verið frá­bæran leik­mann, og einn af þeim sem hann hefði teiknað liðið í kringum, áður en meiðsli gerðu honum lífið leitt.

Spilaði á gítar við verslunarmiðstöð

Doherty fylgd­ist lítið með fót­bolta og var þekktur fyrir að gefa frá sér miða á leiki aðal­liðs­ins og fara þess í stað að spila einn með gít­ar­inn fyrir fram Arndale versl­un­ar­mið­stöð­ina í Manchester. Þá lék hann á gítar í bandi sem þótti um tíma efni­legt og hét Mad Hatters. „Hann lá yfir Bob Dylan textum þegar hann var sextán ára. Ég hafði ekki hug­mynd um hver Bob Dylan var þegar ég var sextán,“ segir Giggs í bók­inni, sem The Guardian fjall­aði um gær.

Höfundur bók­ar­innar segir að fjöl­skylda Doherty sé sár og svekkt með það, hvernig Manchester United kom fram við Doherty eftir meiðslin. Þrátt fyrir að góð sam­skipti við þjálf­arateymi og leik­menn, þá hafi starfs­menn og lækna­liði ekki sýnt Doherty neinn áhuga. Faðir hans, Jimmy, fór margar ferðir til þess að ýta á félagið, og að aðstoða son sinn, því til­trúin á hæfi­leika hans hafði verið mikil fyrir meiðslin. Nú, tæpum sextán árum eftir að hann lést, eru sár­indin ennþá mikil. Fjöl­miðla­um­ræða situr einnig í fjöl­skyld­unni, því sög­urnar sem gengu um að hann hefði ekki haft það sem þurfti til, voru nístandi sárs­auka­fullar. Alveg sama hvað var reynt, þá vildi eng­inn heyra sann­leik­ann.

Jimmy segir einnig, að Gary Neville, sem þá var vara­fyr­ir­liði Manchester United, hefði sagt Doherty í sím­tali að það væri til­gangs­laust að reyna að takast á við félagið um þetta. Leik­manna­sam­tökin á Englandi og enska knatt­spyrnu­sam­bandið, hefðu einnig snúið baki við honum. Hann hefði ekki verið að sækj­ast eftir pen­ingum heldur afsök­un­ar­beiðni, vegna þess að lækna­lið Manchester United gerði mis­tök sem leiddu til þess, að lið­böndin í hnénu urðu aldrei nægi­lega sterk fyrir fót­bolta­iðk­una á hæsta stigi.

Átti góð ár

Bróðir Doherty segir hann hafa átt bestu ár ævi sinnar, frá tví­tugu og fram að því að hann lést. Þvert á það sem margir halda. Hann hafi ekki tekið sig alvar­lega, og liðið best þegar hann var að semja ljóð, texta og spila lög. Hann hafði ekki verið sár eða í þung­lyndi yfir örlögum sínum, og átt auð­velta með að gleðj­ast fyrir hönd gömlu félaga sinna, sem urðu að stór­stjörnum og mynd­uðu eitt sig­ur­sælasta lið Evrópu, eftir að hann hætti. Þeir hafi hins vegar verið í öðrum veru­leika.

Alveg fram á síð­asta dag hefði hann verið dagdreym­inn og í eigin heimi. Þrátt fyrir að hann hafi átt fyr­ir­sagn­irnar um tíma, og verið álit­inn einn efni­leg­ast leik­maður Bret­landseyja – sem naut mik­illar virð­ingar félaga sinna – þá skipti það hann engu máli. Hann reyndi að hugsa ekki of mikið um örlög sín.

Höfundur bók­ar­innar segir að það sé um margt tákn­rænt, að hann hafi látið lífið með slysa­legum hætti. Óheppnin hefur verið fylgi­fiskur hans, en lífs­gleðin sömu­leiðis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár