Danir koma með veiruna frá Spáni – „Við getum ekki farið og sótt fólk“

Danska borg­ara­þjón­ustan stendur í ströngu þessa dag­ana að svara Dönum sem eru komnir í ein­angrun á far­sótt­ar­hót­elum á Spáni en vilja kom­ast heim. Við slíkum beiðnum er ekki hægt að bregð­ast. Mikil upp­sveifla er í far­aldr­inum á Íber­íu­skaga.

Margir ferðamenn eru á Spáni að njóta lífsins.
Margir ferða­menn eru á Spáni að njóta lífs­ins. Mynd: EPA

Átta pró­sent smita sem greinst hafa í Danmörku síð­ustu vik­una eru meðal fólks sem hefur komið smitað af veirunni heim úr fríi á Spáni. Þetta kemur yfir­manni borg­ara­þjón­ustu danska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins ekki á óvart þar sem margir Danir sækja í sól­ina á Spáni þessa dag­ana þrátt fyrir að smitum hafi fjölgað þar gríð­ar­lega hratt síð­ustu vikur. Hann segir stöð­una sýna að allir verði að við­halda þeim „góðu siðum“ sem við höfum tamið okkur í heims­far­aldr­inum og á þar við ein­stak­lings­bundnar sýk­inga­varnir. Að öðrum kosti gæti fólk endað í ein­angrun á hót­elum í sum­ar­frí­inu.

„Fólk verður að taka það með inn í mynd­ina að flest lönd setja þá sem smit­ast í ein­angrun og þá má við­kom­andi ekki fara í flug,“ segir Erik Brøgger Rasmus­sen, yfir­maður dönsku borg­ara­þjón­ust­unnar í við­tali við Danska rík­is­út­varpið.

Hann segir engin áform uppi um að herða ferða­tak­mark­anir gagn­vart Spáni eða öðrum löndum innan Evr­ópu­sam­bands­ins á næst­unni, nema að enn eitt afbrigði veirunnar skjóti upp koll­inum sem ekki hafi greinst í Danmörku.

„Flestir sem hringja í [borg­ara­þjón­ust­una] eru hissa á því að lenda í ein­angrun erlendis og geta ekki komið heim,“ segir Rasmus­sen. En borg­ara­þjón­ustan geti lítið gert að því. „Við getum ekki farið og sótt fólk af því að það dvelur á far­sótt­ar­hót­elum og við getum ekki heldur kraf­ist þess að það fái betri þjón­ustu þar.“

Fjöl­margir Danir hafa haft sam­band við borg­ara­þjón­ust­una eftir að grein­ast með veiruna erlendis. Þetta setur skilj­an­lega strik í reikn­ing­inn hjá fólki, það finnur jafn­vel eng­inn ein­kenni. Aðrir kvarta yfir því að kom­ast ekki heim í vinn­una. Og enn aðrir spyrja hver eigi eig­in­lega að borga fyrir dvöl­ina á far­sótt­ar­hót­el­inu. Rasmus­sen segir að hvað það varði bendi borg­ara­þjón­ustan á ferða­skrif­stof­una eða á trygg­ing­ar­fé­lög.

Skyndi­leg aukn­ing í fjölda kór­ónu­veirusmita á Spáni hefur komið mörgum í opna skjöldu. Marg­vís­legar tak­mark­anir hafa verið settar á þar sem smitin eru hvað útbreidd­ust. Bæði Spánn og Kýpur eiga í sama vanda og eru komnir á „rauða list­ann“ hjá nokkrum ríkjum hvað ferða­lög varðar, m.a. í Noregi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár