Ákvarðanir verða teknar á Egilsstöðum síðdegis

Rík­is­stjórnin mun funda um mögu­lega herð­ingu sótt­varna­ráð­staf­ana kl. 16 í dag. Vegna ferða­laga hjá ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar var heppi­leg­ast að rík­is­stjórnin kæmi saman til fundar í Hótel Vala­skjálf á Egils­stöðum.

Ríkisstjórnin kemur saman til fundar á Egilsstöðum kl. 16 í dag til þess að ræða tillögur að hertum aðgerðum vegna útbreiðslu COVID-19 innanlands.
Rík­is­stjórnin kemur saman til fundar á Egils­stöðum kl. 16 í dag til þess að ræða til­lögur að hertum aðgerðum vegna útbreiðslu COVID-19 inn­an­lands. Mynd: Bára Huld Beck

Fundur rík­is­stjórn­ar­innar, þar sem til­lögur sótt­varna­læknis að hertum aðgerðum inn­an­lands verða ræddar, fer fram í Hótel Vala­skjálf á Egils­stöðum síð­degis í dag. Á vef RÚV kemur fram að fund­ar­stað­ur­inn hafi verið val­inn sökum þess að nær allir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar eru á far­alds­fæti um landið.

Egils­staðir reynd­ust heppi­leg­asta stað­setn­ingin. Fund­ur­inn hefst kl. 16 og sam­kvæmt því sem segir í frétt RÚV verða ráð­herrar til við­tals eftir fund­inn, en ekki er talið lík­legt að form­legur blaða­manna­fundur verði hald­inn.

Ráðherrar njóta sólarinnar

Ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni eru sem áður segir á far­alds­fæti og hafa á und­an­förnum dögum verið að birta myndir af ferða­lögum sínum á Instagram og öðrum sam­fé­lags­miðlum.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur verið á ferð um Aust­ur­lands í veð­ur­blíð­unni sem þar hefur verið ríkj­andi.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hefur einnig birt sól­ríkar myndir af sér og sínum á síð­ustu dögum, sem hlýtur að þýða að hann sé staddur fjarri höf­uð­borg­inni. Það hefur Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ráð­herra ferða­mála, iðn­aðar og nýsköp­unar einnig gert, en hún virð­ist hafa verið stödd í nágrenni fund­ar­stað­ar­ins á Egils­stöðum und­an­farna daga.

Aðrir ráð­herrar virð­ast nær höf­uð­borg­inni og reglu­legum fund­ar­stöðum rík­is­stjórn­ar­innar, en á Instagram má sjá Ásmund Einar Daðason félags­mála­ráð­herra í smíða­vinnu og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra í hesta­færð í upp­sveitum Borg­ar­fjarðar.

Skiptar skoðanir um þörf á hertum aðgerðum

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir skil­aði minn­is­blaði um ein­hverjar hertar sótt­varna­ráð­staf­anir til Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra í gær.

Skiptar skoð­anir um þörf­ina á hertum aðgerðum hafa verið uppi í sam­fé­lag­inu, en sótt­varna­læknir telur þörf á því með til­liti til óvissu sem sé uppi um það mörg alvar­leg til­felli muni koma upp hjá þeim sem eru bólu­settir. Hann telur áhætt­una af því ekki þekkta, en að hún muni skýr­ast betur á næstu vikum.

Hvort rík­is­stjórnin grípi í brems­una er ekki ljóst, en ætla má að mis­mun­andi skoð­anir séu uppi innan hennar rétt eins og í sam­fé­lag­inu öllu.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár