Sú stærsta flýgur nú til Kaupmannahafnar

Mörg hund­ruð flug­á­huga­menn fylgd­ust með þegar Airbus A380 far­þega­þota lenti á Kastrup flug­velli við Kaup­manna­höfn sl. þriðju­dag. Und­ir­bún­ingur þess að risa­þotan gæti lent á Kastrup hefur staðið árum saman en vélar af þess­ari gerð munu fram­vegis fljúga dag­lega milli Kaup­manna­hafnar og Dubai.

Það var ekki að undra þótt flug­á­huga­menn væru spenntir þegar þriðju­dag­ur­inn 1. des­em­ber rann upp. Þá var risa­stálfugl­inn, eins og Airbus A380 er stundum kölluð, á leið­inni til Dan­merkur. Nokkrum klukku­stundum áður en vélin var vænt­an­leg var stór hópur fólks mættur á svæðið við Flyvergril­len, skyndi­bita­stað fast við aðal­flug­braut­ina á Kastrup. Þessi staður er sá eini þar sem flug­véla­dellu­fólk kemst í námunda við áhuga­málið en ein­ungis girð­ing skilur að svæðið við Flyvergril­len og flug­braut­ina. Þennan þriðju­dags­morgun var óvenju­lega margt fólk á „útsýnis­pall­inum“ enda í fyrsta skipti sem þessi risa­þota lenti á vell­inum ef frá er talin ein reynslu­lend­ing, án far­þega, fyrir þremur árum.

„Hvað er svona merki­legt við þessa flug­vél?“ spurði lít­ill snáði sem beið með pabba sínum eftir að vélin kæmi. „Þetta er stærsta far­þega­flug­vél í heimi“ svar­aði pabb­inn. „Stærri en sú sem við fórum með til Spánar í fyrra?“ spurði sá stutti. „Miklu stærri“ var svarið. „Vá“sagði snáð­inn. Þegar hann sá vél­ina stein­þagði hann, en sagði svo „þetta er alveg satt pabbi, hún er miklu stærri“.

Um hádeg­is­bilið sást hvar ferlíkið birt­ist á himn­inum og lenti svo á Kastrup, hjólin snertu völl­inn nákvæm­lega á þeirri mín­útu sem til­kynnt hafði verið fyr­ir­fram. Eftir að flug­á­huga­fólk hafði séð nægju sína af risa­vél­inni hélt það á brott, myndum og minn­ingum rík­ara.

Búast við í það minnsta 80 prósenta sætanýtingu

Emirates flug­fé­lagið sem á Airbus vél­ina hefur flogið dag­lega milli Kaup­manna­hafnar og Dubai í rúm fjögur ár. Þar á bæ töldu menn sig því ekki renna blint í sjó­inn þegar ákveðið var að nota risa­vél­ina á þess­ari flug­leið. Tals­maður flug­fé­lags­ins sagði í við­tali að gert væri ráð fyrir að minnsta kosti 80 pró­senta sæta­nýt­ingu, sem væri vel við­un­andi en í vél­inni sem flýgur á þess­ari leið eru 615 sæti. Þegar spurt var um far­þeg­ana sagði tals­mað­ur­inn að margir þeirra væru ferða­menn. Sumir hefðu milli­lent í Dubai, á leið sinni til Kaup­manna­hafnar, þaðan færu sumir áfram til ann­arra áfanga­staða og sömu leið til baka. Einnig væru margir sem flygju um Kaup­manna­höfn á leið sinni til Dubai en þar hefur ferða­fólki fjölgað mjög á síð­ustu árum. Bæði ferða­fólki og ekki síður þeim sem væru á ferð­inni vegna vinnu sinnar þætti það mik­ill kostur að geta flogið þessa leið án þess að milli­lenda. Flugið tekur um það bil sjö klukku­stundir frá Dubai en hálf­tíma skemur til baka. Emirates félagið á 67 Airbus A380 vélar og hefur pantað 140 til við­bótar hjá Airbus verk­smiðj­unum.

Undirbúningurinn hófst 1988

Um mitt ár 1988 hitt­ist hópur verk­fræð­inga Airbus verk­smiðj­anna til að ræða smíði stórrar far­þega­þotu. Mikil leynd hvíldi yfir fund­inum en í fram­haldi af honum hófst und­ir­bún­ingur að smíði þot­unnar sem gekk í fyrstu undir nafn­inu A3XX. Ætlunin var að smíða þotu sem keppt gæti við Boeing 747 „Jumbo“. Sú vél fór fyrst í loftið 1970 og var um 37 ára skeið stærsta far­þega­vél heims, til notk­unar í áætl­un­ar­flugi. Jumboinn getur mest tekið 660 far­þega en til sam­an­burðar getur Airbus A380 (fékk það heiti árið 2000) rúmað 853 far­þega og 3 þús­und ferða­töskur!

Orða­sam­bandið „Róm var ekki byggð á einum degi“ er iðu­lega notað um eitt­hvað sem ekki er hespað af í einum grænum. Þetta á sann­ar­lega við um A380 en sautján ár liðu frá því að und­ir­bún­ingur smíð­innar hófst og þangað til fyrsta til­rauna­flugið fór fram, í apríl 2005. Eftir það var ekki eftir neinu að bíða og fram­leiðslan sett í fullan gang enda margir áhuga­samir kaup­endur. Stærstu hlutar vél­ar­innar eru fram­leiddir í Frakk­landi, Þýska­landi, Spáni og Bret­landi en aðrir hlutar vél­ar­innar eru fram­leiddir víða um heim.

Langur biðlisti

Fyrsta áætl­un­ar­flug A380 var á vegum Singa­pore Airlines, í októ­ber 2007. Síðan þá hafa Airbus verk­smiðj­urnar afhent 173 þotur af þess­ari gerð en alls fengið 317 pant­anir.

Kölluð hvalurinn

Flug­á­huga­fólk hefur gefið A380 við­ur­nefnið „hval­ur­inn“. Sú nafn­gift kemur til af tvennu. Annars vegar stærð­inni, og hins vegar þykir fram­end­inn minna á til­teknar hvala­teg­undir, til dæmis grind­hval. Þegar svo­kall­aðar magn­tölur eru skoð­aðar kemur margt áhuga­vert í ljós. Vélin er 72.7 metrar á lengd (Hall­gríms­kirkja u.þ.b. 75 metrar) og heild­ar­breiddin er rétt tæpir 80 metrar. Full­hlaðin vegur vélin tæp­lega 600 tonn. Elds­neyt­is­geym­arnir rúma 320 þús­und lítra og vélin getur flogið allt að 15 þús­und kíló­metra í einni lotu, hámarks­hraði 1020 kíló­metrar á klukku­stund. Hreyfl­arnir (mót­orar) eru fjórir og þeir eru engin smá­smíði, hver um sig tæpir þrír metrar í þver­mál, sam­settir úr 20 þús­und hlutum. Fram­leið­endur þeirra eru tveir: Rolls Royce (Trent 900) og General Electric- Pratt og Whitney (GP-7200 tur­bofan). Þotan er sam­sett úr 4 millj­ónum hluta, sem 1500 verk­smiðjur í 30 löndum fram­leiða. 200 gluggar eru á vél­inni og 18 útgöngu­leiðir. Þegar til stendur að mála vél­ina að utan duga ekki nokkrar 10 lítra fötur, það þarf heila 3600 lítra.

Hljóðlát og sparneytin

Meðal þess sem hönn­uðir A380 lögðu sér­staka áherslu á var að hún skyldi vera hljóð­lát og spar­neytin. Það hefur tek­ist, hávað­inn frá þot­unni er allt að 50% minni en frá Boeing 747. Miðað við aðrar stórar far­þega­þotur er elds­neyt­iseyðslan 17% minni per far­þega.

Það eina sem kannski telst nokkurn veg­inn venju­legt við þessa risa­þotu er það að í flug­stjórn­ar­klef­anum eru tveir, flug­stjóri og flug­maður. Það gildir þó bara á styttri flug­leiðum, á lengri leiðum eru flug­menn fjórir, en alls eru að jafn­aði 22 í áhöfn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár