Seint í gærkvöldi skrifaði ég eftirfarandi færslu á Facebook:
Í Schöneberg, hverfinu sem ég bjó í á sínum tíma í Berlín, má sjá skilti meðfram einni götu með áletrunum með tilskipunum og reglugerðum sem hið opinbera innleiddi á sínum tíma, þegar mannslíf urðu að skriffinnsku. Köldum útreikningum. Það er skrýtið að lesa þessi skilti, á embættismannamáli. Virðast eitthvað svo venjuleg, bara skilti, en orðin svo hrikaleg, dulbúin í venjuleika. Tilskipanir og reglugerðir hins opinera. Kerfið. Skammt frá, í sama hverfi, er minnisvarði með áletrun sem minnir vegfarendur á að þeir megi aldrei gleyma ... Að vitna í þennan tíma, í þessu landi, er klisja. Samt, klisjur eru ekki klisjur af ástæðulausu. Táknin búa í minni manneskjunnar, sagan, endurtekningin. Barn sem fer hrætt út í óvissu og lífshættulegar aðstæður gerir ekki greinarmun á því hverjir reka það burt, á hvaða forsendum, í hvaða landi, hvenær. Það er bara hrakið burt. Í nótt, á morgun ... hrekjum við börn út í hættur, óöryggi og mögulega hrylling.
Ég veit ekki hversu marga svona statusa ég hef skrifað í gegnum tíðina. Í dag hefur Facebookmengið mitt logað vegna Kehdr-fjölskyldunnar frá Egyptalandi sem á að vísa úr landi, logað þannig að mér hefur fundist ég skynja meiri reiði, í bland við vonbrigði, en oft áður.
Eina ferðina enn upplifir maður vanmátt við að fylgjast með afgreiðslu mála barna í viðkvæmri stöðu, raunar man ég ekki hversu oft maður hefur fylgst með og reynt að hafa áhrif í slíkum málum. Meðal annars með því að hafa látið á það reyna að kjósa VG – eins og líkast til fleiri.
[adspot]Þetta er kannski stysti pistill sem ég hef skrifað. Af því að í stuttu máli blasir þetta einfaldlega svona við manni: Það er erfitt að rökstyðja annað en að afgreiðsla þessa máls sé í anda stefnu ríkisstjórnarinnar – og þar með VG – í málefnum fólks í leit að alþjóðlegri vernd. Einhverjir vilja verja VG með því að vísa í ráðherraræði en viðbúið var að mál myndu æxlast svona á vakt þessarar ríkisstjórnar með Sjálfstæðisflokkinn í dómsmálaráðuneytinu. Í núverandi ríkisstjórnarsamstarfi munu þau líkast til þróast áfram á þessa leið, miðað við útlendingafrumvarpið sem hefur velkst um í kerfinu síðustu misseri. Frumvarp sem hefur sætt alvarlegri og margþættri gagnrýni frá ófáum aðilum og stofnunum – sem þungavigt er í.
Ríkisstjórnin er samkvæm sjálfri sér í þessu máli. Og þar stendur hnífurinn í kúnni. Málsháttur sem mig minnir að Einar Örn Benediktsson í Sykurmolunum hafi hnoðað saman, á ágætlega við um VG þessa stundina: Það skiptir ekki máli hvað þú getur, heldur hvað þú gerir.
Í þessu máli virðist nefnilega ýmislegt hægt að gera. Það á að vera hægt að leita lausna með farsæld barnanna í huga og standa um leið með svo mörgum sem kusu VG til valda. Ég fæ ekki betur séð en að gerlegt væri á ýmsan hátt að rökstyðja það að leyfa fjölskyldunni að vera, með vísan í sáttmála og innri stíga kerfisins. Að gera það ekki er pólitísk afstaða. Pólitískur vilji. Pólitísk stefna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir