Hver eru áhrif refsiaðgerða á daglegt líf í Rússlandi?

Hærra vöru­verð, auknar líkur á atvinnu­leysi og brott­hvarf alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja eru meðal þeirra áhrifa sem refsi­að­gerðir Vest­ur­landa hafa á dag­legt líf í Rúss­landi. Umdeilt er hvort aðgerð­irnar muni í raun og veru skila til­ætl­uðum árangri.

Vegfarendur í Moskvu ganga framhjá verslun Dior í miðborginni. Dior, líkt og fjölmargar erlendar verslanir og stórfyrirtæki, hafa hætt allri starfsemi í Rússlandi sökum innrásarinnar í Úkraínu.
Veg­far­endur í Moskvu ganga fram­hjá verslun Dior í mið­borg­inni. Dior, líkt og fjöl­margar erlendar versl­anir og stór­fyr­ir­tæki, hafa hætt allri starf­semi í Rúss­landi sökum inn­rás­ar­innar í Úkraínu. Mynd: EPA

Banda­ríkin, Bretland og Evr­ópu­sam­bands­ríkin hafa beitt Rússland for­dæma­lausum refsi­að­gerðum og efna­hags­þving­unum vegna stríðs­ins í Úkraínu. Auk þess hafa hund­ruð alþjóð­legra fyr­ir­tækja dregið úr eða alfarið hætt starf­semi sinni í Rúss­landi.

Um þremur vikum eftir að inn­rás Rúss­lands í Úkraínu hófst eru áhrif aðgerð­anna farin að segja til sín með hækk­andi vöru­verði, yfir­vof­andi atvinnu­leysi og, hjá sumum hópum, frek­ari ein­angrun. Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 2,2 pró­sent fyrstu vik­una eftir að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst. Mestu verð­hækk­un­ina er að finna á mat­vöru. Þá eru dæmi um að versl­anir hafi skammtað nauð­synja­vörur til að koma í veg fyrir að við­skipta­vinir ham­stri.

Maturinn enn í hillunum en mun dýrari

Í umfjöllun BBC um áhrif refsi­að­gerð­anna á dag­legt líf í Rúss­landi má sjá að íbúar eru farnir að finna fyrir áhrif­unum og tölu­verð óvissa ríkir um fram­haldið.

Virði rúss­nesku rúblunnar hefur verið í frjálsu falli frá því að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst fyrir tæpum þremur vikum. Daria (nöfnum þeirra sem blaða­menn BBC ræddu við hefur verið breytt), sem er búsett í mið­borg Moskvu, seg­ist ekki enn hafa séð tómar hillur í mat­vöru­versl­unum. „Maturinn hverfur ekki en hann verður dýr­ari. Hversu mikið dýr­ari get ég ekki ímyndað mér en ég hræð­ist til­hugs­un­ina,“ segir hún.

[links]Jan, sem er frá Evr­ópu­sam­bands­ríki en er býr og starfar í Moskvu, finnur vel fyrir hækkun á mat­vöru. Hefð­bundin mat­ar­inn­kaup sem kost­uðu hann 5.500 rúblur, eða um 50 doll­ara, nokkrum dögum áður en inn­rásin hófst kostar nú um 8.000 rúblur, eða sem nemur um 70 doll­urum. Í íslenskum krónum nemur hækk­unin tæpum 3.000 krónum. Jan seg­ist meðal ann­ars finna fyrir hækkun á mjólk­ur­lítr­anum, sem hefur tvö­fald­ast.

Sykur og morg­un­korn hefur einnig hækkað og er um 20 pró­sent dýr­ari en í febr­úar í fyrra. Rúss­neski rík­is­fjöl­mið­ill­inn Tass greinir frá því að sumar versl­anir hafi sam­mælst um að tak­marka verð­hækkun á nauð­synja­vöru um fimm pró­sent.

Daria hefur brugðið á það ráð að birgja sig upp af vissum vörum. „Við keyptum fjögur kíló af kaffi, fjóra lítra af sól­blóma­olíu, fjóra lítra af ólífu­olíu og fjórar flöskur af viskíi.“ Hún hefur einnig tryggt sér þriggja mán­aða skammt af blóð­þrýst­ings­lyfi. Þrátt fyrir að refsi­að­gerðir og efna­hags­þving­anir nái ekki til lyfja hafa mörg vöru­flutn­inga­fyr­ir­tæki dregið úr starf­semi sinni í Rúss­landi sem hefur meðal orðið til þess að erf­ið­ara að nálg­ast sum lyf.

Síðasti iPhone-inn og síðasti séns á vestrænni hamingju?

Aðgerð­irnar hafa einnig skilað sér í verð­hækkun á raf­tækjum, svo sem símum og sjón­vörpum sem hafa hækkað um tíu pró­sent í verði. Þá hafa mörg stór alþjóð­leg fyr­ir­tæki hætt sölu á vörum sínum í Rúss­landi, svo sem Apple, Ikea og Nike.

Daria segir að margir hafi keypt hleðslu­tæki hjá Apple áður en skellt var í lás. Hún gerði það hins vegar ekki. „Það er brand­ari sem gengur núna að við séum öll með síð­asta iPhone-inn,“ segir hún.

Skynda­bita­keðjan McDonalds hefur lokað öllum 850 veit­inga­stöðum sínum í Rúss­landi, að minnsta kosti tíma­bundið, og létu við­brögðin ekki á sér standa. Einungis nokkrum klukku­stundum eftir að til­kynnt var um lok­an­irnar spruttu upp aug­lýs­ingar, meðal ann­ars á sam­fé­lags­miðlum, þar sem McDonalds-mál­tíðir voru boðnar til sölu á tíföldu verði.

„Naggar og bökur keypt rétt áður en skyndi­bita­keðjan lok­aði. Síðasti séns til að gæða sér á vest­rænni ham­ingju,“ segir í einni aug­lýs­ing­unni.

Vladimír, íbúi í Saratov í suð­vest­ur­hluta Rúss­lands, segir að áhrif efna­hags­þving­ana og refsi­að­gerða Vest­ur­veld­anna á Rúss­lands eigi enn eftir að koma almenni­lega í ljós, þrátt fyrir lokun McDonalds. „Vatniki [þau sem styðja rúss­nesk yfir­völd] verða ekki fyrir áhrifum af falli rúblunnar af því að þau kaupa ekki dýrar erlendar vörur,“ segir hann.

Annar við­mæl­andi BBC seg­ist finna fyrir áhrif­unum nú þegar og að erfitt sé að sætta sig við þau. „Þetta er algjör­lega ný teg­und af kreppu. Við erum týnd og ráða­laus, ekki bara þegar kemur að við­skiptum, líka í einka­líf­inu. Tekjutap, að segja skilið við ákveð­inn lífs­stíl, minna tengsla­net, þar á meðal á sam­fé­lags­miðlum, auk þess að geta ekki ferð­ast til að hitta ætt­ingja og vini erlendis. Svo er margt sem við höfum þegar misst en höfum ekki enn með­tekið almenni­lega.“

Daria kennir Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta alfarið um refsi­að­gerð­irnar og efna­hags­þving­an­irnar, ólíkt þeim sem styðja rúss­nesk yfir­völd og fá flestar upp­lýs­ingar um stríðið frá rík­is­fjöl­miðlum. Svo eru það þau sem eru á móti stríðs­rekstr­inum en kjósa þögn­ina af ótta við að gagn­rýna rúss­nesk stjórn­völd. Og ekki af ástæðu­lausu. 13 þús­und manns hafa verið hand­tekin fyrir að mót­mæla stríð­inu og ný lög voru sam­þykkt nýverið sem kveða á um fang­els­is­vist fyrir að „birta vís­vit­andi falskar upp­lýs­ingar“ um rúss­neska her­inn.

Lífið virðist ganga sinn vanagang

Daria segir að á yfir­borð­inu virð­ist lífið ganga sinn vana­gang í Moskvu. Kaffihús og veit­inga­staðir borg­ar­innar eru full­setin, neð­an­jarð­ar­lesta­kerfið gengur og umferð­ar­teppan í mið­borg­inni er á sínum stað, „Þannig er það ef þú hunsar mót­mælin, þegar leitað er á fólki af ástæðu­lausu og fólkið sem er í raun og veru að yfir­gefa borg­ina en lætur lítið fyrir sér fara. Það gefur til kynna, að mínu mati, að við séum að renna út á tíma.“

Raun­veru­leg áhrif refsi­að­gerð­anna eru enn óljós. Enn sem komið er virð­ast vel stæðir Rússar verða fyrir mestum áhrifum en það er ekki upp­haf­legur til­gangur aðgerð­anna. Með aðgerð­unum vilja Vest­ur­lönd fyrst og fremst að áhrifin á efna­hag Rúss­lands verði mikil og langvar­andi og neyði þannig stjórn­völd í Rúss­landi til að láta af stríðs­rekstr­inum.

Seðla­banki Rúss­lands við­ur­kennir að aðgerð­irnar hafi þegar haft harka­legar afleið­ingar en Pútín virð­ist ætla að halda ótrauður áfram. Daglegar frið­ar­við­ræður Rússa og Úkra­ínu­manna hafa engu skilað og átökin í Kænu­garði, höf­uð­borg Úkraínu, fara stig­magn­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár