Lægstu laun VR hækka um 31,3% - stefnt að nýjum kjarasamningum fyrir vikulok

Lægstu laun hækka upp í 245 þús­und strax og í 300 þús­und krónur á mán­uði frá og með maí 2018 sam­kvæmt drögum að kjara­samn­ingi milli Samtaka atvinnu­lífs­ins og VR, LÍV, Flóa­banda­lags­ins og Stétt­Vest. VR birti í kvöld meg­in­línur í drög­unum að nýju kjara­samn­ing­unum. Lægstu taxtar hjá VR munu hækka um 31,3 pró­sent á samn­ings­tím­anum.

Samn­ings­drögin gera ráð fyrir að samið verði út árið 2018. Aðal­á­hersla er lögð á hækkun lægri launa og að verja milli­tekjur, að sögn VR. Stuðst verður við taxta­hækk­anir og launa­þró­un­ar­trygg­ingu í ár og á næsta ári en taxta- og pró­sentu­hækk­anir 2017 og 2018.

Launa­taxtar hækka um 25 þús­und krónur strax og byrj­un­ar­laun afgreiðslu­fólks um 3.400 krónuar að auki. Þá eiga laun ann­arra en þeirra sem fá borgað sam­kvæmt töxtum að hækka um 7,2 pró­sent fyrir laun að upp­hæð 300 þús­und krónum eða lægra, en pró­sentan fer svo stig­lækk­andi með hærri tekjum. Þessi launa­þró­un­ar­trygg­ing verður þó aldrei lægri en þrjú pró­sent á þessu ári.

Á næsta ári er launa­þró­un­ar­trygg­ingin 5,5 pró­sent og fimmtán þús­und krónur að lág­marki. 1. maí 2017 eiga launa­taxtar svo að hækka um 4,5 pró­sent og byrj­un­ar­laun afgreiðslu­fólks að auki um 1.700 krónur. Almenn hækkun þá verður þrjú pró­sent.

Fyrsta maí 2018 hækka launa­taxtar svo um þrjú pró­sent og almenn hækkun verður tvö pró­sent miðað við átta mán­uði, það er það sem eftir lifir árs­ins 2018.

Nú er unnið að útfærslu ýmissa ann­arra ákvæða kjara­samn­ing­anna, að því er fram kemur í til­kynn­ingu VR. Mik­il­væg­ast þess­ara ákvæða er opn­un­ar­á­kvæði ef for­sendur kjara­samn­ings­ins stand­ast ekki. Stefnt er að því að ljúka samn­ingum fyrir viku­lok.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár