Mynd: EPA

Popúlísk ráð duga skammt gegn raunverulegum vandamálum

Ólafur Þ. Harð­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor ræddi við Kjarnann um áhrif heims­far­ald­urs­ins á stjórn­málin. Hann telur lík­legt að hægt verði að draga lær­dóm af því hvernig popúl­ískir leið­togar eins og Trump og Bol­son­aro standa and­spænis áskor­un­inni nú.

Ólafur Þ. Harð­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands hefur, ef til vill eðli­lega fyrir mann í hans starfs­stétt, verið að velta því fyrir að und­an­förnu sér hvort kór­ónu­veiran og kreppan sem henni fylgir um ver­öld víða muni hafa póli­tísk og efna­hags­leg áhrif þegar frá líður. Kjarninn heyrði í honum fyrr í vik­unni og spurði hverju hann hefði tekið eftir varð­andi stöðu mála í stjórn­málum í gegnum þessa und­ar­legu tíma sem við lifum.

Varðandi íslenska póli­tík seg­ist Ólafur ekki sjá nein merki þess að til skamms tíma verði mark­verðar hreyf­ingar á fylgi flokka eða stöðu rík­is­stjórn­ar­innar tengt þessum far­aldri. Hann veltir því hins vegar fyrir sér hvort áfallið sem kór­ónu­veiru­kreppan mun valda í heim­inum öllum verði til þess að hlut­verk rík­is­valds auk­ist, jafn­vel til langs tíma. Hann nefnir tvö dæmi af kreppum sem hafa valdið breyt­ingum á lífs­sýn fólks og hug­mynda­fræði í heim­inum, í fyrsta lagi krepp­una miklu árið 1929 og í öðru lagi fjár­málakrepp­una árið 2008.

„Miklir atburðir eða mikil áföll hafa haft mjög afger­andi afleið­ingar í sögu ver­ald­ar­innar,“ segir pró­fess­or­inn

„Ef við skoðum krepp­una miklu þá hafði hún ótví­rætt mjög mikil áhrif og hún átti ríkan þátt í því að key­nes­ism­inn varð ríkj­andi stefna í hag­stjórn í ver­öld­inni í hálfa öld þar á eftir. Þar sjáum við gríð­ar­leg, til­tölu­lega bein áhrif,“ segir Ólafur og bætir við að kreppan mikla hafi áreið­an­lega átt „mik­inn þátt í að móta hina sós­í­alde­mókrat­ísku stefnu á Norð­ur­lönd­unum, bæði varð­andi hag­stjórn­ina, sem var key­nesísk og líka til­urð vel­ferð­ar­kerf­is­ins.“

„Ef við lítum svo á fjár­málakrepp­una 2008, þá virð­ist mér hún líka hafa haft umtals­verð áhrif. Við sjáum til dæmis að ráð­legg­ingar Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins eftir fjár­málakrepp­una eru allt öðru­vísi en þær voru fyrir hana. Fyrir hana fólust ráð­legg­ingar sjóðs­ins aðal­lega í því að benda mönnum á að taka upp óhefta frjáls­hyggju, en það voru alls ekki ráð þeirra til Íslend­inga þegar þeir aðstoð­uðu okkur í hrun­inu. Við sjáum líka að núna er Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn, og reyndar mörg fleiri svona alþjóð­leg sam­tök sem eru með hag­fræði­legar ráð­legg­ingar eins og OECD, núna leggja þessir aðilar til dæmis mikla áherslu á vax­andi ójöfnuð og eru meira að segja farnir að tala um að ójöfn­uður geti verið hamlandi fyrir hag­vöxt,“ segir Ólafur og bætir við að eftir hrun fjár­mála­mark­aða 2008 hafi háskóla­hag­fræð­ingar margir hverjir farið í „mikla nafla­skoðun á sínum fræðum.“

„Mér sýn­ist að meðal háskóla­hag­fræð­inga hafi nýfrjáls­hyggjan, eða óheft mark­aðs­hyggja, í vax­andi mæli átt undir högg að sækja á meðan að key­nesísku áhersl­urnar hafa komið aftur. Þannig að þetta eru svona dæmi um það hvernig miklir atburðir geta haft miklar afleið­ingar,“ segir Ólafur.

Ríkisvaldið gríðarlega mikilvægt á erfiðum tímum

„Ef við veltum aðeins fyrir okkur núver­andi kreppu, sem er auð­vitað bæði hag­ræn, félags­leg, sið­ferði­leg og póli­tísk, það sem manni dettur í hug er að í henni birt­ist með afskap­lega skýrum hætti hvað rík­is­valdið er gríð­ar­lega mik­il­vægt á erf­iðum tímum. Und­an­farna ára­tugi hafa ýmis póli­tísk öfl talað þannig að rík­is­valdið sé aðal­lega af hinu illa og bara til bölv­unar og trufli mark­að­inn, en núna kemur allt í einu upp aðstaða þar sem lang­flestir horfa til rík­is­valds­ins sem þess aðila sem verður að grípa inn í og bjarga hlut­unum.

Varðandi efna­hags­málin sjáum við mjög víða við­brögð þar sem rík­is­valdið grípur inn í hag­kerfið, með meira afger­andi hætti en við höfum séð í ára­tugi og kannski með meira afger­andi hætti en nokkurn tím­ann áður. Það er spurn­ing hvort þessi breytta afstaða til hlut­verks rík­is­valds­ins muni halda áfram í ein­hverja ára­tugi enn,“ segir Ólafur, sem telur einnig að heims­far­ald­ur­inn muni vekja upp frek­ari umræðu um ójöfnuð, „því það nátt­úr­lega blasir við að í mjög mörgum löndum eru það þeir verst settu og þeir fátæku sem eru ekki bara fátækir lengur heldur hríð­falla fyrir sjúk­dómnum.“

Í Svíþjóð og þá sérstaklega í Stokkhólmi hafa innflytjendur verið hlutfallslega margir af þeim sem smitast hafa af veirunn. Myndin er frá upplýsingafundi í Tensta, úthverfi Stokkhólms, þar sem fólk fékk upplýsingar um veiruna og sóttvarnaráðstafanir á átta tungumálum.
Í Svíþjóð og þá sér­stak­lega í Stokk­hólmi hafa inn­flytj­endur verið hlut­falls­lega margir af þeim sem smit­ast hafa af veirunn. Myndin er frá upp­lýs­inga­fundi í Tensta, úthverfi Stokk­hólms, þar sem fólk fékk upp­lýs­ingar um veiruna og sótt­varna­ráð­staf­anir á átta tungu­málum.

Blaða­maður skýtur því að Ólafi að til dæmis í Svíþjóð hafi inn­flytj­endur orðið sér­stak­lega illa fyrir barð­inu á veirunni, en í Stokk­hólmi hafa smit verið hlut­falls­lega tíð á meðal inn­flytj­enda frá Sómalíu. Ólafur segir far­ald­ur­inn einnig vekja upp spurn­ingar um stöðu inn­flytj­enda, „því bæði eru þeir víða fátæk­ari og við­kvæm­ari þannig fyrir veirunni, en þetta vísar líka á það hvað það er mik­il­vægt að inn­flytj­endur séu sam­lag­aðir því sam­fé­lagi sem þeir lifa í.“

„Víða ger­ist það með inn­flytj­end­urnar að þeir tala ekki málið, þeir tor­tryggja yfir­völd og þeir fá kannski ekki heldur skila­boð um þann háska sem er fyrir hendi. Almennt talað sýnir þetta líka hvað traust er gríð­ar­lega mik­il­vægt í sam­fé­lag­inu, það er að segja, að á tímum sem þessum séu flestir til­búnir til þess að treysta yfir­völd­unum og fara að til­mælum þeirra um hegðun.

Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt og við höfum reyndar séð, í mörgum vest­rænum ríkjum að minnsta kosti, að traust á yfir­völd og stofn­unum sam­fé­lags­ins hefur farið hrað­vax­andi í þessum far­aldri,“ segir Ólafur.

Ánægja með við­brögð yfir­valda við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum mælist hvergi meira en hér á landi, sam­kvæmt Gallup-könnun sem var birt fyrr í vik­unni, en traust til stjórn­mála­stétt­ar­innar á Íslandi hefur þó verið afar lítið í reglu­bundnum mæl­ingum á trausti til stofn­ana hér­lendis allt frá hruni.

Ólafur segir stjórn­völd hafa borið gæfu til að treysta vís­ind­unum og fara eftir ráð­legg­ingum sótt­varna­læknis og ann­arra sér­fræð­inga, en bendir einnig á að stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hafi auk­ist nokkuð eftir að krísan skall á.

„Þetta er svo­kall­aður „rally ‘round the flag effect,“ segir Ólafur, en í stjórn­mála­fræð­inni er það þekkt að í alþjóð­legum krísum eykst stuðn­ingur við ríkj­andi stjórn­völd, en þó bara tíma­bundið.

„Það hefur gerst hér og það gerð­ist í Danmörku, þar sem stuðn­ingur við Mette Frederik­sen fór úr fjöru­tíu pró­sentum í átta­tíu pró­sent,“ segir Ólafur.

Talið berst næst að Banda­ríkj­unum, en þar naut Donald Trump for­seti afar tak­mark­aðrar fylg­is­aukn­ingar eftir að veiran fór að valda usla og „rally ‘round the flag“ áhrifin þar urðu mun minni en um leið­toga víð­ast hvar ann­ars staðar, eða um 2-3 pró­sentu­stig. Þessi áhrif eru þegar farin að ganga til baka.

Trú á vísindi og sérfræðinga gæti aukist

Stuðn­ings­aukn­ingin við stjórn­mála­leið­toga í svona krísum er alltaf tíma­bund­inn, en Ólafur segir að var­an­legar breyt­ingar gætu orðið á afstöðu fólks til vís­inda og sér­fræð­inga.

Á Íslandi hefur stjórnvöldum borið gæfa til að setja traust sitt á ráðleggingar sérfræðinga, segir Ólafur.
Á Íslandi hefur stjórn­völdum borið gæfa til að setja traust sitt á ráð­legg­ingar sér­fræð­inga, segir Ólafur.

„Það hefur verið áber­andi und­an­farin ár, sér­stak­lega meðal svona lýð­hyggju­flokka eða popúlista­flokka, að þeir hafa talað niður vís­indi og sér­fræð­inga og talið að þeir hefðu ekk­ert annað fram að færa heldur en skoð­anir. Þess vegna bæri ekki að taka þá neitt sér­stak­lega alvar­lega. Nú hefur komið heldur betur í ljós að þegar á bjátar vilja menn hlusta á vís­indin og menn vilja hlusta á sér­fræð­ing­ana. Það kynnu að vera var­an­leg áhrif,“ segir Ólafur.

Lærdómur faraldursins gæti orðið sá að popúlísk ráð dugi skammt

„Annað, sem teng­ist þessu, er að hefð­bundin stjórn­mál hafa víða átt aðeins undir högg að sækja og lýð­hyggju­flokkar eða popúlistar hafa víða verið að sækja í sig veðrið, þó að þeir hafi nú ekki kom­ist til valda á mjög mörgum stöðum.

Einn lær­dómur sem menn geta dregið af þess­ari kreppu er hvernig popúlistar í valda­stöðum bregð­ast við alvar­legum áföllum af þessu tagi. Ef við tökum dæmi til dæmis af Donald Trump ann­ars vegar og Bol­son­aro í Brasilíu hins vegar þá sjá menn auð­vitað glögg­lega að starfs­hættir þeirra og vís­inda­andúð og þessi popúl­ísku ráð, þau duga mjög illa gagn­vart ein­hverjum raun­veru­legum vanda­málum þar sem þarf öfl­ugt rík­is­vald og stöðuga eða hefð­bundna for­ystu til þess að takast á við vand­ann.

Þessi kreppa gæti orðið til þess að grafa undan trú almenn­ings á popúlistum í valda­stöðum,“ segir Ólafur, en bætir við að hættan sé auð­vitað sú að ef hefð­bundnum stjórn­völdum tak­ist mjög illa að fást við þennan vanda á stöðum þar sem popúlistar hafa ekki verið við völd, gæti gagn­rýni þeirra á hefð­bundin stjórn­völd enn þá haft áhrif.

„Það væri þó ansi kald­hæðið ef þessi kreppa yrði til þess að grafa undan popúlist­unum,“ segir Ólafur, en talið berst því næst aftur að Banda­ríkj­unum, þar sem mót­mæli eru nú nán­ast upp á dag í ein­staka ríkjum gegn þeim hömlum sem sett hafa verið á dag­legt líf í sótt­varna­skyni. Mótmæli sem Trump for­seti hefur bein­línis hvatt til, með skila­boðum á Twitter til íbúa ríkj­anna um að „FRELSA“ þau.

Á sama tíma er dag­ljóst að Banda­ríkin hafa átt erfitt með að fóta sig í bar­átt­unni gegn veirunni og skæðar hóp­sýk­ingar hafa blossað upp vítt og breitt um þetta víð­fema land. Á níunda hund­rað þús­und til­fella COVID-19 hafa greinst í Banda­ríkj­unum öllum og yfir 45 þús­und manns hafa látið lífið. Ólafur segir að það sé ekki ein­ungis stærð lands­ins sem geri við­brögðin þar erfið, heldur líka sjálf stjórn­skip­anin, valda­kerfið.

Mótmælandi í Richmond, höfuðborg Virginíuríkis í Bandaríkjunum í gær. Hann heldur á skilti sem segir Ralph Northam, ríkisstjóra vera harðstjóra. Donald Trump hefur nýverið hvatt fólk til mótmæla gegn sóttvarnaráðstöfunum einstaka ríkja.
Mót­mæl­andi í Richmond, höf­uð­borg Virg­in­íu­ríkis í Banda­ríkj­unum í gær. Hann heldur á skilti sem segir Ralph Northam, rík­is­stjóra vera harð­stjóra. Donald Trump hefur nýverið hvatt fólk til mót­mæla gegn sótt­varna­ráð­stöf­unum ein­staka ríkja.

„Í Banda­ríkj­unum erum við með gríð­ar­lega mikla vald­dreif­ingu, meðal ann­ars milli for­seta­emb­ætt­is­ins og fylkj­anna og svo eru alls konar völd ekki bara á höndum fylkj­anna heldur í afskap­lega flóknu sveit­ar­stjórn­ar­kerfi.

Kerfið er mjög flókið og það sem hefur gerst í Banda­ríkj­unum er að það skortir algjör­lega sam­ræmda for­ystu. Slík for­ysta er alltaf mjög erfið því sumt er hjá for­set­anum og sumt er hjá fylk­is­stjór­unum, en Trump hefur nátt­úr­lega ekki gert neina til­raun til heild­rænnar for­ystu, segir eitt í dag en annað á morgun.

Þar hefur þetta líka farið út í póli­tík og hver höndin er uppi á móti annarri, Trump hund­skammar fylk­is­stjór­ana og þeir kvarta undan honum. Þarna sést að þetta vald­dreifða kerfi, þó að það hafi ýmsa kosti, þá hefur það mjög aug­ljósa galla þegar upp kemur vandi af þessu tagi,“ segir Ólafur, sem segir Trump virð­ast algjör­lega ráða­lausan í við­brögðum gegn veirunni. Mat Ólafs er að Trump fari á spjöld sög­unnar sem ein­stakur leið­togi, en ekki í jákvæðri merk­ingu.

„Svona gam­al­reyndir stjórn­mála­fræð­ingar eins og ég höfum séð ýmis­legt, lesið okkur til um marga ótrú­lega hluti og sví­virði­lega hluti stjórn­mál­anna. Maður er vanur að lesa um mikla leið­toga sem unnu gríð­ar­leg afrek en gerðu líka skelfi­lega hluti, þeir eru bæði góðir og slæmir og hæfir og óhæfir, en eitt­hvað eins og Trump hefur maður aldrei séð. Hann er alveg í sér­flokki, alla­vega af svona lýð­ræð­is­legum leið­togum. Við höfum verið með með harð­stjóra eins og Hitler og Stalín, en við erum að tala um leið­toga í lýð­ræð­is­ríkjum,“ segir Ólafur, sem bætir við að hans kyn­slóð hafi alist upp við að Banda­ríkin og Banda­ríkja­for­setar væru álitnir leið­togar hins vest­ræna heims. Það hlut­verk telur Ólafur nú fremur í höndum leið­toga Frakk­lands og Þýska­lands.

Og talandi um. Evr­ópu­sam­bandið. Hvernig er það að takast á við veiruna, að mati Ólafs?

„Evr­ópu­sam­bandið er þeirrar nátt­úru að það er alltaf að fást við nýjar og nýjar kreppur og í hvert skipti sem það kemur upp kreppa hafa ein­hverjir orðið til þess að spá enda­lokum Evr­ópu­sam­bands­ins. Þetta er nátt­úr­lega ein mesta kreppa sem Evr­ópu­sam­bandið og aðild­ar­þjóðir þess hafa lent í. Það skiptir máli hvernig sam­bandið bregst við.

Eitt sem ég hef tekið eftir er að Macron Frakk­lands­for­seti var í við­tali nýlega við Financial Times þar sem hann hvatti til þess að betur stæð ríki Evr­ópu­sam­bands­ins gerðu mjög mynd­ar­legt átak í því að styðja efna­hags­lega við þau ríki Evr­ópu­sam­bands­ins sem verr eru stödd, sem eru aðal­lega Mið­jarð­ar­hafs­ríkin. Ef að eitt­hvað af þessu tag­inu gengi eftir, þá held ég að það myndi verða til þess að styrkja Evr­ópu­sam­bandið og Evr­ópu­hug­sjón­ina mjög veru­lega. En það er nátt­úr­lega ekki klárt hvort að það verður, en þetta þótti mér mjög athygl­is­vert,“ segir Ólafur.

Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Viktor Orbán forsætisráðherra Ungverjalands takast hér í hendur á NATO-fundi árið 2018. Angela Merkel Þýskalandskanslari stendur álengdar.
Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seti og Viktor Orbán for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands takast hér í hendur á NATO-fundi árið 2018. Angela Merkel Þýska­landskansl­ari stendur álengdar.

Í þessu ástandi hefur Viktor Orbán, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands, aukið mjög völd sín. Með laga­frum­varpi sem sam­þykkt var í lok mars fékk hann heim­ild til þess að stýra rík­inu með til­skip­unum, án aðkomu þings­ins. Þessi ráð­stöfun er ótíma­bundin, þó að stjórn­völd í Ung­verja­landi segi að hún verði ein­ungis nýtt sem neyð­ar­ráð­stöfun á meðan far­ald­ur­inn geisar.

„Það hefur nátt­úr­lega verið vax­andi umræða um það hvort hann sé húsum hæfum í Evr­ópu­sam­band­inu, þar sem hans stjórn­ar­hættir og það sem hann hefur verið að gera gengur í raun­inni alveg gegn öllum meg­in­hug­sjónum Evr­ópu­sam­bands­ins og reyndar líka gegn hug­sjónum Evr­ópu­ráðs­ins. Evr­ópu­sam­bandið hefur gert athuga­semdir við fram­komu Orbáns varð­andi þær aðgerðir sem hann hefur gripið til, ekki síst þetta að láta setja lög um alræð­is­vald for­set­ans sem eru ótíma­bundin, sem er mjög var­huga­vert og auð­vitað er alltaf háskinn sem við er að glíma þegar upp koma miklar krísur að óprút­tnir stjórn­mála­menn not­færi sér það,“ segir Ólafur, sem segir að aukin hætta sé á því að „lukku­ridd­arar“ og öfga­sinn­aðir póli­tíkusar njóti lýð­hylli ef hinum hefð­bundnu stjórn­mála­öflum tekst ekki að valda því verk­efni að takast á við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og afleið­ingar hans.

„En sem betur fer sjáum við mjög víða, ekki alstaðar, en mjög víða, að lýð­ræð­is­leg stjórn­völd eru bara að standa sig býsna vel í bar­átt­unni við þennan vágest.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár