Atkvæðagreiðslu á Alþingi frestað vegna veðurs

Þing­fundur mun hefj­ast á Alþingi nú klukkan þrjú sam­kvæmt áætlun og fer þá fram óund­ir­bú­inn fyr­ir­spurna­tími. Hins vegar hefur verið tekin ákvörðun um það að fresta atkvæða­greiðslu um fjár­auka­lögin, sem var á dag­skrá að loknum fyr­ir­spurna­tím­anum, fram til morg­uns. Þetta er gert vegna yfir­vof­andi fár­viðris svo tryggt sé að þing­menn og starfs­menn Alþingis geti verið komnir heim áður en óveðrið skellur á.

Óvissu­stig er á land­inu öllu vegna óveð­urs­ins, en rík­is­lög­reglu­stjóri lýsti því yfir klukkan eitt í dag. Óvissu­stig ein­kenn­ist af atburða­rás sem ætla má að geti leitt til þess að öryggi fólks og/eða byggðar sé stefnt í hættu.

For­eldrar hafa verið beðnir um að sækja börn sín í skóla og frí­stunda­starf fyrir klukkan 16 til að tryggja að þau séu heima þegar veðrið skellur á. Íþrótta­æf­ingar hafa verið látnar falla niður, allar sund­laugar í Reykja­vík munu loka klukkan 16:30 og menn­ing­ar­stofn­unum sömu­leiðis. Borgin hefur einnig til­kynnt um röskun á ferða­þjón­ustu fatl­aðra og akst­urs­þjón­ustu aldr­aðra. Dregið hefur verið úr allri heima­hjúkrun og félags­legri heims­þjón­ustu og ein­ungis bráða­til­vikum sinnt. Mat­ar­þjón­usta getur raskast á morgun.

Vega­gerðin hefur ákveðið að loka mjög mörgum vega­köflum víða um landið. Sjá má lista yfir lok­anir Vega­gerð­ar­innar hér. Póst- og fjar­skipta­stofnun mælist til þess að fólk hafi síma og snjall­tæki hlaðin ef til raf­magns­leysis kemur í óveðr­inu. Hér má lesa lista yfir lok­anir víðar, en fjöl­mörgum fyr­ir­tækjum verður lokað nú síð­degis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár