Íslendingar eiga fimm þúsund milljarða króna í lífeyrissjóðunum sínum

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, sem eru í eigu lands­manna og fjár­festa fyrir hönd þeirra, juku eignir sínar um 714 millj­arða króna á árinu 2019. Meiri­hluti þeirrar aukn­ingar, um 400 millj­arðar króna, var í eignum erlendis.

Íslendingar eiga saman mikinn fjársjóð í innlendum og erlendum eignum íslenska lífeyrissjóðakerfisins, sem byggir á sparnaði landsmanna.
Íslend­ingar eiga saman mik­inn fjár­sjóð í inn­lendum og erlendum eignum íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins, sem byggir á sparn­aði lands­manna. Mynd: Pexels

Alls áttu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins 4.959 millj­arða króna í lok árs 2019. Eignir þeirra juk­ust um 59 millj­arða króna í jóla­mán­uð­inum og að óbreyttu má búast við því að þær hafi í fyrsta sinn í sög­unni farið yfir fimm þús­und millj­arða króna í jan­úar síð­ast­liðnum.

Alls hækk­aði virði eigna þeirra um 714 millj­arða króna á síð­asta ári. Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands um líf­eyr­is­sjóða­kerfið sem birtar voru nýverið.

Það er mun meiri hækkun í krónum talið innan árs en nokkru sinni hefur átt sér stað á eigna­safni alls líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins áður. Á árinu 2017, sem var fyrra metárið, juk­ust eignir sjóð­anna um 403 millj­arða króna og 2018 juk­ust eignir þeirra um 302 millj­ónir króna. Sú hækkun sem varð á eigna­safni þeirra í fyrra er meiri en sam­an­lögð hækkun á eignum líf­eyr­is­sjóð­anna á árunum 2017 og 2018.

Vert er að taka fram að ekki er ein­ungis um hækkun vegna ávöxt­unar að ræða heldur aukast inn­greiðslur einnig ár frá ári vegna fjölg­unar í hópi greið­enda og hærri iðgjalds­greiðslna.

[adspot]Hlut­falls­lega er hækk­unin sem átti sér stað í fyrra þó einnig með því mesta sem sést hefur innan árs. Alls juk­ust eign­irnar um 16,8 pró­sent frá byrjun árs 2019 og til síð­ustu ára­móta. Það er mesta hlut­falls­lega aukn­ing sem orðið hefur á eigna­safn­inu innan eins árs eftir banka­hrun.

Mesta hlut­falls­lega hækkun innan árs á síð­ari árum var á árinu 2006, í miðju fyr­ir­hruns góð­ær­inu, þegar eigna­safnið hækk­aði um 23,3 pró­sent innan árs.

Eiga íslensk hlutabréf fyrir 689 milljarða króna

Stíf fjár­magns­höft sem sett voru síðla árs 2008 gerðu líf­eyr­is­sjóð­unum erfitt fyrir í fjár­fest­ingum og þeir höfðu ekki marga aðra kosti en að binda þá pen­inga sem streymdu frá sífellt fleiri greið­endum í þeim inn­lendu fjár­fest­ingum sem buð­ust. Sjóð­irnir keyptu skulda­bréf af miklum móð og eign­uð­ust þar með stóran bita í skuldum bæði opin­bera og einka­geirans. Alls eiga þeir nú tæp­lega tvö þús­und millj­arða króna í inn­lendum mark­aðs­skulda­bréfum og víxl­um. Það þýðir að þeir eiga um 75 pró­sent allra slíkra hér­lend­is.

Til við­bótar hafa líf­eyr­is­sjóð­irn­ir, sér­stak­lega á allra síð­ustu árum, verið leið­andi á íbúða­lána­mark­aði og þar af leið­andi tekið sér stöðu sem stórir beinir lán­tak­endur íslenskra heim­ila. Það hafa þeir gert með því að bjóða upp á miklu betri vaxta­kjör en bankar og fyrir vikið hefur hlut­fall skulda heim­ila við líf­eyr­is­sjóði farið úr tíu pró­sentum í yfir 20 pró­sent frá árinu 2016.

[adspot]Líf­eyr­is­sjóð­irnir eiga auk þess, beint og óbeint, um helm­ing allra skráðra hluta­bréfa á Íslandi en virði þeirra í lok síð­asta árs var 689 millj­arðar króna. Íslensku hluta­bréfin gáfu vel af sér á síð­asta ári en virði þess eigna­safns líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins hækk­aði um 26 pró­sent, eða 142 millj­arða krónaí fyrra. Þar skipti mestu máli mikil hækkun á hluta­bréfum í Mar­el, lang­verð­mætasta félags­ins í íslensku kaup­höll­inni. Hluta­bréf í Marel hækk­uðu um 66 pró­sent á síð­asta ári, en margir líf­eyr­is­sjóðir eru á meðal stærstu hlut­hafa félags­ins.

Erlendu eign­irnar uxu hratt í fyrra

Alls eru 70 pró­sent eigna líf­eyr­is­sjóð­anna inn­an­lands. Frá því að fjár­magns­höftum var lyft snemma árs 2017 hafa þeir þó í auknum mæli beint sjónum sínum að fjár­fest­ingum utan land­stein­anna, bæði til að auka áhættu­dreif­ingu sína og til að kom­ast í fjöl­breytt­ari fjár­fest­ingar en þeim býðst á Íslandi. Hlut­fall inn­lendra eigna líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins var á þeim tíma 77 pró­sent og hefur því hlut­falls­lega dreg­ist veru­lega sam­an, þrátt fyrir góða ávöxtun inn­lendra hluta­bréfa í fyrra.

Í apríl 2017, í kjöl­far þess að höft­unum var lyft, voru erlendar eignir kerf­is­ins 786 millj­arðar króna. Í dag eru þær tæp­lega tvisvar sinnum meiri, eða 1.488 millj­arðar króna. Í fyrra hækk­uðu erlendu eign­irnar um 399 millj­arða króna og ljóst að þar er uppi­staðan í þeirri eign­ar­aukn­ingu sem varð til í líf­eyr­is­sjóðum lands­manna á síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár