„Ófriðarhöfðinginn“ Jón Gunnarsson gagnrýndur harðlega á Alþingi

Hart hefur verið tek­ist á um vinnu­brögð atvinnu­vega­nefndar Alþingis á þingi í morgun. Stjórn­ar­and­staðan er veru­lega ósátt við vinnu­brögð meiri­hluta nefnd­ar­innar, sér­stak­lega Jóns Gunn­ars­sonar, sem er sagður vera að grafa undan bæði ramma­á­ætl­un­ar­ferl­inu og umhverf­is­ráð­herr­anum Sigrúnu Magn­ús­dóttur.

Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, vara­for­maður nefnd­ar­innar, hóf umræð­una undir liðnum störf þing­ins við upp­haf þing­fundar. Hún gerði alvar­legar athuga­semdir við vinnu­brögð, en á fundi nefnd­ar­innar í morgun var rætt um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun, einnig þekkt sem ramma­á­ætlun. Lilja Rafney sagði að því hefði verið haldið fram að verk­efna­stjórn ram­m­á­ætl­unar væri ekki að vinna innan ramma lag­anna og að aðeins hafi verið fengnir á fund­inn í morgun „tíu aðilar úr orku­geir­anum til að kvarta“ en ekki neinir full­trúar úr umhverf­is­geir­anum eins og hún og Heiða Kristín Helga­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, hefðu viljað. Hún sagði þetta vera óboð­legt, verið væri að grafa undan trú­verð­ug­leika verk­efn­is­stjórn­ar­innar og alls ferl­is­ins í kringum ramma­á­ætlun.

Svandís Svav­ars­dóttir, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, sagði Jón Gunn­ars­son fara í það skipu­lega að grafa undan trú­verð­ug­leika ramma­á­ætl­unar og verk­efn­is­stjórn­ar­innar. „Hvaða vinnu­brögð eru þetta?“ Hún sagð­ist einnig vera hugsi yfir stöðu Sigrúnar Magn­ús­dóttur, núver­andi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Hún sagði verið að grafa undan ráð­herr­anum með þessum vinnu­brögðum.

Katrín Júl­í­us­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði hvort ekki væri verið að grín­ast með vinnu­brögð­unum og Stein­grímur J. Sig­fús­son sagði að kannski væri verið að leggja upp í annan vetur þar sem vinnu­brögð Jóns Gunn­ars­son verði „að stór­felldu og sjálf­stæðu vanda­máli hér í þing­stör­f­unum.“ Seinna kom hann svo upp og sagði rík­is­stjórn­ina, og Jón, hafa átt upp­tökin að ófriði í þessum málum. Hann væri ófrið­ar­höfð­ingi.

„Hefst nú þetta leik­rit enn og aftur,“ sagði Jón Gunn­ars­son þegar hann svo kom í ræðu­stól. Hann sagði að komið hefðu fram fyrir nefnd­inni alvar­legar athuga­semdir um að ekki sé verið að fara að lögum um ramma­á­ætlun, meðal ann­ars úr orku­geir­anum, og það væri eðli­legt að yfir það væri farið. Hann sagði að for­maður verk­efn­is­stjórn­ar­innar hefði sjálfur sagt að farið hefði verið út fyrir lögin í vinnu nefnd­ar­innar.

Meðal þeirra þing­manna sem komu fram og studdu mál­flutn­ing Jóns var Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra. Hún sagði að umræðan sem hefði átt sér stað sýndi að það yrði að breyta ein­hverju í sam­bandi við lög­gjöf­ina í kringum ramma­á­ætlun. „Það hryggir mig að það megi ekki halda fund til þess að ræða það hvernig í ósköp­unum við getum reynt að ná saman um þessi mál hér án þess að hlut­irnir fari á hvolf hér.“

Árni Páll Árnason sagði Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, vera að taka þátt í því að grafa undan Sigrúnu Magn­ús­dóttur og mála­flokknum, og Katrín Jak­obs­dóttir tók undir þetta. Þau voru bæði þeirrar skoð­unar að það hefði verið mynd­ar­bragur á því þegar Sigrún lýsti því yfir fyrir skömmu að hún myndi ekki gera til­lögur að neinum breyt­ingum á ramma­á­ætlun heldur hefði hún trölla­trú á ferl­inu í kringum mála­flokk­inn og vildi bíða til­lagna frá verk­efn­is­stjórn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár