Forsætisráðherra skilar þinginu ekki skýrslu um upplýsingalög

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra mun ekki legga fram skýrslu um fram­kvæmd upp­lýs­inga­laga á þessu þingi eins og áformað hafði verið. Þetta kemur fram í upp­færðri þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar sem var birt á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins eftir að þing kom saman eftir jóla­frí. Ráðherra hafði áður sagst ætla að leggja skýrsl­una fram á vor­þingi.

Í upp­lýs­inga­lögum sem tóku gildi í byrjun árs­ins 2013 kemur fram að for­sæt­is­ráð­herra „skal reglu­lega gefa Alþingi skýrslu um fram­kvæmd laga þess­ara, þar á meðal um hvað áunn­ist hafi varð­andi aukið aðgengi almenn­ings að upp­lýs­ingum.“ Á þessum rúmu tveimur árum frá gild­is­töku lag­anna hefur ekki verið gefin skýrsla af þessu tagi.

Mark­miðið með lög­unum var að tryggja gegn­sæi í stjórn­sýslu og við með­ferð opin­berra hags­muna. Í þeim er meðal ann­ars kveðið á um aðgang almenn­ings að upp­lýs­ingum og um að stjórn­völd eigi að veita almenn­ingi upp­lýs­ingar um starf­semi sína að eigin frum­kvæði.

Ætlaði að taka saman eigi síðar en núna


Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, spurði Sigmund Davíð um það í maí í fyrra hvenær hann hyggð­ist gefa Alþingi skýrslu um fram­kvæmd lag­anna, eins og kveðið er á um. Í júní svar­aði Sig­mundur Davíð fyr­ir­spurn­inni og sagði að ákveðið hefði verið að fyrsta skýrslan um efnið yrði tekin saman „eigi síðar en í árs­byrjun 2015 og lögð fram á Alþingi á vor­þingi það ár. Hún mun þá gefa yfir­lit yfir þau tvö ár sem liðið hafa frá gild­is­töku nýrra upp­lýs­inga­laga,“ sagði í svar­inu.

Þar kom einnig fram að skýrslan ætti að inni­halda sund­ur­lið­aðar upp­lýs­ingar um starf úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál á þessum tveimur árum. „Þar komi fram hvaða hópar kæri helst til nefnd­ar­innar, hver sé máls­hraði hjá nefnd­inni og hvert sé efni og umfang þeirra mála sem hún leysir úr.“ Þá átti að gefa yfir­lit yfir veit­ingu und­an­þága og gefið yfir­lit yfir starf ráðu­neyt­is­ins þegar kemur að birt­ingu upp­lýs­inga að frum­kvæði stjórn­valda.

Í dag lagði Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, fram aðra fyr­ir­spurn til for­sæt­is­ráð­herra um málið. Þar spyr hún ráð­herra hvers vegna hann hafi ekki enn gefið Alþingi skýrslu um fram­kvæmd lag­anna og hvenær hann hygg­ist gefa þing­inu skýrsl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár