Segja að aldrei hafi verið gefið í skyn að fjármál Flokks fólksins séu vafasöm

Stjórn Flokks fólks­ins hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna umfjöll­unar fjöl­miðla um fjár­mál flokks­ins. Í yfir­lýs­ing­unni segir að öll fjár­mál Flokks fólks­ins hafi verið lögð árlega og skil­vís­lega undir skoðun lög­gilts end­ur­skoð­anda og Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Guðmundur Ingi Kristinsson, varaformaður Flokks fólksins.
Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, vara­for­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn Flokks fólks­ins sendi frá sér yfir­lýs­ingu í dag vegna umfjöll­unar í fjöl­miðlum um fjár­mál Flokks fólks­ins. Í yfir­lýs­ing­unni segir að öll fjár­mál Flokks fólks­ins hafi verið lögð fram árlega og skil­vís­lega undir skoðun lög­gilts end­ur­skoð­anda og Rík­is­end­ur­skoð­unar, sam­kvæmt lögum. Ásamt því hafi árs­reikn­ingar flokks­ins verið lagðir fyrir aðal­stjórn, kjörna skoð­un­ar­menn, fjár­mála- og efna­hags­mála­nefnd, fram­kvæmda­stjórn og lands­fund Flokks fólks­ins til skoð­unar og sam­þykkta áður en þeim er skilað til Rík­is­end­ur­skoð­unar.

„Í þessu stranga eft­ir­lits­ferli allra hlut­að­eig­andi og of­an­greindra aðila hafa aldrei komið fram at­huga­semd­ir sem gefa í skyn að fjár­mál Flokks fólks­ins séu vafa­söm á nokk­urn hátt,“ segir í yf­ir­lýs­ing­unni. Jafn­framt er bent á að hægt sé að sjá út­drátt af end­ur­skoð­unum og sam­þykkt­um árs­reikn­ingi flokks­ins á vef­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar og á vef­síðu Flokks fólks­ins.

Karl Gauti segir það ekki forsvaranlegt að formaður stjórnmálaflokks sitji yfir fjárreiðum hans

[links]Á laug­ar­dag­inn sak­aði Karl Gauti Hjalta­son, sem rek­inn var úr Flokki fólks­ins síðla árs 2018, Ingu Sæland for­manns Flokks fólks­ins um óeðli­lega fjár­mála­stjórnun í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu. Í grein­inni segir að hann hafi marg­ít­rekað látið gagn­rýni sína á getu Ingu Sæland, for­manns flokks­ins, til að leiða Flokk fólks­ins í ljós áður en slík gagn­rýni náð­ist á upp­töku á Klaustur bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í grein­inni gagn­rýnir Karl Gauti að Inga Sæland sitji fyrir fjár­reiðum flokks­ins og hann seg­ist ekki geta sætt­sig við að opin­beru fé sé ráð­stafað til fjöl­skyldu­með­lima stjórn­mála­leið­toga. „Ég tel ekki for­svar­an­legt að for­maður stjórn­mála­flokks sitji yfir fjár­reiðum hans með því að vera jafn­framt pró­kúru­hafi og gjald­keri flokks­ins. Þá get ég heldur ekki sætt mig við að opin­beru fé sé varið til launa­greiðslna í þágu nán­ustu fjöl­skyldu­með­lima stjórn­mála­leið­toga. Lands­lög kveða skýrt á um vand­aða með­ferð þeirra fjár­muna sem stjórn­mála­flokkar þiggja úr almanna­sjóðum og er mik­il­vægt að eftir þeim sé far­ið,“ segir Karl Gauti.

Í Morg­un­blað­inu í dag tekur Ólafur Ísleifs­son, fyrr­ver­andi þing­maður Flokks fólks­ins og nú óháður þing­maður, undir gagn­rýni Karl Gauti á hendur for­manni flokks­ins. Ólafur segir að þetta sé gagn­rýni sem þeir hafi báðir haft uppi og seg­ist sjálfur hafa gert athuga­semdir við for­mann flokks­ins um fjár­málin. „Ég lét uppi við for­mann­inn það sjón­ar­mið að ég teldi ekki rétt að fjár­mál flokks­ins væru í höndum kjör­inna full­trúa. Þetta gerðum við strax báðir snemma í nóv­em­ber árið 2017 á þing­flokks­fundi, skömmu eftir að við vorum kjörin á þing. Þegar upp komu ráða­gerðir nokkru síðar um að ráða ein­stak­ling úr fjöl­skyldu hennar [á skrif­stofu flokks­ins], þá sögðum við við for­mann­inn að þetta væri eitt­hvað sem ætti ekki við. Þetta var á fyrri hluta árs­ins 2018,“ segir Ólafur.

Jafn­framt segir í frétt Morg­un­blaðs­ins að á síð­asta ári hafi þeir þeir Ólafur og Karl Gauti átt fund með rík­is­end­ur­skoð­anda vegna máls­ins en Ólafur segir að þeir hafi talið það skyldu sína að upp­lýsa rík­is­end­ur­skoð­anda um þessa þætti í starf­semi flokks­ins. „Eftirlit með fjár­reiðum stjórn­mála­flokka er á hendi Rík­is­end­ur­skoð­unar. Skömmu eftir að nýr maður tók þar við emb­ætti árið 2018 greindum við honum frá þessum stað­reyndum og lýstum áhyggjum okkar. Við áttum ágætt sam­tal við hann um eft­ir­lit með fjár­reiðum stjórn­mála­flokka,“ segir Ólafur.

Stjórnin segir að Karl Gauti og Ólafur ættu axla ábyrgð og að segja strax af sér þingmennsku

Að lokum segir í til­kynn­ing­unni frá stjórn­inni að hún ítreki að þing­menn­irnir Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son eigi að axla ábyrgð á eigin gjörðum og segja strax af sér þing­mennsku. „Stjórn Flokks fólks­ins ít­rek­ar fyrri yf­ir­lýs­ingu sína um að þeir Alþing­is­menn sem koma fram á upp­tök­un­um frá fundi stjórn­ar mið­flokks­ins, og Ólafs Ísleifs­son­ar þáver­andi þing­flokks­for­manns og Karls Gauta Hjalta­son­ar þáver­andi vara­for­manns þing­flokks og þáver­andi stjórn­ar­for­manns Flokks fólks­ins, á barn­um Klaustri 20. nóv­em­ber sl. ættu að axla ábyrgð á eig­in gjörðum og segja strax af sér þing­mennsku,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár