Undraheimur bókmenntanna: Veisla Soffíu Auðar Birgisdóttur

Gagn­rýnandi Kjarnans skrifar um „Maddama, kerling, fröken, frú. Konur í íslenskum nútíma­bókmenntum".

Við Íslendingar erum fámenn þjóð og má kalla krafta­verk að okkur takist að halda úti öllu því menningar­starfi sem sjá má blómstra - mér liggur við að segja útum allt. Sem er þó ekki alveg satt, því það verður líka að segjast eins og er að lands­byggðin er fremur afskipt þegar kemur að deilingu menningar­gæða. Þess vegna er það þeim mun stórkostlegra þegar birtist vandað fræðirit sem tekið er saman í skjóli Vatna­jökuls og hver hefði trúað því? Það heitir „Maddama, kerling, fröken, frú. Konur í íslenskum nútíma­bókmenntum" og hefur að geyma hvorki meira né minna en 31 grein um þær bókmenntir nútímans sem segja frá konum og kjörum þeirra, auk vandaðs formála eftir Silju Aðal­steins­dóttur.

Það er Soffía Auður Birgis­dóttir sem á heiðurinn af þessu afreki. Hún hefur um árabil verið verkefna­stjóri við háskóla­setrið á Höfn í Horna­firði og útgáfa „Maddömunnar ..." er hluti af hennar rann­sóknar- og fræði­störfum þar. Þá er bókin gefin út í tilefni sextugsafmælis Soffíu Auðar og fer vel á því að taka saman gull­molana á slíkum tímamótum og bjóða til lesveislu.

Lesandi bókar er yfirleitt einn um sinn lestur. Lesturinn kallar enda á ákveðna athygli og fer oftast best á því að lesandinn sitji einn að sínu. Að öðrum kosti verður einbeitingin kannski fyrir truflun. En lesandinn getur yfirleitt ekki deilt upplifun sinni með neinum og það getur líka verið miður; stundum vill maður hafa einhvern sér við hlið til að spjalla og spekúlera um það sem vekur hughrif og hugrenningar. Þá er auðvitað hægt að stofna leshring með öðrum og deila sögunni með því að hver lesi upphátt fyrir annan eða skiptast á skoðunum um skáld­verkin.

„Maddaman ..." er einmitt slíkur leshringur ef svo má að orði komast. Lesanda er boðið, ekki bara í samtal um skáldverk af fjöl­breyttu tagi, heldur til sann­kallaðrar veislu í nafni góðra bókmennta og frjórrar umræðu.

Og hvað er svo á borðum í veislu Soffíu Auðar? Hér kennir margra grasa eins og nærri má geta, enda hefur Soffía Auður ekki aðeins verið virk í fræða­samfélagi bókmennta, hún er einnig ötull gagn­rýnandi og hefur í þeirri iðju komið býsna víða við. Val höfunda kemur tæplega á óvart: hér eru í fyrirrúmi þeir sem sagt hafa frá konum og kjörum þeirra. Mér telst til að höfundarnir séu 24 og í þeim hópi má finna - svo fáeinir séu nefndir - Halldór Laxness, Svövu Jakobs­dóttur, Hallgrím Helgason, Álfrúnu Gunnlaugs­dóttur, Kristínu Ómars­dóttur, Þórunni Jörlu Valdimars­dóttur, Elísabet Kristín Jökuls­dóttir, Steinunni Sigurðar­dóttur, Steinar Bragi, Auður Jóns­dóttir ... já, þetta er glæsi­legur hópur sem ber uppi nútíma­bókmenntir okkar og þótt auðvitað megi ávallt hafa skoðun á því að einhvern vanti, verður ekki annað sagt um úrval Soffíu Auðar að það gefi giska góða mynd af íslenskum nútíma­bókmenntum, þ.e. þeim sem segja frá konum.

Í vönduðum formála að bókinni rekur Silja Aðal­steins­dóttir feril Soffíu Auðar sem bókmennta­fræðings og fullyrðir að Soffía Auður sé „einstak­lega vandaður, hugmynda­ríkur og glöggur gagn­rýnandi" og vísar til sjálfrar bókarinnar því til sönnunar ásamt því að benda á dæmi til stuðnings.

Silja bendir á að einkennandi sé fyrir umfjöllun Soffíu Auðar þegar um ræðir skáld­konur sem maður kannast við varpar hún einatt nýju og jafnvel óvæntu ljósi á hugmyndir manns um skáldið og verk þess líkt og sjá má þegar í fyrstu grein bókarinnar, sem fjallar um Sölku Völku eftir Halldór Laxness. Algengast hefur þótt í bókmennta­fræðunum að túlka þá sögu sem samfélags­lega og/eða pólítíska og Soffía Auður afneitar vissulega ekki því að þannig megi skilja söguna um hana Sölku, en færir hins vegar sterk rök fyrir því að sögu Laxness megi einnig og jafnvel fremur túlka sem þroska­sögu Sölku og að það sé samband hennar við nánast ómálga móðurina, Sigurlínu, og skilnaður dóttur og móður sem mótar veg Sölku til fullorðinsára. Þetta er athyglis­verð túlkun og gerir óumdeilanlega Sölku að að höfuð­persónu sögunnar.

Fyrri fræðimenn, eins og t.d. Peter Hallberg, einn fremsti okkar um Laxness og verk hans, og Árni Sigurjónsson, sem skrifaði doktors­ritgerð sína um Laxness, hafa báðir lyft Arnaldi fram sem aðal­persónu skáld­sögunnar og þá er líka ljóst að aðallega er litið til hins pólitíska sögusviðs; í sögulok heldur Arnaldur áfram meðan Salka verður um kyrrt í þorpinu. En Soffía Auður bendir á að í raun sendir Salka Arnald í burtu, hún hættir ekki á að verða upp á hann komin eins og hún sá móður sína verða háða ofstopa­manninum og fylli­byttunni Steinþóri. Salka brýst undan því valda­leysi og sektar­kennd sem er arfur hinnar mállausu móður og finnur sinn veg til sjálf­stæðis; í þessu ljósi er Salka Valka saga Sölku.

Þegar kemur svo að þeim fjölda höfunda sem Soffía Auður tekur fyrir og maður þekkir aðeins af afspurn er það nánast regla og ekki undan­tekning að fræðileg gagnrýni Soffíu Auðar vekur áhuga manns á höfundinum og verkum hans. Þannig er því til dæmis farið með Ágústínu Jóns­dóttur, sem er ljóðskáld sem hefur lent utan radars hjá undir­rituðum. Um hana og þrjár fyrstu ljóða­bækur hennar, Að baki mánans (1994), Snjóbirtu (1995) og Sónötu (1995) fjallar Soffía Auður og dregur saman höfundar­einkenni Ágústínu þannig að áhugi manns og löngun að lesa hlýtur að vakna:

„Stærstur hluti ljóðanna er byggður á einkalegri reynslu af tilfinningum sem fæstir kjósa að deila með fjöldanum. Listræn úrvinnsla slíkrar reynslu er vandasöm; um leið og hún krefst mikils hugrekkis og einlægni af höfundi verður hún að geta vísað út fyrir sig og öðlast almenna skírskotun þannig að lesendur geti samsamað sig yrkis­efninu. Það er útfrá þessu atriði sem gleggst kemur í ljós hversu gott skáld Ágústína Jóns­dóttir er. Í öllum bókunum sýnir hún frábær tök á ljóðmáli, frumleika og sjálf­stæði í myndmáls­sköpun, um leið og skáld­skapur hennar hefur ótvírætt almenna skírskotun."

Bókmennta­rýni af þessu tagi stað­festir orð Silju Aðal­steins­dóttur í formálanum þar sem hún talar um vandaða og hugmynda­ríka gagnrýni og það er alveg ljóst að Ágústína Jóns­dóttir mun fá a.m.k. einn nýjan lesanda á næstunni.

Að lokum má taka sem dæmi grein Soffíar Auðar um Vilborgu Davíðs­dóttur og þríleik hennar um Auði djúpúðgu, Auður (útg. 2009), Vígroði (útg. 2012) og Blóðug jörð (2017), en sú bók er tilefni þeirrar greinar sem fjallar um Vilborgu. Soffía Auður setur skáldskap Vilborgar í einkar fróðlegt sögulegt samhengi og einnig í samhengi við samtímann, enda hafa vinsældir hinnar sögulegu skáldsögu farið vaxandi; þá er ekki síður fróðlegt að drepið er lauslega á hið femíska samhengi sögulegra nútíma­bókmennta og loks er farið orðum um stíl og efnistök og lauslegur saman­burður gerður á tveimur skáld­systrum, þeim Vilborgu og Þórunni Jörlu Valdimars­dóttur - ekki til að setja aðra ofar á stall en hina, heldur til að fræða lesandann og sýna að margs konar brögðum má beita þegar unnið er með þjóð­menninguna og sagna­arfinn.

Allt vekur þetta ómældan áhuga lesandans á að lesa þær bækur sem um er fjallað. Um leið og Soffía Auður leiðir lesanda sinn inn í heim þeirra sagna og þeirra höfunda sem hún tekur fyrir vekur hún áhuga, bæði á því hvernig hún tekur á málum, sinni aðferða­fræði og niður­stöðum, en mun fremur vekur hún áhuga á þeim höfundum og verkum þeirra sem hún fer um nærfærnum og ákveðnum fræða­höndum. Soffíu Auði tekst það sem er og á að vera aðal­hlutverk bókmennta­fræðingsins: að leiða lesandann líkt og góður leið­sögumaður inn í undraheim bókmennt­anna og sleppir svo hendi og segir: Njóttu!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár